4.5.2026 kl. 12:54
Og þar með eru nasistalögin seld
Rétt eins og með Covid - mun enginn Íslendingur vinna neina heimavinnu og láta reyna á hvort verið sé að ljúga að honum eða ekki - allir hamingjusamir, allir full-genabreyttir og bráðum kemur sautjándi júní; ammælisdagur "Lýgveldisins." {sj. t. frétt}
Veistu hver afmælisdagur Þjóðarinnar sjálfrar er? Hvers vegna er hann falinn fyrir þér, þú með alla þína menntun? Til hvers að grúska í því frekar en í "nýja" haftavírusnum? Eða hvort PCR skimun geti yfirleitt uppgötvað smit?
Ó er það öndunarfæravírus* eins og nokkrir tugir annarra, allir með sömu einkennalýsingu, og enginn þeirra einangraður eða sannaður? Einhverjir Antivistar munu væntanlega kíkja á einhver samsærisvídjó á Túbunni eða Telegram, á milli mála, á Tene, en annars allt eins og venjulega.
Stýrða andstaðan er ekki endilega leidd af flugufólki, því hún fellur fyrir andófssálfræði meginsálfræðinnar, aftur og aftur og aftur, og hagar sér alltaf eins, rétt eins og aðalstrútarnir.
Skemmtilegast er þó að Antivistar - hvort heldur Samsæranna, Hrunsins, Covid eða Stríðanna - verða alltaf jafn móðgaðir ef maður tekur ekki "Sannleikann" þeirra hráan eða setur þá í sömu hópsálfræði og meginstrauminn. Bilað fyndið.
Manstu eftir Hruninu? Þeir sem seldu þér söguna, eru þeir sömu og seldu þér Farsóttina og þeir sem véluðu bankana út af brúninni, eru núna í öllum æðstu stólum heimsfjármálanna, og þeir ákveða hvort þú fáir að kaupa íbúð eða ekki, eða hvað þú kýst, eða sprautast með. Engin heimavinna neins staðar - enn fyndnara.
Pylsa með öllu. Eða var það pulsa? Allt saman fyrirsjáanlegt, og viti menn, Bretakóngur er að taka upp Íslenska Skrefaskattinn! Þvílík snilld - og enginn FLÝR.
Vík brott Davos, vei yður WEF!
Fimmtán mínútna borgarlína allra hverfa - ó, allar hverfa!
Úff. Alltof flókið.
Sem minnir á - manstu fyrir fáeinum vikum þegar Alma ofursprauta hóf að dæla efnum í unga drengi vegna sögunnar um að stúlkur fái legkrabbamein vegna HPV. Manstu hvað bróðursynir hennar hafa grætt undanfarin misseri á allskyns spillingu hérlendis?
Eins og einhver sagði, vírusinn er "fræði" sem aldrei verða lögð niður, meðan húmanistakirkjan - grallaramafía Faraós - græðir á þeim.
Svipað og með tunglið - tókstu eftir að enginn trúið á dögunum að Artemis hefði flogið í kringum tunglið? Hvar eru myndskeiðin úr ferðalaginu - ætlarru að segja mér að cabin-crewið hafi ekki verið með upptöku innanfars alla ferðina, og útum öll kýraugun, í rauntíma?
Málið er að maður grúskaði eitt sinn - og of mörg misseri - í allskyns hlutum, s.s. sögunni og samtímamálum, vísindum* og allskonar - og maður trúði að það skipti máli. Svo sá maður [óvart gegnum] hólógramið hér í Hel - eða var viskað út fyrir sjöþúsund-spegla-labýrintið - og maður skildi (loksins) að einungis eitt skiptir máli: Vensl við Skapara Alheimsins, og lyklarnir [að mínu mati] eru Bæn Iðrun Vitnisburður Fyrirgefning; ef ekki á grúfu í möl, þá á hnjánum.
Öll verkfræði dímona Heljar, snýst um að leiða þig frá þessari niðurstöðu.
Annars allt í fína.
Ah, minnir mig á eitt - fáir hafa rannsakað vírusasvindl meira en Jon Rappoport - og á fyrstu mánuðum "covid farsóttar alls heimsins" gerði hann hljóðupptöku(r) fyrir Solari Report (Catherine Austin Fitts) þar sem hann lýsti fyrirfram hvernig Covid fléttan yrði seld og hver niðurstaðan yrði, og eftir hvaða módeli það væri gert OG HVERT ORÐ HEFUR STAÐIST og enginn er enn að gefa honum neina Fálkaorðu!
- https://solari.com/content/?_keyword_search=rappoport
- https://solari.com/the-creation-of-a-false-epidemic-with-jon-rappoport/
- https://duckduckgo.com/?q=archive.org+jon+rappoport&t=lm&ia=web
- https://duckduckgo.com/?t=lm&q=jon+rappoport+aids+inc&ia=videos&iax=videos
Ræðandi um fólk sem grúskar, minn uppgötvaði Dr. Lee Merritt í farsóttagrúskinu á sínum tíma, og ákvað að líta á rásina hennar á dögunum. Hún gerði nýlega tvo fína þætti um Darwin og ferð hans með HMS Beagle - og kom þar fram með efnistök sem enginn annar hefur rannsakað og mjög áhugaverðan snúning. Hún heldur að öll samsæri hafi að gera með tiltekna blóðlínu frá Phrygiu - sem minn er ekki sammála - en í því grúski hefur hún uppgötvað margt sem er rétt, og hún virðist t.d. vera langt komin að fatta Lígúrísku ættirnar sem við höfum rætt nokkuð vandlega í Arkívinu, og er hún þar með önnur á heimsvísu (mérvitanlega) til að fatta þann áhugaverða snúning. Maður veit aldrei hver er hliðvörður eða hver er skellibjalla (Gatekeepers and Shills) eða hver er hluti af einhverri annarri fléttu - minn t.d. hafnar með öllu Þrenningarkenningu Kristindóms - þó minn elski Jesú - en að sama skapi hlustum við mikið á viðtöl við Dr. Farrell (gizadeathstar.com) og fyrirlestra John Hamer (centreplace.ca), sem báðir eru miklir þrenningarkennarar. Eins og prinsessan sagði eitt sinn, ég þurfti að kyssa marga froska.
Sjá frá Dr. Merritt:
- Darwin 1 (28 mín)
- Darwin 2 (45 mín)
- Phrygia 1 (1klst49m)
- Phrygia 2 (1klst29m)
- Glattfelder ...
* Á Covid tímanum hurfu úr lista WHO nokkrir öndunarfærasjúkdómar - allir í þriðja til áttunda sæti yfir algengustu sjúkdóma heimsins - á eftir hjarta og krabba sjúkdómum - ásamt Berklum - og voru í felum í tæp þrjú ár enginn fjölmiðill og enginn antivisti fylgdist með þessu; nema Arkívið. Mesta farsótt allra tíma (öllum heiminum skellt í stofufangelsi og efnahagsaftöku í þrjú ár, allir genabreyttir) og enginn vinnur neina heimavinnu - tölfræðilega, lagalega, læknisfræðilega, sögulega eða neitt - því heimavinna þarf að taka alla þætti; og Arkívið sannaði það! Var einhver að biðja um sönnun fyrir allir í Helvíti og allir í Múgsefjun; dáin menning, innfallin siðmenning? Er ekkert uppgjör á glæpnum?
* Minn hefur verið að lesa enn eitt vísindaritið, undanfarið, og tæpt er á ýmsu úr sögu Húmanistavísinda frá 1600 til samtímans, og viti menn, þegar farið er ofan í suma áhrifahvata þessara fræða, kemur í ljós að margir frasanna sem notaðir eru í dag - og jafnvel hvítu slopparnir - voru hugmyndir útlistaðar af þrem til fimm manns (milli 1600 og 1650), allir fjármagnaðir af City of London og allir lýstu nákvæmlega hvernig nota ætti "Vísindi" til að véla fólk, eftir að skipt var úr heitinu Náttúruspeki - og viti menn, Vísindsamsærið var engin tilviljun, heldur faraóskt grallarakukl frá getnaði. Allt er rekjanlegt, þeim sem ræða við steinvölur, á grúfu í möl. Við höfðum reyndar komist að svipaðri niðurstöðu í Arkívinu þegar við ræddum 1551 fléttuna all ítarlega (og hvernig það tengdist beint inn í fyrri og síðari heimsstyrjöld) - en alltaf gaman að sjá að fleiri fatta spegla í völundarhúsinu - erum reyndar komnir með nýjan púnkt í þá fléttu, sem kannski verður hljóðritaður einn daginn, líklega ekki, er upptekinn við steinvölur.