3.2.2026 kl. 11:52

Firringin að verða algjör

Fyrst er tekið fagnandi við "flóttafólki" og um leið og fólkið fær sér vinnu, stofnar heimili, og kemur sér fyrir, er það sent aftur heim, í fangið á vestrænum hryðjuverkamönnum sem rænt hafa völdum eða stunda umfangsmikil þjóðarmorð.

Svipað og með kílómetragjaldið - nú þegar við höfum allflest fengið fyrsta greiðsluseðilinn - sem rústa mun velferð almennings og kippa undirstöðunum undan leifunum af innfallinni siðmenningu dáinnar menningar:

"You cannot make this shite up."

Hið fyndna með kílómetragjaldið, er þegar bensíngjalds-ránið var lækkað samtímis - sem þeir vita sem enn hafa ljósin kveikt að mun hækka aftur, og hratt - að það mildaði áhrifin, svo allir voru voða glaðir.

Svipað og þegar allir fóru syngjandi og dansandi að afhenda genin í sér fyrir fjórum árum.

Raunsæi (Reason) er náð Guðs, röksæi (Logic) er raungusegð* þúveisthvers. Stundum er hið óraunsæja rökrétt en oft er hið raunsæja órökrétt, því raunsætt og rökrétt er ekki hið sama.

Enska orðið fyrir Firringu, er Alienation, jafnvel guðfaðir núverandi elítu - Karl Marx - skildi hvað firrt raunsæi*  er - en þeir sem trúa á eitraða heimsmynd hans, hafa minna en 60 % lesskilning. 

Ef þú skilur þetta, býst ég við að þú skiljir lyklana fjóra, Bæn, Iðrun, Vitnisburð, Fyrirgefningu, en við minnum á að nota þarf alla lyklana fjóra og að skilningur þeirra fæðist á kyrrðarstund þar sem numinn er niður aldanna. Sértu raunsær, veistu að þetta hefur ekkert að gera með trúarbragðaheimsmynd.

Guð er ekki grunnhygginn. Hann spyr ekki í hvaða söfnuði, trúarbrögðum, eða bókaklúbbi þú sért, ef þú ræktar við hann vensl og gefur honum færi að glæða vitund þína.*

FLÝIÐ

Hvert?

Þú yfirgefur eitrað hugarland lýginnar og kannar heimsálfu þinnar eigin vitundar, í heilindum.

Að lokum, smá léttmeti.

Í marga áratugi, jafnvel lengur, var Andófsmaður eða Andófsmenn (og konur), Íslenska heitið fyrir enska hugtakið Activist, en á Fúsklensku snjallfoldar sem þykist vera Ísland, heitir það Aðgerðasinni. Dáldið fyndið orðstyrmi, eins og svo mörg önnur. Veistu t.d. hvað Uppistand merkir á Íslensku, samanber Fúsklensku?

 

* Raungusegð, Dialectic[s].

* Firrt raunsæi, Alienated Reason.

* Vensl, Relation. Glæða, Inspire.

 

 

 

 

Debbie Harry, fædd 1945, enn kraftmikil, enn kyntákn.