1.3.2026 kl. 20:42
Ranghugmynd dagsins - 20260301
Árið er 1950 og öll Íslenska þjóðin er tvítyngd, altalandi á bæði Dönsku og Íslensku. Þjóðin sem er örsmá samanborið við hinar Norðurlandaþjóðirnar nýtur virðingar meðal systurþjóða sinna, fyrir árvekni, sjálfsvirðingu og dug, og að hafa þrátt fyrir örbirgð og sveppasýkingar í þúsund ár í daunillum moldarkofum, hafa varðveitt Lögspeki ein þjóða, ásamt og Sagnahefð heillar heimsálfu.
Þá hafði þjóðin bæði reisn og djörfung, á tákrepptum kindarskinnsmokkasínum og grábrúnum hvítmynstruðum lobbum.
Árið er 2026, og allar götur síðan 1950, hefur "þjóðin" verið mötuð á Bresk-Bandarískri afþreyingu af öllu hugsanlegu og óhugsanlegu tagi, heilaþvegin af menntakerfi og hugveitum Bresk-Bandaríska heimsveldisins, verið gefin öll þau bestu lífsþægindi sem hægt er að ausa yfir nokkra þjóð - frítt og fyrirhafnarlaust - mötuð á allskyns þvættingi um sjálfa sig og svokallaðar auðlindir.
Samtímis þessu, er "þjóðin" greypt í mesta skuldafen og ánauð sem nokkru sinni hefur þekkst í mannheimum; með eigin samþykki, dofin af snjallskjám og Teneferðum, loks sett í km666 gálgann, lodduð inn í 15 mínútna hverfi, og á næsta leyti afhent ESB bákninu.
Fyrir áratug, útskýrðum við með ítarlegum og vönduðum útskýringum - í Arkívinu - að "hin Íslenska þjóð" væri ekki lengur til. Mannsöfnuðurinn sem býr þetta land, og nefnir sig þjóð, veit ekki hver hún er, hvaðan hún kemur, hvar hún stendur, hvert hún stefnir, og hún stendur fyrir nákvæmlega ekki neitt og fellur* því fyrir hverju sem er.
Það tók aðeins tvær kynslóðir að drepa menningu [þjóðar] okkar og telja henni trú um að hún væri þó ekki umskiptingur. Við óskum 1717 bræðra-klúbbnum í London til hamingju með árangurinn.
Ef hér er ekki augljóst samsæri á ferðinni, þá veit ég ekki hvað samsæri er. Og ég minni því alla fimm lesendur mína á, að þetta er Spennulosun eingöngu, og að bannað er að taka mark á nokkru því sem ritað er á þessum bloggþræði, enda tökum við ekki mark á sjálfum okkur.
Fyrir fjórum árum hafði ég bara tvo lesendur. Ég vil því minna hina þrjá útsendara sem bæzt hafa í hópinn, að þeir hafa ekki sótt um lesleyfi og eiga því martraðir vísar.
Ef hinir tveir fatta samsærið, þá þarf ekki að útskýra fyrir þeim hvernig vélráðin voru hönnuð, útfærð og framkvæmd, en við höfum áður birt mynd af [Ís-]Quislíngunum fimm sem lögðu hornsteinana.
En dokum við ...
Hér kemur rúsínan í pylsuendanum; hver er sá vitundarlogi sem vættir lands og þjóðar földu þjóð vorri til varðveizlu sem þurfti svo umfangsmikið djúprist og vandað samsæri til að reyna að pjakka úr fellinu?
Hver er leyndardómur Svans á Svanshóli?
Manstu hvernig spögelse varð að spaugildi? Dáldið fyndin dýpt ...
* Eða; fellur um hvað sem er.