5.5.2026 kl. 17:02
Svo hvernig fer stríðið
Meistari John Helmer er á þeirri skoðun að breztir séu komnir í vináttuskeið Kína og Rússa - hefur hann sínar röksemdir fyrir því - en hann hefur nýlega útskýrt að HAN þjóðin sé að undirbúa nánara "skjólbelta" (Hegemonic)* samstarf við Bandaríkin.
Greining hans á hvernig HAN elítan hugsar og hefur gert síðan 400 BC, er þokkalega raunsæ. Mér virðist hann átta sig á því að stóra vandamálið - frá sjónarhóli HAN elítunnar - sé Bushido þjóðin handan við sundið, eða valdaættirnar í Nippon. Mér sýnist að hann átti sig á að ástæðan fyrir að Kínverska Alþýðulýðveldið (49)* hafi enn ekki ráðist á Kínverska Lýðveldið (47), sé Osaka* en ekki Pentagon - sambærilegt er útskýrt ítarlega í Arkívinu.
En að öllu þessu sögðu, þá er áríðandi spurning - hvernig fer Þriðja Heimsstyrjöldin* - ekki orrustan um Úkraínu eða orrustan um Íran, heldur heildar stríðið. Við minnum hér á spádóm Fletcher Prouty - gaur sem allir alvöru grúskarar kannast við - þegar hann sagði fyrir þrem áratugum, þriðja heimsstyrjöldin verður háð með fyrirsögnum í fjölmiðlum, og með minni viðbót, með áróðri, innprentun, heilaþvætti og sjónarspili.
Fyrir fáeinum dögum tók Napólítanó dómari ágætis viðtal við snillínginn Richard Medhurst - en báðir ættu að vera vel kunnugir þeim sem áhuga hafa á innfalli vestrænnar siðmenningar undanfarin misseri. Tvennt var áhugavert við samtal þeirra, annars vegar síendurteknar handbremsur sem Dómarinn notaði í samræðum þeirra þegar Medhurst var að því kominn að segja of mikið en hins vegar staðfesting á nokkru sem við höfum oft rætt, sumt í Spennulosun en frekar í FB stöðufærslum, auk eldri greininga Arkívisins; hver græðir og hvernig? R.M. benti á hvernig 60 daga sýndarstríðið meir og minna stórminnkaði nauðsyn Blackrock veldisins á að stöðva bankahlaupið sem þeir hafa barist gegn síðan í ágúst 2019, með allskyns gambleringum og hrókeríngum á hagsmunum og velferð alls almennings um allan hnöttinn.
Einfalt?
Ekki?
Einföldum; til að vita hvernig stríðið fer, þarftu að vita hver sigraði sjö ára stríðið - sem var heimsstyrjöld árin 1756 til 1763 - og hvernig eigendur þeirrar niðurstöðu - eða eignamöppu útkomunnar - hefur vélað öll stríð síðan þá eða hrókerað hverju sem henni sýnist. Um leið og þú finnur út hverjir eiga Blackrock og Vanguard eignamöppurnar - og hvernig sú ellefu manna mafía sem á 97 % af öllum eignum Jarðar ætlar sér að tryggja áframhald valda sinna, sérstaklega í ljósi þess sem gerðist í apríl 2014 þegar fyrirliði ljósenglanna sjö var fangelsaður og vistaður, ennfremur að veturinn 2015-2016 var gerður samningur í því tilvistarrými sem við vitum ekki höfnuðum að vita niðurstöðuna á. Þúsund ára ríkið hófst upp úr 1965 - við vitum ekki hvernig "mynd þess" verður, en borgarastríð meðal engla, sem hófst fyrir tólf árum, er grimmt - allt þetta hefur verið útskýrt mjög vandlega og ítrekað, í bland á logostal.com og í Arkívinu; allt sem gerst hefur síðan í apríl 2014, hefur verið útskýrt með þeirri greiningu, og því miður fyrirfram.
Var þetta of flókið?
Einföldum á ný.
Mafían sem stjórnað hefur heiminum síðan 1763 er í hættu á að missa völdin; hún svífst einskis, og við vitum ekki hvort mafían sem taka mun við verði eitthvað betri, en hún mun, rétt eins og við alla hildarleiki síðan 1763, segja fegrandi sögu af vélráðum sínum.
Áhugavert er hér, að eðlis- og skammtafræðingurinn Katherine Horton, hefur komist að svipuðum niðurstöðum, með táknfræðilegum og stærðfræðilegum greiningum - við erum ósammála henni um mjög margt, en að hún er snillíngur, er óumdeilt - samanber nýlegt samtal hennar við meistara Jim Fetzer - og verulega áhugaverða ábendingu hennar varðandi reiknilíkön ofursnillíngsins John Nash - nokkuð sem gaman verður að skilja betur.
Að við erum í HEL og okkur sé bezt borgið á grúfu í mölinni, hefur verið ljóst síðan Abu Rawash sprakk framan í fésið á Faraó, 1313 BC (2448 AM). Allt uppeldi þitt, frá vöggu til grafar, snýst um að afnema getu þína til að skilja þessa niðursstöðu, og vel heppnun samsæranna tveggja, um huga þinn og sál, er tær snilld, meinsær (Wicked) snilld, en snilld engu að síður.
Ofureinföldun?
Um leið og þú finnur Postulana Ellefu, og þrjúhundruð manna undirnefnd - eða framkvæmdastjórn - þeirra, veiztu hvernig stríðið fer; a) meiriháttar blóðfórnir á nytsömum kjánum, b), stórfelldar eignatilfærslur, c) stórkostlegur heilaþvottur í kjölfarið, með endurhannaðri Sagnfræði og faraóskri vitundarverkfræði: Samael fasaður út, Mikael fasaður inn - tveir jafngamlir ljósenglar sem báðir telja sig vita bezt um hvernig skuli best móta Hel og betrunarvizt þess - saga síðustu 6 þúsund ára í hnotskurn.
Að öðru leyti óskum við Lýgveldismafíu Íslenzka Quislíngaríksins fyrirfram til hamingju með kosningavélunina á vordögum 26. Þú ræður hvaða HAN/DAVOS stjórnmálaflokk þú kýst, valið stendur á milli meira stjórnvald og meira rán eða enn meira stjórnvald og stórfellt rán, og útstrokun á huga og sjálfsvirðingu, eins og venjulega.
"Ef Lýðræði virkaði fyrir hagsmuni almennings, væri það bannað með lögum." {lausl.}
--Samuel L. Clemens (Mark Twain)
Sem minnir á eitt til gamans - varðandi Alþjóðalög - hvað veistu um ályktanir Sameinuðu Þjóðanna nr. 181. og 242?
Við minntumst á Dómarann, en margir fylgjast vafalaust með samtölum hans við marga vitrínga, og líklega einnig Nima Alkhorshid við marga þá sömu en dýpra og ítarlegra; allir Antivistarnir sem þeir tala við, segja þér aðeins "andófshliðina" á áróðrinum, allir þessir menn sem starfað hafa í afkimum valldakerfanna, segja þér þó ekki neitt um það sem raunverulega gerist, þeir eru allir Stýrð Andstaða og Hliðverðir. En til að sjá hvernig það gerist, þarf maður að vita nóg til að sjá hverju þeir sleppa, og maður þarf að rýna allt án allra tilfinninga - um leið og þú tekur afstöðu, taparðu. Sem dæmi, ef rýnd er atburðarás í Ganges dalnum, og þar suð-vestur af, árin 1763 til 1812, skilur maður betur hvers vegna ruslaralýður Washington hershöfðingja sigraði Norður-Þýska málaliða "tiltekins fjárfestingafélags" árin 1776 til 1787, og hvers vegna sami ruslaralýður var flengdur 1811 til 1812 - ekkert af þessu er þó útskýrt á Discovery Channel eða í Hollývúdd bíómyndum, og nú veistu hvers vegna ólöglegt er í hátt í þrjátíu löndum að efast um opinbera sögu síðari Heimsstyrjaldar.
- https://duckduckgo.com/?t=lm&q=no+allies+in+statecraft+%22lord+palmerston%22&ia=web
- https://www.youtube.com/watch?v=YVW1mxUuDSk
"Therefore I say that it is a narrow policy to suppose that this country or that is to be marked out as the eternal ally or the perpetual enemy of England. We have no eternal allies, and we have no perpetual enemies. Our interests are eternal and perpetual, and those interests it is our duty to follow." --Lord Palmerston
"There are no allies in Statecraft, only mutual interests." --Bíómynd
Sem dæmi; hvorki Ísrael né Bandaríkin, stjórna hvort öðru, hvorutveggja eru færslur í sömu eignamöppu, finndu eigenda möppunnar og sögu þess aðila og þú veizt hvað er að gerast, og þú heldur að persónur og leikendur í opinberum undirskriftastólum skipti máli, missirðu lesleyfi hér.
* Hegemon og Hegemonic hefur ekki fengið neitt Íslenzkt hugtak hér á Stórastafúskaralandi.
* Stjórnarskrár árin, 1947 og 1949, hvaða Stjórnarskrá er hjúpun á lögmætri Ríkissmiðju annars vegar HAN kommúnisma og hins vegar HAN/Taiping þjóðveldis?
Meðan þú veist ekki hver Taiping þjóðin er, veiztu ekkert um Asíu.
* Osaka er hinn forni bústaður a) keisara sólarinnar og b) Shogun hans. Eða var það Yokohama? Man ekki alveg. En ef þú heldur að SJOGÖNNIÐ sé ekki lengur til - þó það formlega hafi verið lagt niðu 1868 - hvernig álpaðistu hingað inn?
* Ef þú áttar þig ekki á að þriðja heimsstyrjöldin hófst 11. mars 2020, þá er þér stranglega bannað að lesa færslur hér í Spennulosun, að viðlögðum erfiðum draumförum.