15.3.2026 kl. 11:18

Ranghugmynd dagsins - 20260315

Ef þú trúir ekki að elítan elski þig, og viti allt best, hvers vegna borgar þú henni aleiguna, lætur hana ala upp börnin þín, og ferð í sprauturnar hennar, eða heldur með sumum sem fara í stríð hennar og gegn sumum öðrum sem fara í stríð hennar, eins og leirmenni og bergmálsdýr?

Annað hvort viðurkennir þú elítuna sem guð þinn og almætti, eða yfirgefur musteri hennar. Einföldun; annaðhvort brýtur þú skurðgoð þín sem eru blind og vanmáttug sem þú sjálfur, eða snýrð þér til Náðar og Eflíngar Skapara Alheims. 

Hér er enginn millivegur. Lyklarnir fjórir - Bæn, Iðrun, Vitnisburður, Fyrirgefning - eru mesta verkfræði sem upphugsuð hefur verið frá upphafi Alheims og framúr. Öll önnur verkfræði - og dýrðir - snúast um að veiða þig út á breiðstræti, og yfirgefa Leynifélag Guðs.

Sál þín er á vog.

Hitt er svo annað, að þú hefur enga hugmynd um hvernig þú yfirgefur völundarhús sjöþúsun spegla, og veizt hvorugt, hvað þá hvernig það var afrekað.

Því raunsæi er háð Náð, þúveisthvers.

 

 

Á persónulegu nótunum:

Hlustendur eða notendur Arkívisins kannast vafalaust við þegar við fyrir sjö til fimm árum ræddum öðru hvorum um Úranus, og komumst síðar að bor-gusunni á sautján tíma fresti sem staðfesti margt sem um var rætt, ennfremur að við ræddum reglulega að Úranus og Neptúnus væru ekki gas-risar heldur úr steinefnum, og sérstaklega ræddum við Úranus. Á dögunum birti Nasa nýlegar greiningar sem staðfestu þetta. Fyrir lengra komna, er hér djúp tenging við Blue Fusion málefnið, sem við ýjum að öðru hvoru - agndofa (Dumbfounded) frekar en hitt - og enn sem komið er og hugsanlega aldrei teljum oss umkomna að útskýra. 

Svo er annað - varðandi viðhorfin, stílinn, og efnistökin, hér í Spennulosun.

Eitt sinn sagði Búkolla við Karlsefni, taktu hár úr hala mínum, og leggðu á milli þín og leirmenna þeirra og bergmálsdýra sem eigi hafa stjórn á tilfinningum sínum og hugrenningum, og mæli ég svo um að þau verði að ókleifum torskildum orðaás er enginn kemst yfir nema sá er sér og metur hesið mitt.

Mjög einfalt. 

Því hvað getur fyrrum fjósamaður gert, hafi hann álpast til að gæta kúnna á nýársnótt?