27.2.2026 kl. 04:53
Ranghugmynd dagsins - 20260227
Þar sem við erum nú loksins farin að borga fyrir vegakerfi, má gera ráð fyrir að Vegagerðin fari að laga alla ónýtu þjóðvegi landsins og gera þá nýtanlega, og væntanlega tvöfalda hringveginn.
Þetta er svipað og með regndansinn (af mannavöldum) og aðra galdra; veturinn hefur verið svo mildur hjá okkur og snjóþungur hjá Rússum, að minn grunar að loftskattarnir séu að virka.
Sem minnir á annað; ef Ríkið greiðir erlendum aðilum skatta, hver á þá Ríkið, eða réttara sagt, í hvaða valdakerfi er Ríkið óbreyttur þegn? Þar sem starfsmenn erlendra stofnana (eða starfsemi téðra stofnana hérlendis) hvorki greiða skatt hérlendis né er eða verður lögsótt fyrir glæpi, þá er nokkuð ljóst að elítan er ekki Elítan nema vélítan sé.
Eða kannski allt saman barasta lýgi ...