6.5.2026 kl. 10:14
Af steinvölum og grastóm
Ís-Quislínga mafían birti frétt á dögunum, þar sem hún stærði sig af þeim árangri að hafa tvöfaldað lestur meðal ungs fólks, á Nóbelsskáldinu sínu, Halldóri Kiljan. Sem er ágætt svo langt sem það nær. Sem minnir á atvik í Postulasögunni.
Einn af postulum meistara Jesú, var staddur í Gaza borg, þegar þar fór um efnaður maður frá Eþíópíu, en sá efnaði var Ben-Israeli ættar og hafði verið í Jórsalaborg að halda Páska. Tóku þeir tal saman og postulinn tók eftir að Afríkumaðurinn var að lesa í Jesajabók - einni flóknustu af bókum Bibbunnar.
Postulinn spurði þá Afríkumanninn, hvort eða hvernig hann skildi hina miklu spádómsbók, og Ben-Ísreli júðinn svaraði um hæl, hvernig skil ég ef enginn leiðbeinir mér, svo þeir ræddu fram og til baka, sem endaði á að svertinginn frá Eþíópíu tók kristna skírn, rétt eins og svo margir frumbyggja Palestínu á þeim tíma.
Svo hvernig skilurðu Íslandsklukkuna, Gerplu, Sjálfstætt Fólk, Ljós heimsins, Vefarann mikla, Sölku Völku, og allar hinar? Geturðu séð í gegnum lagskiptingar meistara Kiljans, hvernig hann óf sum af snjöllustu samsærum - og dulspeki - valda-mafía mismunandi tíma Íslandssögunnar inn í sínar eigin?
Vissir þú til dæmis að samtíma maður Kiljans, sem einnig tók sér gelískt nafn, og þekkti Kiljan, Kjarval sjálfur, tók sér sína nafngift til að halda minni Jóns ins gamla Kjarvalarsonar í þjóðarminninu? Mannsins sem hugsanlega var skyldur Mæfu Þorvarðardóttur, sem var samtímakona móður Sigrúnar, móður Kolskeggs "Kölska" Ýrberasonar, en þær tvær ónefndu stallsystur áttu [hugsanlega] vingott við snjallasta stjórnmálamann Íslandssögunnar, sem nú er því sem næst gleymdur?
Flókin saga? Gleymd?
Það sem haldið er að þér, Megas, Bubbi, Bó, Kiljan, og allir hinir, styðja þann huga sem eflir þá sem slegið hafa á þig eign sinni. Þannig hafa allir tímar alltaf verið.
Þú þarft ekki hlekki á mann hvers hugur er þér hollur, og ef þú getur genabreytt 82 % "þjóðarinnar" aþþíbara, hver er þá hugurinn, hver er sjálfsvirðingin?
Loftskattar, Skrefaskattar, Eignaskattar, og komandi sálargjöld. Vissir þú að Kaþólska kirkjan sló eign sinni á allar kristnar sálir fyrir sjöhundruð árum og enginn hefur fellt það út? Tækni sem húmanistar og marxistar og aðrir sósíalistar hafa [hugsanlega ekki] endurtekið.
Hvar er styttan af Þorsteini Ingólfssyni, [stjúp]föður Íslensku þjóðarinnar, eða af móðurbróður hennar, Kölska? Skrifaðar hafa verið tvær, jafnvel þrjár, bækur til heiðurs hinum síðarnefnda, en hinum fyrrnefnda engin. Veistu fæðingardag Íslensku þjóðarinnar, og ef svo, veistu hvað gerði þann dag einn af þrem merkilegustu dögum Heimssögunnar sjálfrar?
Geturðu skilgreint - og útskýrt - muninn á siðmenningu og menningu, eða mælistiku þess hvernig þeim farnast, nú eða muninn á siðferði og siðfræði, eða hvers vegna sá munur (og vægi hans) er lykilatriði þess að ekki verði siðrof, eða afstýrt að siðrof geti af sér siðfall?
Flókin efnisgrein?
Kannski.
Kannski fattarðu að mann-vera er afsteypa en manneskja [vakur] hugur.
Kannski ekki.
Hver veit.
Hverjum er ekki sama.
Íslandssagan á þrjá heimsspekinga, sá fyrsti - Jón Lærði - féll næstum í gleymsku, sá næsti - Sölvi "Sólon Íslandus" Helgason, einnig. Ólína og örlítið fleiri skrifuðu um Jón og eiga þakkir skilið, Davíð Stefánsson skrifaði um Sölva og gerði þann stórmerkilega mann ógleymanlegan.
Davíð var [orða]völundur, við vitum það öll, hann var sigldur og vitur, manstu "konan sem kyndir ofninn minn" - það var byggt á reynslu hans af "Poéle" tækni í Evrópskum gistirýmum, eða hvað með Thor Vilhjálmsson - Grámósi glóir á töfrandi vegu þegar birta strýkur honum við ýrð skilyrði og margir ökumenn landsins hafa átt í fullu fangi með að halda kílómetrateljaranum á veginum við þær fögru ferðaaðstæður, og margt hefur verið samið af töfruðum hugum útí hrauni í gegnum söguna, og mörg börn komið undir í mjúkum mosavöxnum leynibölum Íslenska hraunsins (sem nú er komið á friðunarskrá dáinnar menningar).
Enn flóknara?
Quislíngarnir sem véluðu til sín Íslenzka siðmenningu, yfirtóku og skrumskældu í skjóli ólögmæts hernáms og svívirðu "Vesturveldanna sem vernda okkur fyrir misveluppdiktuðum uppvakningum" hafa kerfisbundið séð til þess að þú trúir á ljóðin hans Jónasar og ljóðin hans Einars og bækurnar hans Halldórs, en vitir ekkert um Davíð, Thor, eða Þórberg, hvað þá meistara Jochum "Skugga" Eggertsson.
Dímonar þeir sem samlagað (Assimilated) hafa sér forkólfa landsins, í nærfellt heila öld, hafa tryggt að hugur þinn er bergmál og sálin leir, umkomulaus og lyklalaus gegn innri hamförum og öðrum galdraráðum (Spells), og tryggt að ef þú rankar við þér af svefni innprentunar og dávalds, tekur við nýtt "Inception" eða martröð "hins vaknaða" vörðuð allskyns Sannleiksdímonum hinnar stýrðu andófssálfræði.
Slíkum er sagt að nú sé öld aðgerðasinna, sem áður hétu andófsmenn, og þú tekur ekki eftir afstyrmingu eigin túngu, og þú sérð ekki að Lent og Ramadan, eru eitt og sama fyrirbærið - en ólíkum útskýringum - hvað þá heldur að þrívegis hefur Íslam bjargað Vestrænum sið - bókstaflega - og er hugsanlega í þann mund að vinna þá dáð í fjórða sinn.
[Viti menn, siðurinn sem er hættur að halda Lent, er af innihaldinu horfinn, en hinn ekki enn, en sá er þó hrörnandi - allir fallnir ljósenglar sjö [ríkjandi] heimssýna Sögunnar eru í innri átökum og - eins og sjá má af þeim sem þeir glæða - hamstola (Frantic) um þessar mundir: eins og spáð var eftir föngun og vistun leiðtoga þeirra í apríl 2014, eftir opinberun.]
Thor Vilhjálmsson reit í formála Nafns Rósarinnar, hvers þýðing hans stóðst snilld höfundarins sjálfs, táknfræðingsins Umberto Eco sem var snillingur í að fela þrennar til fjórar lagskiptingar í bókum sínum, að hann skuldaði Ítalíu þessa þýðingu, en hann og Davíð höfðu þekkst á Ítalíu árum sínum, á tímum sem Íslendingar höfðu enn ekki uppgötvað ferðalög út fyrir knastásinn Reykjavík-Köben.
Viti menn, Vefarinn mikli, var ritaður í fegurstu borg Evrópu, Taormína, þar sem bíómyndin "The Big Blue" var að hluta til kvikmynduð. Minn vissi hvorugt þegar hann heimsótti borgina, hrokinn til þín, er ekki alvöru, því ég er meiri einfeldningur en þú, heldur hitt, að ég er reiður yfir að hafa verið rúinn forskotinu, og þurft að læra grunninn á miðjum aldri, eftir flækjufótarbrölt í fólskulegu gervigliti glyms og gláms.
Eitt atriði í Stóra Bláa, er þegar gellan spyr gaurinn hvað heilli hann mest við frjálsa köfun, og hann segir, að það sé vandinn við að vilja koma aftur upp. Öll myndin er að hluta til umbúðir utan um þessa einu.
Reyndar annað sem er selt í myndinni, en fer framhjá drengjum; Karlmenn keyra um á gömlum Fiat 500, og Konur vita hvers vegna. En það er ögn flóknara.
Manstu þegar RÚV og fleiri viðurkenndu Jóhannes Björn, og Falið vald, í kjölfar Hrunsins, tækni sem notuð var á sínum tíma til að fela tvíritið um frímúrana og þeirra vélanir?
Jóndi var feik, en það blasir ekki við nema þú ræðir við steinvölur og hlustir á grasið gróa.
---
28Jósúa Núnsson, er þjónað hafði Móse frá æsku, svaraði og sagði: Móse, herra minn, bannaðu þeim það!29En Móse sagði við hann: Tekur þú upp þykkjuna fyrir mig? Ég vildi að allur lýður Jahve væri spámenn, svo að Jahve legði anda sinn yfir þá.
- https://biblian.is/1981/fjorda-mosebok-11-kafli/
- https://en.wikipedia.org/wiki/Taberah
- https://en.wikipedia.org/wiki/Keturah
- https://thecorebible.org/lexiconword-greek/?gw=4469
Ef allir eru þagnaðir er geta leiðbeint þér, þarftu að ræða við steinvölur, sem mun láta rætast á þér spádóm Jesú:
39Nokkrir farísear í mannfjöldanum sögðu við hann: Meistari, hasta þú á lærisveina þína.40Hann svaraði: Ég segi yður, ef þeir þegja, munu steinarnir hrópa.41Og er hann kom nær og sá borgina, grét hann yfir henni42og sagði: Ef þú hefðir aðeins vitað á þessum degi, hvað til friðar heyrir! En nú er það hulið sjónum þínum.
Veistu hversu oft Prodigy heimsótti Ísland með sitt Poéle?
Jamm, sjösinnum. Keith Flint, blessuð minning.
Keith, rétt eins og önnur uppáhalds hetja, Sister Bliss, var af Júðskum ættum, svo þú getur hvorugt þeirra gagnrýnt.