25.2.2026 kl. 22:13
Ranghugmynd dagsins - 20260225
Þau sem trúðu lýginni, eru komin í næstu lýgi, fullkomlega áhyggjulaus (og rúin inn að skinni) meðan við sem sáum í gegnum lýgina erum enn í uppnámi en ekki yfir lýginni sjálfri heldur því hversu skelfilega hættuleg siðblind hjörðin og siðlaus elíta hennar eru.
Hér í Helvíti er tvennt sem þú getur hvorki trúað né unnið úr, að þú sért dáinn og vistaður í Helvíti og að Píramídarnir halda þér þar. Þú getur trúa öllum öðrum hugmyndum hér og unnið úr sumum en þróað aðrar. Þessar tvær ræður hugur þinn þó ekki við, en bezt af öllu er að þú hvorki veizt það né skilur.
Ef þú hins vegar fattar að þú ert nú þegar í Helvíti, þá fattarðu eina flottustu hugsun sem hægt er að vinna úr, hún er djúp, einföld og tær, og absolutely brilliant. Eftir það, sértu á grúfu í mölinni, birta steinvölurnar fleira, yfirleitt sérsniðið en þó ekki allt.
Neibbs, þú verður sjálfur að telja grjótið í Wales. Þú færð engin frekari hint.
Sem minnir á annað.
Minn hefur enn ekki greitt fyrsta klílómetra seðilinn. Hreinlega fæ mig ekki til þess ... ég er soldið veikur, þannig séð, og svo eru allar ranghugmyndirnar óafgreiddar.