7.2.2026 kl. 11:05
Siðrof, Siðfall, Siðfirring
Hetjudýrkun Bakkabræðra, í umboði Forsætisráðherra. Ráðabrugg í skugga km666. Gísli, Eiríkur, Helgi, rúlla deginum. Já, Bakkakotsmálið er Bakkabræðramál. Fjörutíu lygarar dregnir fram til að markaðssetja hvað unglingurinn í Forsætisráðuneytinu er voðalega góð.
Tilfinningasemi keyrð í botn á sterum. Hvað með alla þá sem eiga um sárt að binda vegna ofbeldis elítunnar undanfarin fimmtán ár? Hversu margar þúsundir hafa misst aleiguna, heilsuna, vitið, og jafnvel lífið?
Á sama tíma eru skemmtilegustu umræðurnar í pottunum, á þá leið að Kílómetragjaldið sé réttlátt og sanngjarnt og þegar RÚV dró fram í vikunni hversu arfavitlaus stærðfræðin í algrímunum er, - sem í rauninni er einfaldur grunnskóla útreikningur - þá er inntak umræðna á þá leið að þetta verður leiðrétt, það sé einfalt að senda ábendingar.
Minn er enn orðlaus, því það er svo hrópandi augljóst hversu vitlaust þetta allt saman er. Hvernig útskýrir þú fyrir manni sem baðar sig í drullupolli að hann komi óhreinni upp úr?
Það voru engir undirskriftalistar, stjórnarandstaðan rúnkaði sér á næstu appelsínu, FÍB bullaði einhverja langloku og Stéttarfélögin sem rændu réttindum þínum - og þú fattar það ekki - þegja þunnu hljóði; meðan glæpalýður sem yfirtók Lýðveldið árin 2006 til 2009, flettir af þér öllu sem þú hélst að þú ættir, setur því næst þjóðina í snöru og sparkar í stólinn.
Manstu; dáin menning, innfallin siðmenning. Vættir tilverunnar votta yrðinguna, en það hefur enginn lengur hugtaka- né lesskilning, enda menningin dáin.
Ef þú fattar, þá spyrðu; hvernig deyr menning, hvernig lífgast menning, hver er munur menningar og siðmenningar, hvað er siðrof, hvað er siðfall, hvað er firring, hvernig gerist þetta og hvernig varast þetta? Hver er munur siðferðis og siðfræði (Morality vs. Ethics). Enginn fjallar um þessa hluti - né skilgreinir - utan Arkívisins, í mestu vísinda, mennta og tæknimenningu allra tíma.
Einföldun: mannfólkið hefur umbreytst í mann-kyn, manneskjur í mann-verur. Þar sem áður voru kvikir menn, eru nú tamin tvífætt dýr, þar sem áður var fólk, er nú hjörð.
En bíddu nú við; hverjir eru þeir sem sprautuðu Genunum úr þér fyrir fjórum árum, við undirspil Didda fiðlu. Eins og sagt er í Bibbunni, þar sem lýðurinn mætti til að láta fórna sér við undirspil gígja og harpna.
Félagshyggjan, Efnishyggjan og Valdhyggjan - svo vitnað sé í spádóma bæði Daníels og Jóhannesar - eiturtennurnar þrjár sem saman mæla formælingar og slafra í sig allt sem gott er. Eða svo vitnað sé í félaga Jesú - þá verður viðurstyggð eyðingar á helgum reit, ef þú flýrð ekki í ofboði, verður þér fórnað - og hann var ekki að ræða um eitthvað musteri.
Gísla, Eiríki, Helga, þótti fullkomlega rökrétt að færa sólina í bæinn, í húfum sínum, í dag þykir það jafnvel raunsætt. Við ítrekum oft, Raunsæi er náð, rökrétt er því raungusegð*, því rökrétt er ekki alltaf raunsætt. Þegar Guð fjarlægði náð raunsæis, 2019, hófst mesti vitjunartími (Reckoning) allra [vitjunar]tíma.
Að öllu þessu sögðu, fögnum við einni breytingu sem er að laumast inn í orðræður og umræður hér og þar, jafnvel í meginstraum, varðandi rót allrar verðbólgu. En fyrir fáeinum misserum greindum við ítarlega í Arkívinu, hvað er í rauninni rót allrar verðbólgu, og komumst að þeirri niðurstöðu að það hefði ekkert að gera með það sem bókstaflega allir um allan heim hafa matað alla á undanfarnar tvær aldir, og greindum ítarlega hvernig verðbólga gerist og hvernig mætti útrýma, og hverjir hafa gert slíkt.
Við ræddum einnig í Arkívinu, og það oft, að margt sem er greint með Vitnisburði laumast út í etherinn*, og það hefur ekkert að gera með hvort einhverjir áheyrendur vakni eða hversu margir hlusta á þig, því það er fleira í Veröldinni en sést og heyrist, hvað þá snertist, en hefur þó dýpra vogarafl en jafnvel englarnir treysta sér að glíma við - og við greindum sumt af því einnig.
Ok, soldið toldyouso, og slíkt er ósiður, en bottom line, er að Vitnisburður hefur vægi, rétt eins og Bæn, Iðrun og Fyrirgefning. ... glæðir sál og virkjar vit, því glíman sem við eigum við, er ekki við fyrirsagnir og verklagsreglur heldur staðfæringu* illrar vitundar hvar sem hún glufast inn.
Svo vitnað sé í Leonard Cohen, There is a crack in everything, that-s how the light gets in.
Að lokum.
Eins og allir vita, reiknaði Gervigreindin kolrangt þegar kom að kílómetragjaldinu, en sama gervigreindin er sú sem þú treystir til að gefa þér vitneskju á netinu ... og það hvarflar aldrei að þér hvaða lið það er sem á og rekur gagnagrunninn sem gervigreindin notar eða hvers kyns vitringar og snillingar voru ráðnir til að forrita algrímin, hverju þeir trúa eða hvaða viðhorf þeir hafa til þín, þekkingar og heilinda.
Mæli með, í þessu samhengi, nýlegu viðtali, Búlgarska sjónvarpsins, við snillinginn og fyrrum aðstoðar-efnahags-ráðherrann, Paul Craig Roberts, í tveim pörtum, þar sem hann reifar mjög vel hvernig staðan er, allsstaðar.
Viðtal sem er þess virði að hlusta á aftur að nokkrum dögum liðnum, við eigum fáa vitringa af hans tagi í heiminum í dag:
Eða þegar Landlæknir, sem nú er Heilbrigðisráðherra, ofsækir lækna sem reyndu að hefta morðæði hennar í Covid Helförinni.
Þegar glæpamenn yfirtaka kerfið, breytist Ríkið í fangabúðir, og ef enginn stöðvar morðingja og þjófa, aukast og dýpka glæpir þeirra, sem við ásamt þúsundum annarra vöruðum við fyrir fjórum árum, þegar glæpir nasistanna voru lögleiddir hérlendis og á öllum Vesturlöndum, svo og víðar í heiminum, við fögnuð þeirra er tilbiðja í blindni, Félagið, Valdið og Efnið.
Ég sagði óvart við pottormana, þegar ríkið mælir með því að fólk fremji sjálfsvíg til að stemma stigu við ótímabærum-dauðsföllum, margfaldast salan á sterkum svefnlyfjum. Þeir fóru yfir í hina pottana, það er ég, ekki þeir. Maður á ekki að hreyfa við steinlími, þó manni hitni í hamsi.
* Ether, Ljósvaki. Fyrirbæri sem vísindin veltu mikið fyrir sér frá 1551 til 1905/1915, eða þar til Einstein var notaður til að skipta honum út fyrir Alheimsfastann (Universal Constant). Svipað og þegar Newton var notaður til að fela Leibniz, og hefta þannig allt hugvit vísindanna eins og vængstýfða rjúpu.
* Staðfærðing; Manifestation.
* Raungusegð[ir], Dialectic[s].
"You cannot make this shite up." --Fornkveðið
---
Leyniviðbót
Eins og allir vita, hurfu Antivistarnir um leið og þeir fengu nýja snjallsíma og flugsamgöngur opnuðust. En meðan þeir börðust fyrir að "allir myndu vakna til sannleikans" bentu margir þeirra á að árin 2020 til 2022 var gríðarmikið um að verksmiðjur á öllum Vesturlöndum - sérstaklega í matvælaiðnaði - furðuðu upp í eldhafi eða hreinlega sprungu í loft upp, rétt eins og aðgerð væri í gangi.
Þessi skrýtna hryðjuverka aðgerð - sem enginn veit enn hverjir stóðu að baki, og Antivistarnir nenntu ekki að rannsaka - færðist yfir til Kína 2022 og hefur magnast umtalsvert 2024 til 2026, og það svo um munar.
Sem er mjög áhugavert fyrirbæri í ljósi Vitjunartíma (Time of Reckoning). Sem dæmi þá hafa margir tekið eftir að ýmislegt er að gerast t.d. varðandi veðrabreytingar og háloftaúðun sem enginn getur rakið, og hlýtur því að reiknast á "andaverur vonskunnar" sem Bibban varar við.
En Húmanistar og Marxistar vilja ekki benda á hið augljósa, og nota því Antivistana (stýrðu andstöðuna) til að kenna Ríkinu um allskonar af þessu tagi, til að styrkja trú fólks á Ríkið.
Staðreyndin er sú að Ríkið er ekki til, heldur er það útdregin (Abstract) hugmynd sem aðeins virkar ef þú trúir á dímoninn ... og aktar eftir því.
Við ræddum talsvert, fyrir fjórum árum, fingrafar Japönsku Leyniþjónustunnar á ýmsum sviðum þess sem er að gerast í heiminum undanfarin fimm til átta ár, og til að minna á þær pælingar a) "follow the money" og b) "compare to where nothing happens." Aftur þarf að vísa hér til Arkívisins, en við hófum að greina asískt-fléttu-samsæri mörgum árum fyrr, og talsvert ítarlega, greining sem stenst tímans tönn, enn sem komið er.
Fyrst sérðu það sem meginstraumurinn sér eða sýnir. Þegar þú fattar glufurnar, sérðu hina hliðina á hinu sama og endar í vélabrögðum Stýrðu Andstöðunnar. Þú sérð [því] aldrei þriðju hliðina og ef einhver bendir þér á hana, hafnarðu því sjálfkrafa.