27.4.2026 kl. 13:39

Skítt með ESB - göngum í USA - Fylki 51

Við vitum vel hvað er í pakkanum, allar götur síðan Trotský-Marxistarnir Jón Baldvin Hannibalsson og Davíð heitinn Oddsson (bl. minning) komu Íslenska Lýðveldinu inn í EES flækjuna, höfum við opnað pakkann nokkrum sinnum á hverju ári og kjammsað á namminu.

Við Íslendingar - afsakið - þið Íslendingar (ég er Herúli) æi, flókið. Endurræsi.

Íslenzkir borgarar samtímans hafa vitað og upplifað á eigin skinni, og eigin afkomum - fyrirtækin sömuleiðis - hvað er í pakkanum, hvað sé á honum að græða og hvað sé á honum að tapa. 

Undanfarið hafa umræður "elítunnar" snúist einmitt um að "sækja aftur um aðild, nota kosningar á Höfuðdag sem blóraböggul, og kíkja í pakkann. Svo ef aðalatriðin eru ekki rædd, og ef það hljómar eins og samsæri, þá er það ekki samsæri því við lítum ekki við samsæriskenningum. Það er því spuni.

Þegar aðildin var blásin af árið 2013, var búið að semja um nær alla fleti aðildar, það var búið að gefa út greinargerðir, það var nærri því búið að klára pakkann, það er fullkomlega ljóst hvað er í honum og það er enginn að ræða það, eða fær enginn að ræða.

Hver er spuninn?

Það eru hvergi neinar umræður með mælistikum á því hvað við - afsakið, þið, æi, endurræsa - hvað Þjóðlíf landsins og samfélög þess hafi grætt á EES síðan 1993 þegar við fengum allt og fórnuðum engu eða hverju tapað. Ef engin umræða er um þessa einföldu rekjanlegu hluti, þá er spuni í gangi.

Því mælum við með að annaðhvort sé stjórnarskráin 1944 felld úr gildi og stjórnarskráin 1920 tekin upp aftur - forsetinn út og kóngurinn* heim - eða sótt sé um í snatri, að verða Fylki 51 í Bandaríska sambandsríkinu, þar sem enn eru alvöru umræður um hluti og þú hefðir ennþá virk borgararéttindi.

Líklega er þetta þó of einfalt.

Svo við bætum við smávegis flækju.

Þegar stjórnvitringarnir og Jón Baldvin og Davíð smokruðu Íslandi inn í EES og þannig fengu allt en fórnuðu engu - sem er snilld - þá gerðu þeir EFTA steingelt. Ef rýnd er saga ESB frá Rómarsáttmálanum til Schengen stjórnarskrárinnar - sem ESB borgurum var meinað að kjósa um til að vernda Lýðræðið - þá kemur í ljós að á meðan EFTA var sterkt, hélt ESB "tyranníið" sér á mottunni. 

Þriðja leiðin er nebblega til.

Ef meðfylgjandi tengill er rýndur sést að þó nokkuð mörg ríki í Evrópu eru ekki enn komin inn  í ESB Gúlagið, og standa utan við girðinguna, en gægjast þó inn. Sé þessum ríkjum umsvifalaust boðin innganga í EFTA - sérstaklega Tyrkjalandi og Serbíu - verður EFTA aftur að vægi eða áhrifavaldi í Evrópskum málum, og jafnvel viðskiptalífi alls heimsins. 

Þetta er einföld mælistika, en taktu vel eftir, að síðan 1993 hefur enginn neins staðar vogað sér að segja eða rita neitt í þessum stíl, og það er mælistika. Það er verið að meina okkur um að hugsa eða ræða þetta og því kemur það öllum spánskt fyrir sjónir og er útilokað sjálfkrafa - og hér er um dímoníska sálfræði aðgerð að ræða.

Ef t.d. er leitarvélað hver sé listinn yfir EFTA ríkin, þarftu að hafa smávegis fyrir því, og jafnvel stofnunin sjálf er birtir hann feimnislega, og nánast til hliðar, eins og hún biðjist afsökunar á að vera ennþá til.

Svo nokkrar leiðir eru í boði - sem þið Íslendingar getið grætt á - og aðeins ein þeirra er rædd, og það án mælistiku. 

Þetta er soldið fyndið.

Samt fullyrðum við að Trotský-Davos-Marxistar vita af EFTA möguleikanum og þess vegna hafa þeir gætt þess að fjölmiðla-tamdir líti þessi tvö öflugu þjóðríki, Serbíu og Tyrkjaland (sem hafa betra réttarkerfi en við) mjög neikvæðum augum, fyrirfram.

Úbbs, sorrý, ekki samsæri, ekki einu sinni samsæriskenning, bara djöfullegur spuni og illskeytt vélabrögð Ís-Quslínga (Landráðafólks) sem hvorki gæta hagsmuna Þjóðríkis né Þjóðar hér á landi, né hafa gætt á "Lýgveldistímanum."

Sorrý, Spennulosun, ..., þú skilur.

 

 

 

 

Biðst afsökunar á tímaskekkjum á borð við þjóðsaungva - Spennulosun, þú skilur.

 

 

* Við gætum skrifað þykka bók um þá hagsmuni sem Íslendingar höfðu af konungssambandi, fyrst við Noreg og síðan Danmörku, frá Gamla Sáttmála 1264 til 1944, en öll kennsla, öll fræðsla, öll innprentun og bilaður áróður síðan 1944 hefur bókstaflega falið það fyrir þér og gert ókleift svo mikið sem hugleiða möguleikann.