9.4.2026 kl. 17:29
Hvað varð um Konungsflokkinn?
Flokkurinn barðist fyrir því að Lýðveldið legði niður forsetaembættið og tæki aftur upp konungssamband við Dani, og Íslendingar nytu sömu velferðar og Færeyjar. Þá vildi flokkurinn leggja niður beingreiðslu skatta og einfalda öll skattþrep.
Loks vildi flokkurinn færa til baka allar sameiningar sveitarfélaga, sem allar hafa brugðist því sem þær lofuðu, og færa þannig Lýðræðið aftur til kjósenda og taka það frá nefndum og embættum.
Flokkurinn vildi gera að skilyrði að nýbúar fengju ekki borgararéttindi nema standast Íslenskupróf, og þá krafðist flokkurinn þess að öll eignagjöld s.s. fasteignagjöld, bifreiðagjöld, hundagjöld og þvíumlíkt yrðu bönnuð með lögum (enda eru þau brot á Stjórnarskrá).
Frétti af stofnfundi en man ekki hvar þessir þrír ætluðu að mæta. Jæja, okkur verður hvort eð er bráðum mokað inn í ESB - og kóngurinn hans hátign Friðrik tíundi er þar nú þegar - svo hálfvolgur hræringur er betri en enginn.
Má bjóða þér kanil eða púðursykur útá?
Sem aftur minnir á annað: Fyrir þá sem vilja gerast Amerískir ríkisborgarar. a) Þú flytur til Grænlands. b) Leitar uppi gömul dönsk lög sem flýta því að þú fáir samþykki sem Grænlenskur ríkisborgari (sem Íslendingur). c) Bíður eftir Trömparanum.