22.4.2026 kl. 11:44

Af skósveinum Palpatíns keisara

Allir hafa séð Star Wars svo við gerum ráð fyrir að allir viti hver Palpatín keisari, meistari og kennari Darth Vader, illra en öflugra Sith meistara. Auðvitað allt skáldskapur, en George Lucas og Gary Kurtz náðu að vefa þarna saman margt af því bezta úr dulsagnagerð síðustu og núverandi aldar, nóg af táknum að kjammsa á og fínar hetjusögur í anda grískra goðsagna.

Það er soldið með George Kurtz og aðra sem ekki eru í fyrirsögnum tengdu "verkefninu" rétt eins og varðandi Genaþursinn í Vatnsmýrinni "og mesta rán Íslandssögunnar," að Jeffrey Gulcher var allan tímann hugurinn að verkinu ... og kannski fleiri, en það vinnur aldrei neinn neina heimavinnu hér í Helvíti.

Nú hafa skósveinar þessarar hugmyndafræði, sem reka fyrirtæki í anda Palatíns, - Palantir - og nefnt er eftir öflugasta tóli Saurons mikla úr Lord of the Rings gefið út hvernig þeir ætla að stjórna heiminum sem þeir eru þessa dagana að yfirtaka í skjóli allskyns heimsatburða.

Rétt eins og með annað verkfæri Postulanna ellefu, Epstein mafíuna, þá er þetta ekki til hér á Stórasta Upplýsastalandi, fullsprautaðra atkvæðakúta. Valdamesti maður heimsins, Peter Thiel, er óþekktur hérlendis. En er þó alvöru, og lesningin?

Lesningin er uppskrift að köldum hroll.

Hið merkilegasta er að sá aðili sem í heiminum hefur rannsakað þetta best, Whitney Webb, er næstum meira sniðgenginn af Antivistunum en af meginstraumnum.

Sem minnir á hið fornkveðna - Satan og dímonar hans hafa húmor fyrir sjálfum sér hér í Helvíti, og sérstaklega þeim sem trúa Veraldleikafantasíunni - eða þegar Antivistarnir fóru í fýlu fyrir fimm árum eða sú, þegar við nefndum þau Stýrðu Andstöðuna, og hvar eru Antivistarnir síðan þeir fengu aftur ferðaleyfi og aðgang að Telegram?

Ertu farinn að sjá hvernig Farsóttin og Stríðin - og aðrar Fyrirsagnir - eru silfurtjald skuggamynda meðan eitthvað annað er í gangi? Eða ertu einn af þeim sem var gripinn af Stýrðu Andstöðunni og álíka andstyggilegum antivisma um leið og þú ránkaðir viðér?

Ertu einn af þeim sem heldur að "fÅ•ettir" séu ekki Star Wars? Ertu einn af þeim sem gerir grín að flatjarðingum sem unnið hafa meiri heima vinnu en þú, ranga og misvísandi heimavinnu, en þó virðingarverðari en múgsefjun og sannleika meginþorrans.

 

 

Smá hugarnammi frá Japönsku Leyniþjónustunni:

https://old.bitchute.com/video/2IsVQWtXyow/