14.3.2026 kl. 22:21

-sjúklega píkubrellan-

Undanfarin hundraðogellefu ár hefur Sykkós-Pikkós brellan stillt upp öllum landamerkjum Vestur-Asíu, og tengdar flækjur - fyrst upphugsaðar af Tómasi nokkrum Lárens - stýrt fjárhags- og stjórnsýslu auðlinda-ryksugum svæðisins; allt í vasa Mountbatten-Windsor ættarinnar.

 

 

Téð ætt er sú sem þrívegis reyndi að gera Íslensku eyjuna að Bresku héraði, og þrívegis var skák og mát af Glücksburg aðalsættinni, sem um þessar mundir titlast sem konungsætt Danmerkur í Amelíenborg. 

Þú veist ekkert um téð þrjú sagnfræðilegu tilfelli, sértu fæddur eftir 1930, enda alinn upp af Ís-Quislíngum Bresk-Bandaríska hernámsins. Þvert á móti, hefur þeirri sögu ýmist verið snúið í andstæðu sína með raungusegð (Dialectics) eða falin með orðavaðli og jaðarsetningaflækjum.

Þér er heldur ekkert sagt um Sykkós Pikkós - eða helsjúku-píkubrelluna - með síendurtekningum hernaðar- og íhlutundar afskiptum M.W. ættarinnar og mismunandi vélabrögð og blórabrellur.

Enda þarftu ekkert nema snjallskjá, Teneferðir, og QRkóta með skrefamæli, fullsprautaður, og sáttur, búinn að afhenda riddara hans hátignar Karls III, William Henry Gates III*, eignarétt á genamenginu þínu.

Já, Gates er riddari Mountbatten-Windsor ættarinnar! Það hefur merkingu fyrir þeim,
þó þú vitir ekkert og skiljir minna, elsku litli kosníngakúturinn*.

Ó, þeir tengjast í gegnum Epstein - ó mæ ó mæ ...

Sorrý.

Svo vitnað sé í meistara Julian Fellows, þegar Brytinn sagði við Bílstjórann; þau hafa fengið að reyna allar brellur, og þau sjá þig koma löngu áður en hugmyndin fæðist hjá þér.

Bilað fyndið alltsaman, grátlegt, en fyndið. Í stíl Önnu Jónsdóttur frá Heiðarkoti, sem flutti til Bretlands og ritaði undir heitinu William Shakespeare. Til að afsanna þá uppljóstrun, þarftu fyrst að finna handritin!

Hitt er annað. 

Síðan haustið 2023 hafa um það bil 400 milljónir manna (karla og kvenna) í Vestur-Asíu, rætt opinskátt í grasrótarstjórnmálum allra landanna þar - og jafnvel opinberlega; að tími Sykes-Picot brellunnar sé liðinn. Saga þessarar brellu er blóði drifin, og hafa um þá sögu verið ritaðar margar bækur, og gerðar margar heimildarmyndir; dugar að segja, að sagan er blóði drifinn hryllingur í blóra okkar vestrænu sjálfumglöðu siðblindu, en velsæld okkar og bleikur bómull í rassbótum okkar, er greiddur með téðu blóði. Aukinheldur hefur þér verið uppálagt að hata og fyrirlíta alla þá sem streizt hafa á móti ofbeldi okkar á þeim.

Þú ert nú að sjá á þessa umræðu staðfærast (Manifest) í allskyns fréttum - og viðburðum - en með öðrum orðabrellum (word codes, spells). 

Sem minnir á annað; fyrrnefnd Mountbatten-Windsor ætt, sem ræður þrem ríkustu fjárfestingasjóðum mannheima - og meirihluta alls sem gerist á jarðarkringlunni - ákveður á næstunni hvort Íslenska Lýðveldið verði ESB hreppur - með undirskrift Marsípankleinunnar* - en þú munt ekki sjá það orðað þannig, og tæpast trúa brellunni, þó hún væri útskýrð með dropateljara.

Sem minnir enn á annað - við spáðum því á sínum tíma, að téð marsípankleina myndi leggja Lýðveldið niður. Spennan eykst ...

 

 

mark-of-the-beast

 

Á persónulegu nótunum - fyrir þá sem vita af staðhæfingum okkar (og ítarlegum útskýringum í Arkívinu) á dæminu varðandi svörtu orkuna og Píramídana. Minn hefur rekist á, án þess að leita það uppi, í það minnsta tvo, jafnvel fjóra, höfunda sem (að því er virðist óvart) hafa fært vísindaleg rök fyrir tækninni sem gerir dæmið kleift, og er þessa dagana að lesa rannsóknir þeirra, agndofa. Flest af því tengist inn í Blue Fusion fléttuna, sem við höfum hægt og rólega verið að fatta undanfarin sjö ár, en langt langt í frá hægt að útkýra, í það minnsta enn sem komið er ef nokkurn tíma. Eitt er þó ljóst, Nephílímarnir reyndu að drepa bæði englana og föllnu englana, á sínum tíma, sem er bilaður snúningur, og viti menn, téðir ótilgreindir höfundar rákust á vísbendingarnar um það en minn er ekki viss hvort þeir hafi séð allan vefnaðinn. {World Wide, Historical, Exlusive Guy Ellis analysis!}

Minnum á að þegar Guð ruglaði skilnings- og tjáningargetu Nimrod mafíunnar - sem nú ræður 79 alþjóðastofnunum ný-babýlóníu - lét hann þá opinberun til Spámanns síns, að þeir gætu annars framið hvaðeina sem þeim hugkvæmdist. Djúpt stöff. Munum að Nimrod - ættfaðir Hammúrabís og flestra valda-blóðlína jarðar - veiddi fólk upp í opið geðið á Guði: Sem heimskerfið hefur nú ástundað af ráðagerðum ásetningi - deliberate intent (ásettu ráði) - og djarflega, síðan 1919, um allan heim, og gert öllum ófært að yfirgefa og flýja út á mörkina. OG, notað skólakerfi og hollývúddkerfi til að fjarlægja getu fólks til að biðla til Guðs um útskiljun* (Deliverance) úr ánauð og kúgun til mannvirðingar (Frelsi) iðkunar-tilbeiðslu* á Skapara sínum.

Það er soldið þannig, þegar maður er kominn á grúfu í mölina, steinvölur vita stöff. Meðal annars höfum við í tengdum rannsóknum rekist á að í fyrra sinnið sem Móse fór á fjallið, var Guðdómlegi Sáttmálinn ritaður á risastórar saffír töflur (Sapphire). Minn man ekki hvort það kemur fram í Arkívinu, en held það þó, að minn hefur lengi verið á þeirri skoðun, að fyrri útgáfa og síðari útgáfa sáttmálans sé ekki sú sama. Þá er einnig áleitið, hvort Guð hafi notað myndmál frekar en fónískt, svo elítan þyrfti ekki fyrst að kenna lestur, sem er áleitin hugmynd, en reyndar auðhrekjanleg í ljósi útskýringa ýmissa eingyðis-heimspekinga; efni sem ekki verður rætt í Spennulosun.

 

* Færsluritara finnst bilað fyndið að Gates, er næstum alnafni William Henry Cosby Jr. - og í nafni þeirra eru jafn margir bókstafir, enda tengingin soldið sjúkleg.

* Kosníngakútur; dirty peasant.

* frádilkun/útdilkun/útskiljun - deliverance

* Tilbeiðsla er einnig efling hagsmuna. Samanber, laun þjónustunnar, er þjónustan sjálf. S.s. Bibban og Kóraninn útskýra, að játa trú er einskis virði án iðkunar (og getur því snúist í andhverfu eða andstyggð) ...

* Þú veist hvernig fjárfestinga- og marsípankleinan hefur unnið með öðluðum þjónum M.W. ættarinnar og grætt feitt, eþaggi?