19.4.2026 kl. 16:46

Og hvað með Íranshar?

Minn hefur séð elítuna hampa þeirri hugmynd Bandaríkjaforseta - að í lagi sé að stroka út heila siðmenningu - með þeirri merkingu að í lagi sé að sprengja heilt þjóðríki (Nationstate) aftur til steinaldar, líklega með Kjarnorkusprengjum.

 

 

Sumt segir maður ekki, sumt svo mikið sem hugsar maður ekki, hvað þá segir. Þá er sá maður dýr, sem ekki temur huga sinn og djöflaður sem ekki agar sál sína.

Sem sýnir í sterku ljósi þá átakanlegu staðreynd að ekki aðeins Íslensk menning er dáin, heldur menning alls samtímans um gjörvallan hnöttinn* og þá er órætt í því samhengi hvað átt sé við með innfallin siðmenning (Imploded Civilization) því Bergmálsdýr og Leirmenni dáinnar menningar sjá ekki muninn á Menningu (Culture) og Siðmenningu (Civilization) og geta hvorugt skilgreint.

Ræðandi um Iranshar* menninguna, sem Grikkir og síðar Rómverjar nefndu Parsa (Partha og Persa), þá spannar hún nokkuð stórt landflæmi - og tímaskeið (Epoch) - langt út fyrir landamörk þjóðríkisins sem á Vesturlöndum er nefnt "Íran" en sjálft nefnir sig "Íslamskt Íranska Lýðveldið."

Þá er algengt að kverúlantar þeir og gjallarhornsdúfur sem ræða "Íran," fullyrða að ríkinu þar sé stýrt eftir Guðræðishefð (Theocracy) en ekki Lýðræðishefð (Demo[ni]cracy), og að einhverjir "klerkar" séu harðstjórn þessa þjóðríkis, og uppnefna Klerkaveldið.

Sjálfir myndu þessir fretnaglar ekki skilja Guðræðishefð Ísraelsríkisins sem [hugsanlega] laumar að þeim spesíum í skúmaskotum.

Allt framangreint - rétt eins og sannað var á Covid tímanum - bergmálar ekki aðeins algjöra vanþekkingu, heldur skelmislega ákvörðun - eða ráðgerðan svívirðilegan ásetning (Nefarious Deliberate Intent) til að ljúga, afbaka og slá sér upp í krafti þess að Valdamafían leggi blessun sína yfir; í algjöru skeytingarleysi þess að fleiri öfl hafa áhrif á líf okkar og forsjón (Providence) en Valdstjórnin og klúbbar sem í skugga hennar tosa í og rúnka sér í duldum glitþráðum.

Svo hvernig fer þetta með Íran?

Siðmenning Íranshar þjóðþátta (Iranshar Ethnicities) eða Íranshar þjóðar er ein af þrem til fimm elztu siðmenningum jarðar, og fjórar þeirra lifa enn ágætlega og dafna. Hugveitur Iranshar höfðu djúp áhrif á þær hugveitur sem síðar mótuðu Egypzkar launhelgar, Gríska stærðfræði og heimspeki, svo og Rómverska laga- og dómahefð.

Fjórir Íranskir þjóðarleiðtogar voru áhrifahvati og fjárveita þeirra sem gerðu Síðara musteri Salómons kleift að rísa og fjármögnuðu þróun á kreddum (Dogmas) og ritningum (Scriptures) þess sem í daglegu tali nefnist Júða-Kristni* og Abrahams siður (Judeo Christianity and Abrahamic religions). Íranskir dulfræðingar voru einneginn aðal hvata hópurinn á bak við þau fræði og þær hugleiðingar sem Patrear (og þá sérstaklega Konstantín Mikli) notuðu til að grunnsetja predikun, guðfræði, siðfræði og dulfræði þess sem í daglegu tali nefnist Kristindómur.

Þá mætti vel velta fyrir sér áhrifum Íranshar menningar á þegar Íslamskar hugveitur á Suður Spáni, í Mesópótamíu og í Tyrklandi - undir "Írönskum" áhrifum - svo til bjuggu til það sem Evrópumenn tileinkuðu sér sem Endurreisn, Upplýsing og Siðabót (Renaissance, Enlightenment, Reformation), eða þær hugmyndir sem Vestrænn Húmanismi nærðist á, næst á eftir Skólaspeki Ágústínusar, Aquinas og Aristoteles.

Engir þeirra sem byrjað var á að ræða - eða bergmálstunnur tómarúmsins - annaðhvort gera sér grein fyrir þessu eða átta sig á mikilvægi þess, eða þá er sléttsama

Vandaðri lesandinn gæti nú spurt - "áttu við að allur hugmyndaheimur Vesturlanda sé Íranskur í rótina" - og þá myndum við svara um hæl - "Platónsk Sósíalíski samtími okkar er svört hugardrulla sem á ekkert sameiginlegt með "hugmyndaheim."

Svo hvernig fer þetta? Vestræn siðmenning er innfallin, menning hennar er dáin, Húmanisminn hefur sungið sinn svarta svanasöng.

Vissulega hefur samtíma-hortsöfnuður* yfir að ráða sprengjum til að varpa á Þjóðríkið Íran, en mun þá svipta sjálfan sig endanlegri tilveru og verða sjálfur að sviðnum svörð, ef ekki með eldi og sprengjum, þá eldi huga og höfnunar. Já, Vesturlönd eru við það að nota fallöxina á sjálf sig.

Ekkert af þessu skiptir þó máli.

Við erum öll baneitraðar sálir, vistaðar í Hel, svo við getum ekki skaðað Alheiminn. Um leið og þú fattar það og hendir þér á grúfu í mölina, fattarðu að dauðinn er ímyndaleikur (Illusion), og þú gætir fattað þann kraft sem býr í sál þinni, þess umkominn að sparka fjöllum í sjó fram og sæmsærin sem ræna þig honum og fela þér.

Þú gætir jafnvel fattað hvers vegna Íblis hafnar manninum!

Sem minnir á annað, svo vitnað sé í vitringinn Dr. Joseph P. Farrellhugsanlega var dauðinn skapaður í kjölfar syndafallsins, sjálfum okkur til verndar. [Pæling sem minn hefur sjálfur lítillega velt fyrir sér undanfarin misseri, en ekki rætt, né heyrt neinn annan ræða. Verið getur að Benjamín H. J. Eiríksson hafi ýjað að þessu, en man ekki nógu vel - Benjamín og Charles Upton hafa þó tveir einir - að minn viti til - skilgreint muninn á endurholdgun og endurfæðingu, sem er djúpt stöff og áhugavert.]

Í gær birti James Delinpole nýtt viðtal við meistara og djúpvitríng Alex Thomson - Alex er maður sem aldingjar og fjölæringjar láta ekki framhjá sér fara. Það er auðvelt að finna fleiri eldri viðtöl við hann, úr ýmsum áttum, hann er ekki eins og "Please like and share" múgurinn, sem lítur það sem dyggðir að upphlaða daglega, svo maður getur tekið Alex í skömmtum - svipað og með Charles Upton sem við mælum einnig með.

Allavega, um það bil hálftíma inn í samtal félaganna, fjallar Alex um fræði ritninga-þýðinga - og það af kristilegri hæversku sem honum einum er lagið - minn glotti við útskýringar hans og hugsaði háðslega, aha, fleiri sem fatta Fúsklenzkuna.

Það er sorglegt að sjá Benjamíníta Íslands taka afstöðu með og móti hlutum sem þeir ekki þekkja en myndu skilja væru þeir Herúlar. Eins og útskýrt er í Bibbunni, geta Bennar hvorki skammast sín né iðrast, tja, jú smáhópur þeirra.

Að slökkva á einu geni og tendra hitt, er kennt í Arkívinu. En steinvölur kenna þó allt sem máli skiptir, sérstaklega þær sem eru úr Safír og Rúbín (sem furðulegt nokk eru svo gott sem sami steinninn)(blue fusion (plasma) and red mercury).

Ekki hafa áhyggjur af djöfluðu fólki sem getur drepið líkama þinn, eða blekkjast af lygum þeirra sem ræna þig, valdnema og drepa. Lærðu frekar Bæn, Iðrun, Vitnisburð, Fyrirgefningu; einu verkfræði Alheims sem er einhvers virði - ekki tileinkaðu þér, heldur lærðu svo þú vitir hverju þú hafnar eða notar.

 

* Eða á allri flatkökunni, eftir atvikum.

* Íranshar hugtakið er ekki til á Íslensku, en við munum finna það á Íslenzku.

* Hortugheit (Hubris) og múgsefjun (Mob-mentality).

* Júða-Kristni er í raun ekki til, heldur er um að ræða slangur-yrði sem smíðað var á nítjándu öld og er notað víða - sem er fúsk - en við höfum rætt þetta ítarlega í Arkívinu. Hugtakð er notað hér sem götumáls (Vernacular) slangur.

* Illusion - ímynd - er sjónarspil eða leikur, skrekkur, glit og blekking. Þegar þú skilur leikinn, geturðu spilað. Hugsanlega snoðað sjálfa Medúsu. Steinn Steinarr fattaðetta, hugsanlega Laxness, Krishnamurti var við það að skiljetta.