2.3.2026 kl. 16:29
Ranghugmynd dagsins - 20260302
Það fyrsta sem kom í hugann, við fréttina að Khamenei hefði verið drepinn, var "hvers vegna var hann staddur þar sem hann vissi að hann yrði skotmark." Komið hefur í ljós að hann var svo gott sem búinn að útskýra það áður en átökin hófust.
Hann vissi að þeir myndu breyta honum í píslarvott og hann vissi hvað það myndi tryggja, ekki aðeins fyrir Íran, heldur Vestur Asíu (Miðausturlönd) og fyrir tvo milljarða múslíma í heiminum.
Scott Ritter virðist vera á sömu skoðun:
Hið áhugaverða er að bera þessa pælingu saman við umræður Ízzlenskra menningarleiðtoga, og svo þú skiljir ögn betur; hver einasti Íslendingur - eða Gáfnaljóslendingur - trúir að til sé fyrirbærið "Klerkastjórnin í Íran."
Sem minnir á annað, ótengt efni, í minningu Daviðs Oddssonar, snjallasta Trotský-kommúnista sem vesturlönd hafa átt, næst á eftir Toný Blair; þegar hann sagði "við borgum ekki skuldir óreiðumanna" en það er setningin sem kom mér fyrst upp í hugann þegar "Kílómetragjaldið 666" var sett á, að nú fáum við öll að borga óreiðureikninga kommúnismans.
Viðbót - 19:31 - jafn gaman mér finnst að benda fólki á að D.O. var kommúnisti, svo Leirmenni og Bergmálsverur hnussa af upplýstri fyrirlitningu - þá vil ég taka skýrt fram, að ég ber mjög djúpa og einlæga virðingu fyrir ævi, störfum og minningu Davíðs Oddssonar og ég er mjög leiður að hann dó svo snögglega, aðeins 78 ára.