21.2.2026 kl. 21:08
Brosleg geislavirkni
Við ræddum fyrir fáeinum árum ítarlega um geislavirkni á landinu, í Arkívinu. Einnig keyptum við tvo geislavirknismæla, annan rafrænan sem tengst getur tölvu og skráð "log" fyrir mælingar og hinn var notaður analog mælir keyptur úr notkun frá Ameríku og gefinn vini. Við höfum mælt geislavirkni og - sem fyrr segir - skráð í Arkívið.
Málið er einfalt: þú annaðhvort rannsakar sjálfur eða lætur mata þig.
Douglas Adams gerði skemmtilega grín að leir og bergmáli, í Dirk Gently-s Holistic Detective Agency. Óðinn sem kominn var á elliheimili af persónulegum ástæðum en ekki fyrir elli sakir, hafði sent Þór til Wales á Bretlandseyjum, að telja grjót.
Þegar Þór var síðar spurður, hversu mikið af grjóti væri í Wales, svaraði Þór að bragði, þú getur talið það sjálf.
Því meir sem maður lifir og lærir, sér maður hversu mikill snillíngur D.A. var því nærfellt allt í Sögunni er þar á einn eða annan hátt sett inn í smávegis skrípó, en af dýpt sem blífur. Áhugaverðast er þó, að þeir sem reynt hafa að gera bíómyndir eða sjónvarpsseríur úr svörtum húmor hans, hafa aldrei náð að gera vel né áhugavert, annaðhvort af aumingjaskap eða yfirlögðu ráði.