15.2.2026 kl. 21:45

Gripið og sleppt

Öll eigum við eitthvað, mismikið nottla, sem engum kemur við. Sálfræðingar og aðrir hvatníngar gúrúar myndu segja það vera eitthvað sem skilgreinir hver við erum, eitthvað sem (e.t.v.) hjúpar dulúð (Mystique) okkar og verund. 

 

 

Ég held að það sé kjaftæði. Sorrý.

Einn mesti sálkönnuður liðinna alda, Carl Gustav Jung, sagði eitt sinn í samtali við vin sinn, Laurens van der Post (Jung and the story of our time), að hlutverk sálkönnuðar (Therapist) væri að leiða hinn geðrofna (Psychotic) aftur til baka til eigin dulúðar, en hann mætti aldrei uppljóstra um að hann hefði fyrst náð að gægjast hver eða hvað hún væri, því annars myndi traustið breytast í andúð.

Hingað til hef ég ekki séð eða reynt neitt sem dregur úr eða breytir þessari niðurstöðu meistara Jung, sem byggð var úr áratuga reynslu og djúpu innsæi. Þess vegna segi ég kjaftæði, því þú getur ekki skilgreint dulúð eins né neins, en þú getur afvegaleitt óstöðuga með staðhæfingum sem þeir skilja illa.

Prívat, er jú prívat.

Á undan ást og vináttu, er virðing.

Virðing fæðist í sjálfsvirðingu.

Allar skepnur vita hvað það er.

Við öll eigum - sem fyrr segir - eitthvað sem engum kemur við. Eins og sagt er á einum stað, í venslum getur of mikil uppljóstrun oft skemmt frekar en leitt. Veröldin er öll svona, og þess vegna veistu að vensl (Relation) við Skapara þinn eru einkamál, og þrífast í rækt. 

Því ef Skaparinn væri ekki dálítið duló, ef hann væri ekki Persóna, þá værum við - sköpun hans - ekkert annað en sálarlaus og vélræn dýr; sem viti menn, þeir sem vilja skilgreina dulúð þína og ritskoða huga þinn og móta vitund þína, vilja einmitt að þú sért.

Vald er afl með virðingu, en afl án virðingar er ofbeldi.

Ofbeldi er síðasta hálmstrá örvasa huga.*

Svo furðulegt sem þetta allt saman er. Svipað og þegar menn spyrja, heldurðu að líf sé í Alheiminum, spyr ég til baka, Alheimurinn er allur lifandi, svo hvað áttu við. Sumir skipta þá um umræðuefni og hverfa aftur inn í leirinn og bergmálið, hinir glotta og segja þá eitthvað duló, dregið úr sindri eigin djúps.

 

 

Ertu búinn að fatta Logos Alheimsins?

Hið dularfyllsta af öllu duló?

Ef já; gætirðu hjúpað það með þrem orðum?

Geturðu fætt og lýst hugmynd, sem virkar og hefur
aldrei áður verið upphugsuð og sögð?

 

* Violence is the last resort of exhausted mind[s].