5.4.2026 kl. 13:17
Ef þú býrð í svartholi hugans
Allir vita, sem nenna, að síðan 2008 hefur Ísland ekki getað framleitt neitt nýtt rafmagn, og þess vegna var hætt við álverið í Helguvík. Þó heldur okkar dásamlega guðdómlega elíta því stöðugt fram að hægt sé að selja rafmagn til Skotlands, um sæstreng.
Reyndar hefur umræðan um sæstreng minnkað nokkuð, eftir að rafbílavæðing landsins lagðist svo þungt á rafkerfið að það sligast undan því. Sem betur fer hefur verið hægt að dulbúa álagsbrestina með ýmsum skrítlum s.s. veðurfari og öðru.
Hið sama á við um ESB.
Við fylgdumst öll með aðdraganda BREXIT og vitum hvers vegna Bretar yfirgáfu ESB. Við sáum þegar ESB mafían þaggaði bæði NEXIT og FREXIT í Hollandi (Netherlands) og Frakklandi. Við höfum öll fylgst með hvernig ESB mafían beitir ofbeldi gegn Póllandi, Ungverjalandi og glæpsamlegum ofsóknum í Rúmeníu og undirróðri og kæfð gegn þeim sem hafna ESB inngöngu í Moldóvu.
Við vitum öll hvað er í pakkanum, við fylgdumst öll með málþófinu* þegar Miðflokkurinn skrásetti í þinginu hvaða afleiðingar Orkupakki þrjú hefði, sem allt hefur ræzt og viti menn, öll Ís-Quislíngamafían hefur staðið í stöðugum áróðri gegn lýðræðislegu málþófi allar götur síðan.
Við vitum að elíta landsins ætlar með Íslenska Lýðveldið inn í ESB, og heldur því fram að landið og ríkið sé sama fyrirbærið. Við vitum að þetta verður, og við vitum að það fer eins með ESB og BENELUX á sínum tíma, þegar allir hafa yfirgefið Evru-Sovétríkin eða þau hrunið innan frá (en hvorutveggja er hafið) fær ESB pólitískt hæli við Austurvöll.
Bottom line: ef einhver vill vita hvað er í pakkanum, gerðu samanburðarskrá yfir hvað Íslendingar græða sem a) Fylki í USA eða b) Fylki í ESB eða c) sem sjálfstætt ríkidæmi sem stjórnar sinni spillingu sjálft.
Hint: Hversu mikið meira af fiski veiða menn í Perú og Chile og hvert selja þeir fiskinn sinn án þáttöku í EES?
En það er enginn samanburður, aðeins áróður, innprentun, undirróður og raungusegð. Umfram allt, ekki við heldur elítan hefði það svo miklu betra í ESB.
Enginn ræðir hvað EES samningurinn kostar okkur í lögræði og fjárreiðum, tja einn og einn, en það ratar aldrei í fjölmiðla. Þvílík tilviljun. Rétt eins og með Covid, mest sprautaða þjóðin hefur minnsta sprautuskaðann!
Hér kemur mælistika handa þér: Ef EFTA myndi bjóða Serbíu, Georgíu og Tyrkjalandi - jafnvel Belarús - inn í EFTA (og EES) en þessi ríki myndu öll samþykkja það, væru öll vandamál leyst. EES og EFTA fengi aftur einhverja merkingu:
Allir myndu mokgræða og ESB myndi læra kurteisi. En þú getur ekki hugsað þessa fléttu né heldur skilið að þú getur það ekki. Þú hafnar því sjálfkrafa, enda bundinn við hugarblökk sem er búin til úr innföllnu þyngdarafli svarthols, sem var plantað en ekki sjálfsáð.
Rétt eins og við ræddum reglulega í vetur, og viti menn höfum séð tvo til þrjá á landinu öllu pæla í sömuleiðis, hver er samanburðurinn, USA eða ESB. Til að sjá að þú ert heilaþveginn, þarftu að líta á þrjár hliðar peningsins og finna út að jaðarhliðin á krónunni þekur 18 prósent heildar flatarmáls hennar, en 36 prósent ef þú sérð ekki bakhliðina - en þetta síðasta höfum við áður rætt um með mælingum.
Hver er mælingin? Þú þarft ekki að rýna pakkann, því mælingarnar eru útumallt. En aðal málið er nottla þetta: Hversu mörg lög Íslenska Lýðveldisins eru innflutt frá Brussel/Strassbúrg síðan 1993? Ef þú veist þetta ekki, þá muntu kjósa "já" þann 29. ágúst næstkomandi og ert fullkomlega hamingjusamur.
Í morgun var birt mynd af jörðinni, séð frá Artemis. Ef þú veist eitthvað um sólarljós og myndvinnslu sérðu í gegnum það sem birt er - og vitir þú mikilvægi þriggja sjónarhóla - áttar þú þig á að skuggahlið tunglsins er skjannabjört því enginn lofthjúpur hamlar stjörnum himingeimsins að lýsa hana upp, og að engin ljósmynd er til af skuggahlið tunglsins, þar sem reptilians frá Níbírú teiknuðu afrit af Nasca línunum, til vitnisburðar.
Fór ég nú alveg meðetta?
* Það er dálítið fyndið, hversu elítunni hefur orðið ágengt, að fá fólk til að hata málþóf í þingi og vilja láta banna það, því sömu almennir telja sig vilja lýðræði, og í samræðum við þetta fólk hefur komið á daginn, að enginn virðist vita að málþóf í þingi er ein grunn mælinga þess hvort þú búir við lýðræði eða ekki.