22.1.2026 kl. 11:04
Bandaríkin sett á lista með Rússlandi
Ef eitthvað er að marka umræður og fréttir undanfarna daga, er augljóst að innlimun í Bandaríkin, með góðu eða illu, væru hræðileg örlög fyrir Íslendinga, í það minnsta þann hluta þeirra sem stjórnar landinu.
Elítunni virðist sjálfsagt mál, að betra sé að sundra landinu, svo vitnað sé í aðal foringjann sjálfan, í umboði fjölmiðla og allra hinna sem mata krókinn á tröppuklifri og rumpslefi.
Við höfum sannað, með fáeinum færslum fyrr í vetur, að hérlendis hefur aldrei nokkurn tíma farið fram nein málefnaleg, eða efnisleg, umræða um hvað það sé sem Íslendingar myndu nákvæmlega græða á að ganga í ESB. En skyndilega er það lýðum ljóst, að ef þeir gengju í Ríkjsamband Bjúrókratanna í Brussel, þá gæti vonda Sambandsríkið, Bandaríkin, ekki gleypt Ísland.
Var einhver að æfa sig í rökleysu?
Nákvæmlega hverju myndum við tapa á að a) hafa beinan aðgang að stærsta markaði heims, Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó eða b) geta hent ónýtu krónunni og safnað þess í stað Dollurum sem er öflugasti heimsgjaldmiðill allra tíma, eða d) vera varin af öflugasta herveldi allra tíma, að geta ferðast um heiminn á Bandarísku vegabréfi, að borgararéttindi okkar væru ekki aðeins varin af vönduðustu stjórnarskrá Sögunnar heldur með beinan aðgang að öflugum og viðurkenndum grasrótarsamtökum sem verja þau réttindi, eða beinan aðgang að þróaðasta vísindasamfélagi heimsins, og svo mætti lengi telja, s.s. beinan aðgang að besta fjárfestingamarkaði allra tíma, og ekki gleyma stórastaleyndardómnum í Delaware þar sem fela má ýmislegt.
Langar þig í ótæmandi Golf reisur til Flórída? Viltu fara í vetrarfrí til Arizona, má bjóða þér í skyndiferð til Hawaii, Laxveiðar í Alaska, eða siglingaferðir á Samóa? Má bjóða þér á tónlistar rölt í New Orleans? Eða hestaferð frá Louisiana til New Mexico, þvert yfir Suðurríkin, tjald skröltormar og alles? Viltu kaupa uppgerðan "Chevrolet Camaro 1969" - á slikk - og skreppa í reisu eftir "Route 66," án kílómetragjalds?
Bíddu nú við, hvar eru fréttirnar um þegar ESB lýsti því yfir á dögunum að a) sambandið myndi dæla monningum í hérlenda aðila til að efla inngöngu landsins í ESB og b) beita úrræðum til að koma í veg fyrir hið sama af hálfu annarra?
Hvar eru viðtölin við grasrótarhópana á Grænlandi sem vilja ekki Bandaríkin? Ó, eitthvað falið hér. Við fáum bara viðtal við fulltrúa hans hátignar Friðriks tíunda.
Svo nákvæmlega hverjir eru hagsmunir Lýðveldisins og þrælaþjóðar þess, með kínversku kílómetragjaldi og alles, hvar er vogarskálin með samanburði og rekjanlegum staðreyndum?
Sjálfur myndi ég kjósa þann flokk sem boðar Ísland úr Nató, Ísland utan ESB og Ísland einmana og sjálfstætt, en fullvalda og virkt, en minn kýs ekkert af öllu góða rumpuslefinu. Merkilegast er þó af öllu, að hugsanlega gæti minn þurft að flytja úr ólöglega kofanum sínum - því mentskælingarnir sem stjórna, hafa sett upp reglur þar að lútandi - þar sem hann hefur verið hamingjusamur í tæp tólf ár*, eftir að hann hóf að rita um þessa spurningu; Hvað með að Ísland verði Fylki 51 eða Fylki 52; hvað myndum við græða á því og hvers vegna vitum við ekki hvað við - eða elítan - græðir á ESB?
Manstu hvað við græddum mikið á ESB reglunum um bankaviðskipti haustið 2008? Eða reglunum um að ræna má eignum fólks í stórum stíl, á grundvelli algríma og útreikninga, og bera fólk út, árin 2008 til 2013?
* Jamm, það styttist að sótt verði um pólitískt hæli í Rússlandi. Allir pappírar tilbúnir og búið að koma farareyri í öruggt skjól. Hægt að fljúga, því sem næst fyrirvaralaust.