23.4.2026 kl. 01:39
Enn eitt skemmtilega stjórnarskrárbrotið
Stjórnarskrá Lýðveldisins heimilar ekki Forseta sínum að afhenda öðrum það vald sem stjórnarskráin skilgreinir og felur honum. Brjóti Forseti - eða ráðherrar eða alþingi eða embættismenn - eiðstaf sinn við varðveislu heilindi og framkvæmd stjórnarskrár, er framið brot gegn Lýðveldinu sem er landráð. {samanbr. t. frétt}
Landráð er glæpur* og það er Sýslumanna að framfylgja þessu; þeir geta ... ó ... kommúnistar valdsins hafa lagt niður nærfellt öll embætti Sýslumanna*, og framundan er ... aðeins einn kommúnistasýslu á Húsavík ... æi hverjum ereggi sama, það er engin Siðmenning á Ízzlandi.
Elítan siðlaus, almenningur siðblindur og allir hressir. Bráðum kemur sautjándi júni, ammælisdagur "Lýgveldisins" og bráðum kemur einnig afmælisdagur Þjóðarinnar, veistu hvaða dagur það er; veistu hver var fæðingardagur þjóðarinnar sjálfrar og ef þú veist hann ekki, hvers vegna er þér ekki sagður hann og hver er maðurinn sem hvar hvatamaðurinn að atburðinum, hvar er styttan af honum.
Ah, nú man ég, dáin menning, innfallin siðmenning. Alltaf jafn fyndið þegar innlendar stjórnmálafígúrur fullyrða "þrískiptingu valds" sem aldrei hefur verið framkvæmt á "Lýgveldistímanum" - allir þingmenn og allir forsetar og allir embættismenn þ.m.t. sýslumenn Lýðveldistímans eiga að dæmast í afplána ævilangt fangelsi: engin undantekning, og síðan í febrúar 2021, flestir ennfremur fyrir brot á lögum 144/2018.
Þjóðin á skilið það sem hún sáir til. --félagi Jesús og Bibban
* Landráð: Sjá greinar 86 til 97 í Almennum Hegningarlögum 19/1940. Í þessum kafla er aðal fókus á "erlend ríki" og "erlenda áhrifavalda" - auðvelt er færum lögmanni að útfæra brot gegn stjórnarskrá (heilsumynd (constitution) ríkisins) eftir kaflanum, en gætið að skýlausu broti Valdsamanna landsins undanfarin misseri á hlutleysisákvæði, og þá kemur annað sem við höfum ekki rætt í vangaveltum lögspeki og ríkissmiðju hérlendis, en það er " XI. kafli. Brot gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum þess." sem mætti kafa betur í, en við höfum eingöngu rætt "landráð" sem hugtak því það er auðskildara, eða ætti að vera það, ekki til upplýsingar, heldur vitnisburðar og ásteytingar.
* Veistu og skilurðu hlutverk og væti Sýslumanna í Vestrænni og sérstaklega Norður Evrópskri SIÐmenningu síðan á dögum Rómarveldis þegar byrjað var að velta fyrir sér hlutverki og smíð réttarríkis eða hvernig kerfisbundið hefur verið grafið undan SIÐ á okkar upplýstu tímum, eða hvers vegna, ... um þetta mætti rita þykkan doðrant og hver málsgrein áhugaverð; en menning okkar er dáin. Mér vitanlega hefur minn einungis séð/heyrt Lady Michelle Renouf og David Starkey sýna þessari réttar-speki (hugtak sem ekki ert til neinsstaðar) neina athygli, en vafalaust eru til fleiri. Málefnið er verulega áhugavert, sérstaklega fyrir þá sem fatta Marx-Trotský fléttuna.