30.1.2026 kl. 16:43

Í ljúfum skugga glæddra trjáa

Á maður að nenna því að ræða hversu raungusnúin* elítan er, þegar hún undirbýr nýja refsilöggjöf gegn fólki sem hefur ranghugmyndir um útvalda stríðsglæpi* fyrir tæpum níu áratugum. Á maður að reyna að ræða útskýringar á aftöku elítunnar á innlendu athafnalífi og upprætingu þess sem nærir allt efnahagslíf landsins, km666.

 

 

Það var tilgangslaust að ræða fyrir fjórum árum þegar sálir 82 % þjóðarinnar mættu glaðar og kátar, stundum við undirspil popptónlistar, í sprautuklefana, og afhentu sjálfar sig afholdguðum Nephilum, til yfirtöku og aftöku.

Við gætum haldið áfram að ræða stríðsæði Vestrænna gæðinga, dána menningu heimsins og innfallna siðmenningu, eða minnt á bæði Glundroðann og Bölvættinn sem við spáðum (og færast báðir í aukana).

Nú eða frjálst fall heimsgjaldmiðilsins um þessar mundir.

Nei. Það eu mörk.

Minn keypti sér fimm bækur á dögunum, allar eftir tvo fjölæringa (Perennialists), þá Charles Upton og Dr. Joseph P. Farrell. En hef ekkert um þær að segja, er ekki kominn svo langt inn í pælingar meistaranna, enn.

Eitt má þó segja um eina þeirra - The Alien Disclosure Deception - þar sem meistari Upton varar viðkvæma við að lesa áfram og listar fáeina varnagla. Minn glotti við að lesa varnaglana, en honum brá fáeinum síðum síðar, þegar hann varð að leggja bókina frá sér og setja í hvíld í fáeina daga. Bók bezt lesin í dagsbirtu, sé maður ófreskur eða viðkvæmur.

Þegar ég las fyrst, Memories Dreams Reflections, - sjálfsævisögu Carl G. Jung -  fann ég mjög sterkt fyrir Fjölærinu, en það var ekki fyrr en áratugum síðar, sem myndskeið með Charles Upton gaf mér hugtakið. Hitt er annað, að þegar ég las, Jung and the story of our time, gat ég aðeins lesið tvær síður í senn, vikum saman.

Að lesa Laurens van der Post - sem ég hafði áður lesið þrjár bækur eftir og því vanur ritstílnum - og það bók byggða á samræðum við meistara Jung, opnaði allt aðrar gáttir; hvernig þú getur gegnum lestur eða áhorf eða hlustun, vandaðs fjölærisefnis, áttað þig á, að Fjölæringar þurfa ekki að vera staddir í sama rými, á sama tíma, til að eiga frjósamar samræður, og þegar þú upplifir þær, finnurðu beiskan sársauka sálar sem eitt hefur ævi sinni í að eiga vensl við myndastyttur og bergmál.

Kemur í ljós á næstu dögum hvort elítan geri mig aftur heimilislausan. Allt er tilbúið fyrir landflóttann ef af verður. 

Annars bara allt í góðu [1, 2].

 

Hef ég sagt þér frá "Blue Fusion" fléttunni? Djúpt stöff, aðeins formálinn að því í Arkívinu, sumir punktar að vinglast inn héðan og þaðan undanfarin misseri, sumir frá Dr. Farrell. Bilað áhugavert, en nær útilokað að útskýra. Og viti menn, stærstu púnktarnir frá sjálfu Hollývúdd.

Sumt er best falið í allra augsýn; extended nephilim magick.

 

 

 

 

* Refsilöggjöf sem við spáðum fyrir um, í Arkívinu, fyrir tæpum áratug og það ítarlega.

* Raungusegð, Raungusnúin; Dialectics, Antithetical.

* Glæðing, Inspiration.

 

fimm-frimurar-og-lygveldisranid