28.2.2026 kl. 14:21

Ranghugmynd dagsins - 20260228

Ríki, sem slíkt, er ekki til í efnislegum [áþreifanlegum] veruleika og er að öllu leyti óáþreifanleg eða frumspekileg (Metaphysical) hugmynd*. Stofnanir Ríkis og liðsveitir s.s. embættismenn, ríkisráðsmenn, lögreglumenn, hermenn, og aðrir starfsmenn, eru því fólk sem staðfærir (Manifests) téða hugmynd.

Hér er áhugavert, að þegar þú segir við "uppfrætt" fólk að "ríkið sé ekki til" horfir það á þig eins og þú hafir staðhæft augljós rangindi.

Taki þessi staðfæring eða myndbirting hugmyndar, sér Guðdómlegt vald - sem öll núverandi ríkiskerfi og alþjóðleg kerfi eru sek* um - gerist hugmyndin að öllu leyti Satanísk, og umbreytist í skurðgoð. Hver sá sem þjónar slíkri hugmynd er því bókstaflega tilbiðjandi Satans, auk þess að vera Skurðgoðadýrkandi.

Ekki er hægt að trúa á [veraldlegt] Ríki eða efla hagsmuni þess, án þess að vera kommúnisti.* 

Til er ein undantekning* á framangreindri [ríkis] uppskrift en öll hugmyndafræði undanfarnar sautján til átján aldir hefur haft það eitt að markmiði að þú hvorki skilur það sem hér er útskýrt né heldur undantekningu þess eða hvernig hún er eða væri þekkt. Þetta er samsærið um hugann.

Við höfum áður tilgreint að öll samsæri í Sögunni vaxa upp af tvennum rótarsamsærum - og höfum útskýrt [nokkuð] ítarlega í Arkívinu - samsærið um hugann og samsærið um Sálina. 

 

 

Allt saman frekar fyndið ef maður næressu.

Aðalatriðið er þó, að ítarlegur vitnisburður um þetta var framborinn englum, föllnum englum, dímonum, dísum, [grunn]vættum, mönnum og Guði, áður en Vitjunartíminn hófst! Vitnisburður Spámanns Guðs er ævinlega undanfari Guðdómlegs Vitjunartíma.

 

 

* Guðleysingjar (Atheists) segja oft með þjósti að Guð sé aðeins útdregin hugmynd (Abstract concept), en þeir sjálfir tilbiðja Ríkið og Vísindi þess en hið síðara er aðeins hugmyndafræði og á ekkert sameiginlegt með Náttúruspeki (Natural Philosophy) sem aftur er fyrirbæri sem tilbiðjendur Vísinda vita ekki hvað er.

* "Sek um" eða hafa umbreyzt í viðurstyggð á helgum reit, og ber því að flýja/yfirgefa.

* Feitletruðu orðin eru lykilatriði. Munum að við notum "tilbeiðslu" í merkingunni efla hagsmuni, tilvist, afl, ...

* Téð undantekning sú sem minnst er hér á, er útskýrð í Arkívinu, en aðeins að hluta, því ekki má útskýra hana of vandlega, hún uppgötvast þó séu lyklarnir fjórir beislaðir - Bæn, Iðrun, Vitnisburður, Fyrirgefning - bezt á grúfu í möl en líka gott á hnjánum.