2.3.2026 kl. 02:53
Haltir leiða blinda
Hannes Hafstein var einn virtasti stjórnmálamaður Íslendinga fyrir rúmri öld, hann var einn af fyrstu Íslendingunum sem Danir eftirlétu að stjórna málefnum Íslendinga og var mun öflugri sveifarás í sjálfstæðisbaráttunni 1850 til 1918 en fjölnismaðurinn* Jón Sigurðsson, hugsanlega jafn öflugur og Einar Ben*.
Hannes var þó ekki blíðviðris maður og margir deildu hart á hann og oft voru persónulegar svívirðingar á milli manna. Þegar einn óvildarmanna Hannesar var látinn, minntist Hannes aðeins á hann með virðingar og minningarorðum, og þegar hann var spurður hví hann fegraði minningu hans eftir öll þau óvildaryrði sem á milli þeirra höfðu áður farið, svaraði Hannes á þá leið, sumt nær ekki yfir gröf og dauða.
Við höfum áður minnst á - og menningarlega útskýrt ástæður í Arkívinu - að fortjaldið* hrundi af ómenningu samtímans þann 11. mars 2020. Blindir og vithaltir sjá þó enn fortjaldið eins og það sé enn þá uppi við, en aðrir sem sjá nú sorann sem áður var hulinn, skilja ekki enn að náð Raunsæis var afnumin árið 2019, þegar Guðdómlegur vitjunartími hófst.
Eitt einkenna er að jafnvel sómakærasta fólk, sér ekki lengur að sómi þess hefur umbreyzt í ósvinnu.
Undanfarin misseri eru stjórnvitringar Vesturlanda - og þá sérstaklega Marxistar og Zionistar - hættir að fela siðleysi sitt, og Almenningur þeirra farinn að dásama eigin siðblindu. Ekkert lát er á að leiðtogar og stjórnmálamenn séu drepnir hvar sem til þeirra næst, ef ekki með launmorðingjum, þá með stórvirkum stríðsvélum.
Þá virðist í okkar þróaða og upplýsta tæknisamtíma, vera í lagi að fremja hvaða lögleysu og siðleysi sem er, svo fremi settur sé á það nógu ósvífinn og óraunsær stimpill. Ef þú t.d. gagnrýnir stríðslæpi tiltekins ríkis, þá ertu vinur tilgreindra terrorista og mátt þakka fyrir að halda Debet kortinu.
Rétt eins og á miðöldum, ef þú trúðir sólmiðjukenningu Kópernikusar, misstir þú réttinn til að vinna fyrir þér eða versla þér í matinn.
Hefðbundnir og agaðir hættir í erindrekstri (Diplomacy) og ríkissmiðjum, eru fyrir bí, eftir situr áróður, heilaþvottur, ofbeldi og sundrung. Engum er lengur treystandi, barnaníðingar (Pedophiles) vaða á [valda]súðum eins og þeim einum er lagið og menningarrýnar* fjölmiðla og annarra rása láta eins og þeir séu ekki til.
Undanfarinn sólarhring hefur færsluritari séð til fjölda menningarleiðtoga Íslendinga ausa úr eigin innri sora yfir minningu eins Þjóðarleiðtoga í fjarlægum heimshluta, sem drepinn var af stórvirkri stríðsvél nú um helgina. Stófelldar staðhæfingar um manninn og dónalegar aðdróttanir um persónu hans og æviferil, eru svo ljótar og skrumskældar að maður getur varla á hlustað né lesið, óskaddaður.
Nottla þarf maður að taka fram, að hér er ritað af hlutleysi í bæði alþjóða- og trúmálum.
Enginn virðist muna, undanfarin misseri, t.d. að í Almennum Hegningarlögum er skýrt tekið fram að tala beri af virðingu um erlenda þjóðarleiðtoga, en því miður virðast Almenn Hegningarlög á Íslandi vera valkvæðar tillögur þegar elítan á í hlut.
Sem minnir á skálkaskjólið og blórann, Stjórnarskrá Lýðveldisins 1944, sem skýrt tekur fram að ritskoðun sé bönnuð hérlendis, en menn verði að bera ábyrgð á orðum sínum, sérstaklega þegar kemur að almennri velsæmiskennd. Hingað til hefur þetta verið túlkað þannig, að þú getir leyft þér að segja hvað sem er, en gæta verði að persónulegum meiðyrðum. En þetta hefur snúist á raunguna (Dialectics) á Skríllandinu, Íslandi, sem sett hefur lög er leyfa elítunni að flokka hvað sem ég og þú segjum/skrifum, sem ólöglegt hatur, en sjálf má hún ausa úr sér hvaða óþverra sem sýnist.
Þá minnum við á, enn á ný, að Almenn Hegningarlög leggja blátt bann við að skaða Hlutleysisstefnu Íslenska Lýðveldisins í Alþjóðamálum, og minni ennfremur á að sett var það skilyrði við þáttöku Íslenska Lýðveldisins í Nató, að eingöngu væri um að ræða þáttöku er kæmi að vörnum landsins sjálfs en ekki þáttöku í neinum öðrum hernaðar aðgerðum Nató.
Það er ekkert að marka lög innlendu elítunnar, og réttarkerfi hennar og upplýsing, eru hráki og gall, rétt eins og fóstru hennar, heimselítunnar allrar.
Hræsni á Íslandi, er orðin að þjóðaríþrótt, og þegar [sið]haltir leiða [sið]blinda, enda báðir í handraða glatkistu örlaga og forsjónar.
* Leirmenni og Bergmálsverur gera ekki greinarmun á Fjölnismönnum og fjölnismönnum, og óþarfi að útskýra muninn hér, fyrir hugstola (Depraved, Depraved, {Siðstolna})
* Einar Ben var sniðgenginn af Ís-Quislíngum á Alþingishátíðinni 1930, þar sem eitt ljóða hans var þó upplesið. Enn í dag eru vangaveltur Einars langt á undan okkar eigin samtíð. Þegar Þjóðveldið var endurreist - löglega og lögmætislega, hvatt af Vættum - var Hvítbláinn, sem Einar er höfundur að, kosinn Þjóðfáni Endurreists Þjóðveldis 2013.
* Fyrir þá sem ekki vita hvað átt er við með fortjaldið, sorrý, það tekur því ekki að útskýra.
* Sumir þeirra menningarrýna landsins, sem hér eru gagnrýndir, hafa verið duglegir síðan 2008, að slá sér á brjóst varðandi réttlæti eftir Hrunið 2008, en ekki einn þeirra hefur viðurkennt að Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell séu eða hafi verið til eða hreyft við því graftarkýli - en nóg var hún hneyksluð fyrir fáeinum árum þegar tveir afplánaðir glæpamenn fengu að vinna fyrir sér á ný - en elítan hefur nýverið líkt grúski í Epstein flækjunni við samsæriskenningar og rússaást. Ef þetta hljómar eins og Íslenska elítan sé pedófíla hjörð, þá ert það þú sem ert að hugsa það, því við sögðum ekkert.