21.4.2026 kl. 18:37
Skemmtileg dökk hakkhrærivél í neónlitum
Lögin sem samþykkt voru í febrúar 2021, með engu mótatkvæði en ellefu fjarverandi, innihéldu engin læknavísindi, enga rekjanlega sóttvarnafræði, enga virka fyrirvara með tilliti til þekktrar og rekjanlegrar sögu hvað varðar miska- og skaðabætur sem sprautustefna "Lýðveldisins" hefur þurft að standa við - allt stóð um tvennt, annars vegar að afhenda fulltrúa WHO á Íslandi gerræðisvöld yfir Ríki, Landi, Þjóð ríkisins og Íbúum landsins, í trássi við alla siðfræði vestrænnar laga-, ríkis- og réttinda-smiðju frá upphafi til dagsins í dag, og réttlæta hverja þá "herferð" sem Valdastéttinni hugnaðist í hvaða markmiði sem henni sýndist, hvernig sem henni hugnast framkvæmdin, og var þetta gert í trássi við viðurkennda dómasögu Vestrænnar og Hnattrænnar lögsýslu.
Fyrir þá sem ekki skilja flókna texta með löngum orðum, Íslenska Lýðveldið - eða "Lýgveldið" - lagði niður siðmenningu eigin Ríkis, og innleiddi þjóðarmorðs-, og nasista-lög, án nokkurrar raunhæfrar umræðu, án þess að atkvæðakútar landsins svo mikið sem nenntu að lesa þau - þó lögin væru sett til að réttlæta yfirstandandi glæpi gegn mannkyni og þjóð (sjá lög 144 frá 2018) - og þó bæði "þjóðin" og "Íbúar" væru samtímis virkir þolendur þess að vera sviptir borgararétti og mótaðir með góðu og illu í allsherjar andstyggilega múgsefjun sem furðulegt nokk staðhæfði að þeirra eigin reynsla í lífinu, og þeirra eigin menntun væri röng og að þeir sem ekki sættu sig við það væru flatjarðingjar og tunglferða-afneitarar.
Fyrir þá sem ekki skilja samantektir: Síðan i febrúar 2021 hefur engin siðmenning verið á landinu og ekkert að marka eitt einasta orð sem kemur frá Valdstjórninni eða Vísindasöfnuði yfirstéttar ríkis og lands: og enginn landsmanna að því er virtist þá né síðar virtist sjá aðgerðir ríkis og elítu sem ástæðu og tækifæri til að vinna neina rannsóknavinnu!
Nú skilurðu langlokuna; það er drepfyndið hversu mikið hefur verið hrært í þessum suðupotti - samanber tengda frétt sem óbeint staðfestir allt sem hér kemur fram - því engin sóttvarnalög eiga neinn rétt á sér, ekki í vísindalegu og læknisfræðilegu tilliti, hvað þá í lögmætis tilliti, og þetta höfðu bæði Vestrænn Siður og Læknavísindi sannað fyrir meir en öld!
Ofureinföldun fyrir þrautseiga: The Great Barrington Declaration - efni þriggja hæfustu sóttvarnafræðinga heimsins sem hefði átt að vera í öllum fyrirsögnum árin 2020 til 2023, og ætti að vera vitnað til í öllum fréttum um sóttvarnamál.
Loka orð; hefurðu heyrt um Alþjóðlegu heilbrigðisreglugerðina frá 2005? Ef ekki, farðu þá í fleiri sprautur því þú hvorki skilur hvað hér er rætt, né munt nokkurn tíma hafa getu til að svo mikið sem reyna það.
Ofur einföldun; allt sem okkur var sagt um nasista Hitlers er nú gild hegðun Íslendinga og allra hinna, alþjóðakerfið er innfallið, vísindin hafa kúplað sig úr leik, siðmenning allra 194 þjóðríkja heimsins er ógild, og í stað heiðarlegs uppgjörs með gegnsæi, er klórað yfir, og klórað yfir og klórað yfir:
Vitjunartími er í gangi, áður gilti Trú Von Kærleikur, nú gildir Bæn Iðrun Vitnisburður Fyrirgefning (yfirbót og yfirgefning).
Þú færð hvítt eða rautt merki á ennið - hvort þú velur mölina eða píramídann - þannig virkar vitjunartími ásamt ýmsu öðru mis þægilegu skemmtiefni.
Súperofureinföldun fyrir treghefta; Allt sem gerst hefur í heiminum síðan 11. mars 2020, er snarruglað og aðeins eðlilegt ef við erum í Helvíti. Á þessu er engin undantekning og það hrópar framan í alla þá sem streitast við og láta eins og enn sé 2019! Að sjá ekki Vitjunartímann, er fullkomin raunsæis afkúplun, og það er einmitt það sem Vitjunartími gengur út á.
Svo hvernig feretta? Það skiptir engu máli ef þú ert á grúfu í mölinni, því þú ert í Venslum viðþúveisthvern og alls engu máli ef þú ert enn hangandi utaní píramídum Faraós og Töframanna hans.