18.3.2026 kl. 10:16

Hvað er illur andi

Í hvaða anda var bókin skrifuð, hvaða andi var yfir samkomunni - s.s. partýinu eða fundinum - og hvaða andrúmsloft ríkti í sambúðinni? Við þekkjum þetta öll, og það skiptir engu máli hvort illi andinn er hugmynd, hugarástand, andavera eða ásetningur; því hugmynd getur verið vitundarhvati, eða hreinlega vitund. 

Þetta höfum við rætt í þaula í Arkívinu, þar sem fullyrt er að hugtak geti öðlast vitundarlíf - og það er ekki langt frá sumu sem t.d. Chabad Rabbínar útskýra varðandi engla hugtakið - og reyndar eru margir siðfræðingar og dulfræðingar* Eingyðistrúarinnar sem hafa tekið í svipaða strengi.

Tökum sem dæmi frægan vírus, sem fólk ranglega uppnefnir covid vírusinn, en rétt fræðiheiti er Sars-CoV-2. Svo til allir á jörðinni trúa að hann sé til, en þó hefur enginn sannað tilveru hans, og þeir sem reynt hafa að smita lífvef með ætlað-smituðum lífvef, þeim hefur mistekist.

Það er áhugavert út af fyrir sig, að þeir sem eru sannfærðir um tilvist þessa kvika hugtaks sem hefur hreyfivirkni á huga fólks og ríkjakerfi eða siðmenningu þess vita ekki hvað illi andinn heitir né heldur hvað útgáfa eitt hét. 

Fyrir vikið veit enginn hinna trúuðu, hvernig útgáfa eitt og síðan útgáfa tvö, voru uppgötvaðar, og þaðan af síður að hvorugur eitraði andinn hefur verið sannaður. Hér segjum við eitraði, því þetta kvika hugtak hefur eitruð áhrif á hugarástand og lífsferil bæði þeirra sem trúa og þeirra sem hafna andanum en þurfa að samneyta við trúarköltið.

Ennfremur, er hér dálítið fyndið, að frægasti vírusa-uppgötvari allra tíma, hét Luc Montagnier og uppgötvaði hinn fræga HIV vírus, sem ætlað er að valdi AIDS sjúkdómnum (en færsluhöfundur þekkti persónulega tvo fyrstu mennina sem dóu úr AIDS hérlendis), gat aldrei sannað tilvist HIV. Síðar kom einn færasti vírusafræðingur heimsins, Judy Mikovits og viti menn, hún gat einangrað og sannað HIV vírusinn, og hún bætti um betur, og bæði uppgötvaði og sannaði XMRV vírusinn sem er hugsanlega einn skæðasti eitur-andi vírusasögunnar.

Enginn trúaðra vita hver Luc Montagnier var, eða af áhugaverðum rannsóknum hans á flutningi DNA mengja um vatn, eða hver Judi Mikovits er, eða hvað er merkilegt við illa andann XMRV.

... og viti menn; hinir föllnu englar, sem stjórna dýrðum (Splendours) Samaels, og heimskerfi samtímans, stilltu upp öllu hnattræna kerfinu [sínu] þannig upp, að hafir þú ekki rannsakað þetta, og vitnað, hefurðu afsneitt eigin vitund og afhent

Það að þetta er áhugavert, væri óumdeilanlegt, værum við ekki í Helvíti, og ef einhver vísindi væru virt á í hinum svokallaða siðmenntaða upplýsta Veruleika, væri þetta á allra vörum nú eftir stærsta og umfangsmesta og best heppnaða "scam" allra tíma.

Nú veistu bæði hvernig þú getur einangrað og afmarkað illan anda, svo og skilgreint trúarkölt miðalda og hvernig hvorutveggja er alvarlegra vandamál í dag, en var á miðöldum. Þetta er eins og þegar elítan fer með þig í ESB eða Nató, þér verður sagt að þú hafir val, en það eina sem þú getur - um sinn - er að kommenta.

Svo hvaða illi andi umbreytti "elítan hefði það svo miklu betra í ESB" yfir í "við hefðum það svo miklu betra í ESB" eða hvaða Við?

 

Úr einu í annað:

Fyrir fáeinum vikum fór að heyrast í einni af þrem viftum daglegu tölvunnar, svo minn fletti upp í PDF skjali frá framleiðanda og pantaði síðan nýja, sem kom í hús fyrr í vetur. Áður hefur verið skipt um hinar tvær, skipt um diskinn og settir tveir ssd í staðinn, minnið hámarkað, og vélin almennt unnið vel, síðan hún var keypt notuð, en úbbs, í morgun birtust villuboð á panel framan á henni, svo minn opnaði hana, tók téða viftu úr, en átsj, sú nýja passaði ekki við, svo sú gamla var hreinsuð og sett aftur í, og nú var rétt pöntuð samkvæmt miðanum á gömlu, og hey; vélin fór í gang án villuboða, svo ekki var um annað að ræða en rita um illa anda í tölvum, á táknmáli, eða þannig

 

 

* Dulfræðingar er á ensku Mysticalists, samanber að dulspekingar eru Mystics. Fyrra hugtakið er Guy Ellis Exlusive í menningarsögu, í það minnsta undanfarin 2500 ár, og vandlega skilgreint í Arkívinu. Það tengist opinberunum frá 2012-2014 varðandi annars vegar Ljósenglana sjö og hins vegar Innsiglin sjö (logostal.com og Arkívið). Það er soldið þannig með opinberanir Eingyðisvættarins, að því einfaldari sem þær virðast í fyrstu, því stærri undursali opna þær þegar speki þeirra er rakin, s.s. Jeremía og Ezekíal ræddu vandlega.