31.3.2026 kl. 17:53

Óreiðuskoðun dagsins - 20260331

Ef Ríkið hefur sett löggjöf um hvort þú mátt hata [eitthvað] eða ekki, þá hefur ríkið breytt sér í musteri (trúarríki) og ef þú samþykkir slíkt - meðvitað eða ómeðvitað - hefur þú gerst tilbiðjandi eða átrúnaðar dýrkandi téðs ríkis-musteris: Ríkið hefur gert sig að Messíasi og þú gerst eign þess.

Rétt er að minna á, að "Lýgveldið" þ.e. Forseti þess - tekur sér vald yfir hvaða trúarbrögð eru leyfð innan umdæmis þess, og hver þeirra bönnuð, og er þannig almáttugur guð allra [skráðra] trúarbragða í Ríkinu [en ekki í landinu].

Þú hefur þannig bókstaflega breyzt í djöfladýrkanda; því ríki sem ákveður hvað sé guðlast/hatur, hefur gert sig guðdómlegt og þar með djöfullegt, því aðeins Spámenn Guðs eða guðfræðingar ritninga (viðeigandi trúar) geta afmarkað slíkt.

Stofnun sem tekur sér þvílíkt vald, storkar Guði, og slíku horti* er ævinlega svarað á einhvern veg, og hvað "Lýgveldið" varðar, er þetta ríkjandi ástand allra núverandi þjóðríkja á jörðinni og því má búast við að téð svar/viðbragð verði [eða sé nú þegar] hnattrænt.

Ef þú skilur þetta ekki, þá hefur skólainnprentun ríkisdímonsins heppnast, og ef þú hefur lesið Bibbuna en skilur þetta samt ekki, þá hefur einhver dímon fangað huga þinn - svipað og grímufólkið fyrir fimm árum - og er byrjaður að seilast í sálina.

Ef þú hefur enn ekki fattað Vitjunartímann sem hófst fyrir sex árum, er tilgangslaust að útskýra það fyrir þér og þú skilur ekkert af framangreindu.

Annars allt í fína.

... Spennulosun*

 

 

* Hort, er horfið úr Íslenskunni, en er þýðing enska orðsins Hubris, og notum við það ævinlega í þeirri merkingu sem við lærðum af útskýringum snillingsins Ben Harnwell [1,2] sem er kaþólskur leikmaður - nægir að segja, hort er gort upp í opið geðið á Guði eða guðdómlegum vætti/vættum

* Þú manst að það er bannað taka mark á því sem við skrifum í þessum bloggi.