19.2.2026 kl. 12:56

Óreiðuskoðanaröskun dagsins - 20260219

Á meðan Íslenska elítan lítur svo á að Jeffrey Epstein sé "samsæriskenning" sem best sé að fjalla ekkert um, en sé annars áróður frá Rússnesku stríðsvélinni, er í fyrsta skipti í sögunni meðlimur Bresku Konungsfjölskyldunnar handtekinn. Og fyrir hvað, nema fyrir þáttöku í njósna-, fjárfestinga-, erfðabreytinga-, og misferlis-maskínu Jeffrey Epstein.

 

 

Undanfarnar sex til átta vikur, hefur fjöldi háttsetts áhrifafólks í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar í valdakerfi Vesturlanda þurft að segja af sér og margar stormhviðurnar fylgt með, til að mynda skók það allt Breska kerfið á dögunum þegar Peter Mandelson var ekki aðeins vikið til hliðar heldur reyndi pólitíska elítan að svipta hann titlum.

Mandelson var ekki aðeins einn valdamesti áhrifamaður Breska kerfisins, heldur "uber blair-ite" og ó, þú veist að öll Íslenska elítan elskar Tony Blair með táfýlu og alles.

Þetta er sögulegt, eins og svo margt annað síðan Guðdómlegur Vitjunartími hófst 2019. Og eins og venjulega, ekkert um neitt af þessu í Stórustumúgsefjunarmiðlum hér hjá Ofurmenntuðu þjóðinni sem einsömul virðist ætla sér að veita ESB og Nató pólitískt hæli í Viðey, og hver veit, kannski Sameinuðu Þjóðunum.

Dæmi: vissir þú að Trömp hefur dregið Bandaríkin út úr samstarfi við um það bil tíu af áttatíu þverþjóðlegum Alþjóðstofnunum á undanförnum sex mánuðum? Eitthvað um það einhversstaðar? Eða að Bill Gates, "sprautumógúll in chief" varð að hætta við þáttöku í gervigreindarráðstefnu í Indlandi í vikunni?

Þú veist hversu stór Maxwell/Epstein flækjan er inn í nýja gervigreindarstjórnkerfi heimsins, eþaggi? Sem fyrr segir, þöggunin hérlendis um þessar flækjur, hlýtur að vera öðrum jafn áberandi og okkur hér í Spennulosun, ásamt áhugaverðum spurningum þar að lútandi?

Óreiðuskoðunanaröskunin:

Snillíngurinn Paul Craig Roberts ræddi eitt sinn, eitt sjónarhorn á máli Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell, sem við höfum ekki séð neins staðar annars staðar, en hann rökstuddi vel, og það var sú spurning hversu mikið af unglingsstúlkunum sem voru misnotaðar af Epstein mafíunni og tengdum aðilum, hafi af ýmsum ástæðum gengist sjálfviljugar, og jafnvel viljugar inn í dæmið. Ef þetta er rétt hjá honum, er það mjög áhugaverður [og víðtækur] snúningur.

Höfum í huga að tölfræðilega hefur verið vitað í marga áratugi, að um það bil þriðjungur kvenna og fjórðungur karla, á Vesturlöndum, hafa reynslu af kynferðismisnotkun í barnæsku og á únglingsárum. Ennfremur eru sálfræðilegar afleiðingar - eða hegðunarmynstur - af slíku vel þekkt í sálfræðinni, og þeir sem þekkja þessi mynstur og rýna bæði Elítuþjóðina og Skrílþjóðina, sjá vel hvernig Múgsefjun beggja virkar.

En hvað veit maður sosum.

En ég samdi bók umetta fyrir tólf árum.

Fyrir þá sem ekki fatta: Lag dagsins er til heiðurs bíómyndinni Lolita, og flugvélinni Lolita Express. 

Loks minnum við á að ein allra besta rannsóknarvinnan enn sem komið er um Epstein hneyklsið, eru tvær bækur Whitney Webb um dæmið, og báðar má sækja á "archive.org", en einnig er hægt að kaupa prentgripina sjálfa og þannig styrkja einn besta rannsakanda sem samtíminn á:

Ertu búinn að fatta hvernig Stéttarfélögin rændu réttindum þínum og taka þátt í að kúga þig og féfletta? Þú færð ekki endurnýjað lesleyfi ef þú fatterettekki.