21.2.2026 kl. 19:46

ÍsQuislíngar og drápið á Norður-Evrópskri menningarvitund

Fyrir sléttum hundrað árum talaði flest fólk í landinu dönsku, og margar fjölskyldur æfðu hana um helgar. Tæpri öld áður var Íslenskan á undanhaldi og viti menn, Danskur grúskari sem lærði Íslensku af Íslenskum námsmönnum í Köben, var aðal hvatinn að því að Íslenskan var ræktuð upp.

 

 

Síðan gerist tvennt. Innlent landráðafólk - Quislíngar - vélar Íslendinga tvívegis til að hafna sínum eigin siðgrunni - sem enginn í dag veit hver er - og síðan Bresk-Bandaríska Hernámsvélin hannaði "Íslenska Lýgveldið" árin 1942 til 1944, hefur sameiginlegum siðgrunni okkar og hinna Norðurlandanna verið kerfisbundið útrýmt, og leiðinlegir dönskukennarar verið helsta vopnið.

Hér er merkilegt að mennirnir fimm sem notaðir voru við siðgrunns-vélráðin, eru óþekktir í dag, rétt eins og faðir Íslenskunnar*, Rasmus Rask! En við birtum mynd af þeim nýverið, hér á Spennulosunarbloggi

Minn hataði dönskuna í skóla, og vissi ekki hvernig það hatur var framkallað*, síðar las hann bæði Færeysku Biblíuna og Dönsku Biblíuna og átti á fullorðinsárum jákvæð samskipti við samnorrænt fólk, stundum á dönsku, og fattaði gjörninginn. 

Okkur krökkunum þótti gaman að því, á unglingsárunum, þegar danskt, norskt eða sænskt sjónvarpsefni slapp inn hjá RÚV, eða þegar við komumst í myndablöð (Comics) á dönsku, eins tókum við eftir að þeir sem lásu Anders And blöðin, voru betri en við hin í det deijlige sprog.

Ekkert okkar heyrði þó danska tónlist í útvarpinu!

Þá slapp eitt sinn kennari inn í skólastofuna* og kenndi dönsku í veikindaforföllum - eiginkona prestsins* í sveitinni - og hún var skemmtileg, við krakkarnir æfðum öll dönsku í frímínútum þá vikuna; og minn fattaði samsærið.

Hið áhugaverðasta af öllu, er þó tengd frétt, því hún er skrifuð á samblandi af ensku og hrognamáli, með Íslenskum orðum. Texti svonefndrar fréttar er nærfellt með öllu ólæsilegur, svipað og allflest sem kemur frá sýndarmenningu ÍsQuislínga undanfarin ár, eða Fullsprautuðum Kílómetrasið þeirra.

Bilað fyndið. Dáin menning og innfallin siðmenning virkar þannig að þú skilur ekki hið fyrra og hafnar hinu síðara, og veist hvorugt.

Allra fyndnast hefur þó mínum fundist undanfarin ár, er að Ísland er eina landið í heiminum þar sem enginn veit hvað Quislíngur er, og ætti þó að vera annað landið í heiminum sem hefur það á hreinu. Yfirleitt fatta manneskjur strax, þjóðfélagsverkfræðina hér að baki, en venjulega er tímasóun að útskýra neitt af þessu fyrir Leirmennum og Bergmálsdýrum.

 

 

Loks vill minn taka fram eitt, sem er augljóst um leið og þú sérð ljósbrotið. Það hefur tekið Marxista tæpa öld að drepa Evrópska menningu, það hefur tekið þá lengri tíma að drepa trú fólks og fjötra sál þess. Ef þú sérð hversu ógurlegan kraft andmenningarlegir "kerfisdímonar" þurfa til að drepa menningu og fjötra trúarlíf, þá sérðu hversu auðveldlega vorið brýtur klakafjötra lækja og fossa.

Hér má bera saman að frá 1922 til 1991 unnu samskonar dímon-samlagaðir menn gegn menningu og sið Sovésku þjóðanna fimmtán, sem ýmist voru Kristnar og Íslamskar, og frá 1945 til 1989/1991 gegn menningu og sið Austur-Evrópsku þjóðanna svonefndu, en þegar klakaböndin brustu, tók það frá þrem til tíu árum að hreinsa eitrið burtu, að mestu, og þessar þjóðir hafa allar sýnt síðan 2019 að þær standa gegn Marxisma og afkvæminu Fasisma.

Við nefnum þetta, því Sagan er ekki hið sama og Mannkynzzagan, og þó við örvæntum í svartnætti forgarðsins* þessi misserin, er ljósglæta, en stundum þarf að trúa því að týran sé, og ástæðan er sumum augljós en öðrum hulin.

 

 

* Þegar Íslenskir kommúnistar - sem í dag eru allir stjórnmálaflokkar landsins - hófu að banna hatur með lögum - fyrirbæri sem er ekki til í lögspeki - gleymdu þeir að setja inn hvernig hatur er framkallað með allskyns þjóðfélagsverkfræði og undirróðri (Subliminal suggestion/coercion). Enda þyrftu þeir þá að banna sjálfa sig. Óborganlegt!

* Eiginmaður maddömmunnar, prestur, er einn af fáum prestum okkar tíma sem varist hefur Marxéringu Íslensku prestastéttarinnar og staðið gegn stríði Marxista gegn Kristinni trú landsins, innanfrá. 

* "Inn í stofuna" minnti minn á, að reynsla hans í grunnskóla var úr fimm skólum, svo reynsla hans af dönskukennslu-samsærinu er víðari en þeirra sem ólust upp einskóla.

* Forgarður Heljar - sem er djúp og aldaþróuð Skólaspeki*, er sambland af Limbo og Purgatory. Ein þjóðfélagsverkfræði Hnattræns Marxisma/Fasisma er að þegar þú leitarvélar rótgróið menningarhugtak, færðu upp hljómsveit eða bíómynd í staðinn - hinthint - og þarft að grúska eða rifja upp til að finna það sem þú vildir vita, eða finna út að þú vissir ekki - sem er bilað fyndið. Við höfum - í Arkívinu - útskýrt rækilega að hér á jörð eru aðeins til tvenn samsæri og að öll önnur samsæri spinnast út frá þeirri rót, samsærið um vitundina og sálina annars vegar og samsærið um hugann hins vegar, en hið fyrra er frá föllnum englum og hið síðara frá dímonum (afholdguðum Nephilíum). Forgarðsvísindin, eru þó ein dýpsta speki sem við gætum lært af, og við vitum ekki að þau eru til, hvað þá að þau séu grúsksins virði.

* Skólaspeki (Scholasticism) var og er heimspeki kristinnar siðfræði - ein öflugasta og dýpsta heimspeki Sögunnar, sem aukinheldur hefur einn lengsta þráðinn - og hefur verið strokuð út í vélrænni plastmenningu samtímans, og þegar maður fattar það, skellir maður á lær og glottir.

* Vissir þú að frá 930 til 1662 voru öll Íslensk rit, skrifuð á dönsku? Grínlaust, ritmálið hérlendis var nefnt danska fram að því að fyrstu Quislíngar landsins spörkuðu kollinum undan Þjóðveldinu. Enginn veit þetta í dag, hvorki hið fyrra né síðara; og öllum er sama!