15.4.2026 kl. 21:41

Óreiðuskoðun dagsins - 20260415

Ef marka má fréttir á Íslandi og aðra umfjöllun, þurfum við að vita hvað er í pakkanum. Helzt ekkert er rætt um að árið 2013 var búið að semja um pakkann, að mestu, og ljóst er hvað er í honum.

Ekkert er minnst á öll þau ríki sem þegar eru í pakkanum og eru farin að ræða um að yfirgefa hann, né heldur nein greining á hvers vegna Bretar yfirgáfu pakkann, eða þá að á Írlandi sem drap [flest] allar beljurnar sínar fyrir fjórum árum - fyrir Davos/ESB - eru nú í byltingarástandi og að krafist er þess að ESB ríkisstjórn landsins fari frá völdum, og að sambærileg mótmæli hafa verið um alla Evrópu í mismunandi útgáfum undanfarin fimm til sex ár, nei það er allt með kyrrum kjörum, samkvæmt ESB mafíu Íslands ... og hey:

Slóvenía er að ræða nú opinberlega um að yfirgefa Nató, og ljóst er að slíkar hreyfingar eru öflugar nú þegar á Spáni og Ítalíu. 

Svo við ítrekum að ESB og Nató munu enda með pólitískt hæli hér á Stórasta Möggins; mest sprautaða land í heimi og með engan lyfja- eða sprautuskaða og hey, veistu hverjir forrituðu heilbrigðis forritin og fengu greitt fyrir það

Veistu hvernig rafræna Ísland - kerfið sem núna stjórnar öllu þínu lífi - er forritað eða eftir hvaða stöðlum? Hér kemur smá fyndið; þegar minn spurði starfsfólk þar eftir hvaða lögum þau störfuðu, vissu þau það ekki.

Við vitum hvað er í pakkanum, sex sinnum meiri skatthyggja en á dögum aðalsættanna og konungsríkjanna, og minna frelsi en var hjá þeim, og fimmtán falt meira af þjóðarmorðum en var í trúarbragðastríðunum.

Eins og einhver sagði í Úngverjalandi á dögunum, við gátum kosið Orbán* á brott, en við fáum aldrei að kjósa um Úrsúlu Allsgáðu, þessa sem krafðist þess að skriðdrekum Bundeswher yrði breytt svo óléttar konur gætu verið skriðdrekaforingjar og lét herinn síðan æfa með kústsköftum, og neitar að birta upplýsingarnar um þegar hún einsömul samdi við Alfred Bourla um allsherjar genatilraun á Evrópufólki, sama sprautumeðferð og Íslenska elítan framkvæmdi hérlendis.

Manstu hvað elítan var sár og reið að Pfizer hafnaði að skyldusprauta alla borgara Íslands og að ekki tókst að fá í gegn að setja [okkur] ósprautuðu gríslíngana í gúlag?

Heldurðu ennþá að þú búir að Siðmenningu?

Ef þú veist ekki hvað er í pakkanum, þá heppnaðist uppeldið á þér, og þú trúir [líklega] að gervigreind sé gáfaðri en fávitarnir sem forrituðu hana. Já, minn hefur starfað með og kennt forriturum, og það er ekki hópur sem ætti að stjórna lífi þínu, en gerir það þó og þú veist ekki að það heitir Technocracy, því þér er kennt allt sem þú átt að vita og ef þú berð þig eftir því sem þú þarft að vita, þá eru það öfgar, óreiðuskoðanir og samsæriskenningar.

Fyrir áhugasama um Tækniræði, mælum við með viðtölum og samræðum snillínga á borð við Patrick Wood, Iain Davis og James Corbett, auk tengilsins í Global Resarch hér framar, að öðrum snillíngum ónefndum.

 

Soros batterýið eyddi aðeins 94 milljörðum dollara fyrir hönd ESB til að kaupa Úngversku kosningarnar - samkvæmt sumum - en samkvæmt öðrum aðeins tæpar 200 milljónir dollara (sem samt væru 24.999.706.000 milljónir ISK).