7.4.2026 kl. 11:24

Óreiðuskoðun dagsins - 20260407

Hnattrænum Marxistum tókst að yfirtaka stjórnkerfin, menntakerfin, fréttakerfin, samfélagsmiðlana og alla afþreyingu; heilaþvo þig daginn inn og daginn út frá vöggu til grafar OG tókst samhliða að sannfæra þig um að þeir væru ekki til.

Þvílík snilld - þú manst þetta með föður þeirra, djöfulinn, ... þegar hann gerði hið sama.

Sem minnir á annað:

Allir sem trúa á loftlagsbreytingar af mannavöldum og eru sannfærðir um að það séu vísindi, taka aldrei eftir "af mannavöldum" og fatta því ekki að hér eru um regndansa dulspeki að ræða. Þeir vita heldur ekki að stofnunin sem matar þá heitir IPCC eða að hún starfar eftir forskrift UNFCCC - og þeir hafa enga hugmynd um hvað þessar skammstafanir standa fyrir.

Reyndar er þetta örlítið að lagast og á dögunum hóf hnattræna-elítan að nota WMO í staðinn, samanber nýlega frétt frá þeirri stofnun, sem margir tóku andköf yfir. Minn hafði soldið gaman af þegar einn sambloggari hér á blog.is eyddi athugasemd varðandi "vísindin" og "mælingatæknina" við færslu sem hann blés út.

En til eru óháðir vísindamenn sem fylgjast betur með loftlagsmálum en IPCC gerir, eða UNFCCC eða WMO en komast þó aldrei í Marxistafréttirnar sem mata þig á raungusegðum daginn út og daginn inn. Á næstunni má búast við talsverðri rýni hjá þessum gaurum í WMO skýrslur undanfarinna fimm ára, og maður er búinn að setjetta á radarinn.

Ekki að það skipti neinu máli, hér í Helvíti þar sem allt er byggt á mannvonsku, lygum og ofbeldi, en maður verður að dunda sér eikkað.

 

 

Bilað fyndið í morgun, þegar Artemis deildi mynd af bakhlið mánans, Kínverska geimferðastofnunin gerði hið sama fyrir sex árum. 

Mæli með því að geimferðastofnanir heimsins kaupi betri myndavélar.

 

Uppáhalds lagið þegar minn var í afplánun, eða heilsuhæli
Ríkisins, þar sem múrarnir snúa út, en þú getur ekki útskýrt
það fyrir raunföngunum.

Góði dátinn Svejk hafði vottorð fyrir að hann væri geðveikur,
og það er ágætt að hafa slíkt, sumir hafa vottorð fyrir
að vera glæpamenn.

Til að skilja þessa vizku þarftu að lesa Birting og Góða dátann;
bækur sem þér er aldrei sagt frá, af ástæðu.

Halldór Laxness þýddi Candide eftir Voltaire ... nota bene.

Svo vitnað sé í Oscar Wilde - frægasta og skemmtilegasta kynvillíng
allra tíma, "það sem er þess virði að læra, getur enginn kent."

... eða "er þér aldrei kent."