22.1.2026 kl. 13:02

Stórastageðlyfjaþjóðin

Minn rakst á kunningja í morgun, eftir að hafa ritað færsluna á undan þessari. Við ræddum þetta með Trömparann og ýmislegt, og ESB mafíuna. Sá gamli minnti á að frá 1941 - þegar Bandaríkin vernduðu okkur gegn ESB mafíu Hitlers - til 1992 - þegar kommúnistarnir Davíð Oddsson og Jón Baldvin skófluðu Þjóðinni hálfa leið inn í ESB með EES, og byggðu síðan stórasta bjúrókrataveldi allra tíma hérlendis; að já, frá 1941 til 1992, var Ísland byggt upp í allsnægtum í boði Bandaríkjanna.

 

 

Síðan þetta tímabil hvarf, er "þjóðin" að nota sexfalt meira magn af svefnlyfjum en nágrannaþjóðirnar, yngri kynslóðin sem fædd er eftir 1991 notar fjórfalt meira af geðlyfjum en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndunum, og engin umræða fer fram í landinu án forskriftar frá Fjölmiðlamafíunni og enginn hugsar né þróar neitt sem fer út fyrir Lífsleikni uppskrift Barnaskólanna.

Nærfellt útilokað er að reka neitt athafnalíf á landinu, nema ráða til þess Pólverja og aðra sem hingað vilja koma og vinna, meðan hið eina sem Íslendingar nenna, er að sækja sér félagshyggju gráður úr háskólum og lifa eftir það á útúngunargreiðslum stofnana, ýmist sem launþegar eða verktakar, þar sem verðleikar og rekjanleiki skiptir engu, meðan hægt er að fela sig bak við orðasalat flókinna texta í löngum orðum. 

Ræddum við að Báknið hefur tútnað út um þriðjung á innan við áratug, meðan athafnalíf hefur visnað um þriðjung á sama tímabili, og að á sömu átta árum hefur "þjóðin" stækkað um fimmtung, og það á innfluttu fólki sem enginn getur rakið og enginn vill ræða um.

Sá gamli sagðist vera ánægður með Trömp, því þó hann segði hitt og þetta við blaðafólk - sem væri í stíl við stefnu hans að halda fólki uppteknu við orðglamur - þá væri enginn að rekja það sem hann gerir utan þessara funda og Fjölmiðlar ESB mafíunnar neita að ræða, t.d. hefur hann stórlega aukið jöfnuð fólks gagnvart réttarkerfinu (og minnkað pólitíska dóma, og rasíska), skorið niður reglugerðafjall og gert fyrirtækjum auðveldara með stofnun og rekstur, og er að vinna hörðum höndum í að reka út illa anda Vókismans hvar sem hann kemst upp með, og að reka úr landi innflutta hælisleitendur og í það minnsta reyna að rekja hvort þeir séu glæpónar eða ekki.

Hér vil ég minna á, nokkuð sem við ræddum ítarlega í Arkívinu þegar Trömp var kosinn fyrst; til að skilja hvernig hann vinnur þarftu að rannsaka bókina hans "The Art of The Deal." Bókina er auðvelt að finna sem hljóðbók: Hegðun hans er útskýrð þar, vandlega.

Þá hefur hann margsannað að hann vinnur eftir þeim menningar og efnahags gildum sem skópu vestræna hagsæld og borgararétt, þvert á vilja núverandi "leiðtoga" sem vilja eru að færa okkur öll til þriðja heimsins, bókstaflega.

Einföldun; þegar fólk kallar hann uppnefnum, vegna fréttaklippna, opinberar það eigin visku og heimavinnu ... 

Trömp hefur unnið að því t.d. síðan á fyrra kjörtímabili sínu að auka vægi Iðnskólanna (Vocational schools), til að auka verkmenntun og færni fólks, á kostnað útúngunarstöðva ónýtis háskóla kommúnisma og skjalavaldshyggju.

Allir vita sem eitthvað enn skilja, að iðnmenntun er mun betri en háskólamenntun þegar kemur að menningu og sjálfsvirðingu, en slíku er kerfislega verið að útrýma síðan Þorsteinn Pálsson og Davíð Oddsson breyttu Sjálfstæðisflokknum í Sósíalíska-sjálfbærnis-flokkinn.

Það er rétt að Trömparinn segir ýmislegt sem hljómar misgáfulega, en minnum á að Bæden var aldrei gagnrýndur í fjölmiðlum eða meðal fólks, þó hann gæti ekki komið saman heilli setningu, og mundi oft tæplega hvar hann var staddur, eða bókstaflega var uppvís að því að gera í brækurnar opinberlega. Mannrán erlendra Þjóðhöfðingja, já, soldið gróft, eða yfirlýsing þess að þurfa aðeins eigin réttlætiskennd frekar en Alþjóðalög; hver er munurinn á þessu eða hegðun ESB leiðtoganna undanfarin ár, eða hegðun Vestrænna leiðtoga t.d. Breta og Bandaríkjanna undanfarna átta áratugi? Já, Trömp segir ýmislegt, en hann hefur ekki verið grófari í beitingu valds síns, en allir hinir, ef eitthvað er, hefur hann verið mildari og siðsamari en þeir.

En það má ekki ræða hluti af þessu tagi, eða hlusta á heilnæmar sögur. Sá gamli minnti mig á að ef þú t.d. hlustar á hljóðbækur á kvöldin, næristu nær menningunni og þarft hvorki geðlyf né svefnlyf. 

Loks bið ég elítuna afsökunar á öllum ranghugmyndum og óreiðuskoðunum. Minn er jú langtíma veikur.

Í vikunni var fyrrverandi Breskur Lögreglumaður sviptur breskum ríkisborgararétti, án útskýringa. Talsvert er um slíkt á Vesturlöndum undanfarin misseri. Svissneskur snillingur var sviptur Evrópskum réttindum í vetur, fyrir að vinna rekjanlegar greiningar, og virtur Bandarískur rýnandi var sviptur bankareikningi á dögunum fyrir hið sama*.

Ræðum þetta snögglega.

Manstu haustið 2008 þegar tvísýnt var hvort þú héldir launareikningi þínum vegna Hrunsins? Manstu fyrir fjórum árum þegar Kanada hóf að loka launareikningum fólks vegna ranghugmynda. Þessi flóðbylgja bankaofsókna er svo til orðin hefð á Vesturlöndum undanfarin fimm ár. 

Hvar er krafa eðlilegs fólks um að Seðlabanki landsins tryggi örugga Launareikninga og Debetkort, svo ekki sé hægt að meina fólki um þáttöku í eðlilegu lífi með því að loka reikningum þess? Hvar eru stéttarfélögin nú?

Getur verið að við rötuðum á rétta greiningu fyrir fáinum misserum, að Stéttarfélögin hafi bókstaflega verið samsæri til að véla af þér réttindi þín? Ég veit hvað þú hugsar núna, þetta með verkfallsréttinn, það er ekki það sem rætt er um, heldur múgsefjun. En hver skar úrvinnslugetuna burt, og hvernig?

Bibban segir að þjóð án sýnar þurfi geðlyf, enn sannast hið fornkveðna.

 

Að lokum, smávegis spari ... 

Minn hefur verið að hugleiða Stjórnarskrá Lýðveldisins í morgun. Ég treysti mér til að sýna fram á með einföldum rökum að Kílómetragjaldið brjóti hana ... en til hvers: Farsinn er of fyndinn.

 

* [, að ekki ógleymdum þekktasta stjórnmálamanni Breta á okkar tímum sem nú er kominn í útlegð og hefur tilkynnt að hann muni ekki sjá Bretland aftur þessa ævina].