21.4.2026 kl. 01:50

Umhyggjustreituröskun [okkar og] elítunnar

Eins og sjá má, bæði af tengdri frétt, og tengli hér neðar, hefur -elítan- miklar áhyggjur af kjötneyslu okkar, atkvæðakútanna* svo og hvort við sofum ýmist nóg eða vel. Ljóst er að mæling hennar á skrefum okkar, gistingum útlendinga og afskipti af sykurneyslu, hefur ekki dugað til að slá niður hitamerki Umhyggjustreituröskunar.

Hugsa sér ef maður þyrfti nú að nota hugann einhvern daginn og sjá eigin fótum forráð. Sjá tengil varðandi svefntímaröskun unglinga og okkar hinna:

 

 

Ofan á þetta bætist að hún elur okkur upp, kennir okkur hvað á að hugsa, hvernig á að hugsa það, og hvað má ekki hugsa, auk þess að móta tilfinningar okkar og leiðbeina þeim eins og bezt má. Umhyggju-, eftirlits-, og innheimtukerfi hennar - jafn fastriðin og þau eru - virðast hvorki ýra nægjanlega upp ást okkar né sefa téða röskun.

Hitamerki eru á okkur öllum. Sjálfur er ég jafn veikur og þú, nota orðið "elíta" í nærfellt öllum færslum Spennulosunar, já, ég er veikur, mjög veikur, ég sé ekki glætuna. Hér þarf að hringja í vin - eða þannig - hér þarf sameinað átak!

Við höfum öll lært allskyns múgsefjunarhugsanir, lífið er yndislegt, vertu jákvæður, hommar eru beztir*, Fuglaflensan er skæðari en Vindmyllurnar, og allt hitt, við verðum að elska elítuna alla leið, takmarkalaust, samstillt.

Það er eina ráðið - við röskun þeirri sem hér í fyrsta sinn í sögu mannsins er skilgreind* - samstillt agað virðingarástánd: Það slær á röskunarfárið*. Grínlaust.

Við þurfum að vera dugleg að segja elítunni hvað við elskum hana mikið, að við hugsum um hana allar okkar vökustundir, að við eyðum öllum okkar næturdraumum í leiðir til að sinna henni betur, hún fórnar jú allri orku sinni í velferð okkar, og þó dugar henni ekki allt sem er okkar að launum fyrir fórnfýsi hennar sálarkvalir og elju.

Minn ræðir þetta oft á förnum vegi - við útréttingar hér og þar - að elítan er vitur, hún er snjöll, og hún elskar okkur, en þá grettir fólk sig og segir eitthvað neikvætt, og þá spyr ég, ef þú treystir ekki elítunni akkuru treystir þú gena-röskunar-sprautunum, og þá verða sumir reiðir og hvað þá, fólk verður ljótt á svipinn, sem segir mínum að BDSM ástand fólks sé vanstillt.

Þú átt að elska og virða þá sem slegið hafa eign sinni á þig; það er ástarmerki, og gefa þeim til baka alla ástúð þína, umhyggju, og undirgefni, með gleði og sól í sinni. 

Ef þú ert ekki sammála þessu, en ert þó enn hlýðinn og þægur - töfraður af uppgjöf á borð við "það þýðir ekkert - þá hefur þú gefið eftir allan þinn vilja, og þú hefur ekkert gert til að sniðganga valdröskun, afsakið, umhyggjuröskun, þeirra sem slegið hafa eign sinni á þig. Þú ert vandamálið, ekki elítan, og ef þú sérð það ekki, ertu í sömu umhyggjustreituröskun og BDSM domminn sem á þig.

Svo vitnað sé í einn af frímúrum Bretakóngs sem stofnuðu Bandaríki Norður Ameríku, þú getur sniðgengið allt nema elítuna og dauðann, svo sættu þig við það glaður og hress - lauslega umorðað.

Til einföldunar; þú ert ekki góður og dyggur borgari þegn, þú hugsar ljótar hugsanir! Lærðu fallegar hugsanir - ekki endilega jákvæðar - eða hlustaðu sjö sinnum á Faðirvorið á móðurmáli Jesú:

 

 

* Dirty Peasants

* Eins og Homeblest, gott báðumegin..

* Altruist Interference Stress Disorder : AISD!

* Reverse psychology works. Neurolingóstöff.