27.3.2026 kl. 10:04
Dýrar tilviljanir
Við vitum öll að elítan fer vel með það sem hún fær, og heldur vel á spöðunum, og hefur úr að moða alls kyns fræðum og skýrslum sér til aðstoðar, að sinna hagsmunum okkar allra, almennings fyrst, þá erlendra sjóða, og loks sjálfrar sín til afgangs.
Ljóst má vera, af öllum flóknum útskýringum í löngum og faglegum orðum, sem sífellt og endalaust sýna okkur, litla fólkinu, að elítan gerir aldrei nein mistök og er verulega vel gefin í alla staði, allt sem hún gerir sé yfirveguð reynslurík fágun og því eru téðar tilviljanir fullsannaðar og afar viðsjárverðar.
Niðurstaðan er sú baráttan er gegn alls kyns tilviljunum - og öðrum illum áhrifum - sem sífellt sækja að ráðstjórn hennar og fórnfýsi, og eru afar skæðar. Lausnin hlýtur því að vera sú að greiða enn fyrir sókn hennar í djúpar pyngjur okkar vitgrannra smámenna - sem enn höfum efni á Snjallsímum og Teneferðum - mæli því með að hækka Skrefaskatta, útvíkka Gistigjöld og bæta inn Sólarálögum við Loftskattana.
Ljósengillinn Samael, birtist þá Spámanni Guðs, Jósúa Maríusyni, og hreif hann með sér upp á ógnarhátt fjall af útskýringum, vísindalýsingum og reglum, þaðan sem sáust allar dýrðir (Splendour) mannheima og sagði við hann, "allt þetta er mitt, og ég veiti þér vald yfir því, ef þú aðeins eflir hagsmuni mína." Jósúa svaraði þá að bragði, "vík brott, Samael, efla skaltu hagsmuni Skapara Alheimsins, og hans eingöngu."
Hverjum er ekki sama - í innfallinni siðmenningu - að tekjuskattsþrepin eru ólögleg samkvæmt Stjórnarskrá "Lýgveldisins" - rétt eins og allir eigna og ferðaskattar.