15.1.2026 kl. 05:18

Íslendingar eiga ekkert tilkall til Skrællands

Það er nokkuð um það undanfarið, að ýmsir kverúlantar og frasagæðingar, halda því fram í bloggheimum og á samfélagsmiðlum, jafnvel í stöku fjölmiðlum, að Íslendingar eigi sérstakt tilkall til Grænlands, þar sem Skrælingjar búa.

 

 

Ha, er rasismi að segja Skrælingjar? En tilkall þessara gáfnaljósa byggist á þeim hugarheimi þegar hugtakið Skrælingi þótti sjálfsagt!

Í fyrsta lagi gerðu Íslendingar árin 900 til 1400 enga tilraun til að gera neitt tilkall til yfirráða yfir Grænlandi og eftir 1400 höfðu samskipti landanna rofnað og hafa enn ekki hafist að nýju. Á þessum tíma var Þjóðveldi fyrra (930 AD), og þó margt í lögum á þeim tíma og Alþingisumræðum snérist að sumu því sem gerðist á Grænlandi, þá var það vegna áhuga Grænlendinga sjálfra á samvinnu síns siðar við Íslenskan.

Flókið?

Já, of flókið fyrir frasaglaða.

Óþarfi að útskýra nánar.

Þær tvær byggðir Norrænna manna sem döfnuðu á Grænlandi höfðu sín eigin þing, yfirleitt eitt þing saman, og ekki alltaf árlega, og þeir sendu - þegar gæft var - menn til heimsókna á Allsherjarþing Íslenska Þjóðveldis, aðallega til samanburðar, skrafs og dómrýni. Grænlandsbyggðin leit ekki á sig sem undirsett Íslenska Þjóðveldinu og enginn forystumanna Íslenska Þjóðveldisins hafði áhuga á slíku.

Hitt er annað, og það er að "Íslendingar í dag" vita ekki hver þeirra eigin saga er, hvað þá SIÐr. Þeir átta sig ekki á, og hafa ekki getu til að skilja, að Íslenska Lýðveldið 1944 er ekki arftaki Íslenska Þjóðveldisins. Langt langt langt í frá.

Árin 1880 til 1920 var þó nokkuð um að viti bornir menn hérlendis, rituðu greinar, og jafnvel bæklinga, til að rökstyðja tilkall til Grænlands. Margt í því efni er verulega áhugavert, bæði í menningarlegu og sagnfræðilegu tilliti. Ýmsir hafa viðhaldið þessu efni, jafnvel hefur Morgunblaðið ekki alls fyrir löngu birt samantekt á sumu úr þessum bing. Margir sérvitringar blogga um þau fræði, en án einhverra tilkalls yfirlýsinga, og er það vel.

Bíddu nú við; sú umræða sem reynt var að vekja á þessum árum fyrir rúmlega öld, tengdist tilurð Íslenska Konungsríkisins 1920* því menn hérlendis vildu að Grænland og Ísland yrðu sameinað konungsríki með danskan þjóðhöfðingja, sumir eygðu jafnvel hvort fá mætti Færeyjar með. Þetta er allt saman gleymt í dag.

Sé það ekki augljóst, þá var vitundarvinna þeirra sem undirbjuggu Konungsríkið ekki í sama hugarknetti og þeirra sem síðar véluðu fram "Lýgveldið" og má jafnvel velta fyrir sér hvort hið síðara hafi tekið við af hinu fyrra

Varðandi fyrstu efnisgrein; ekkert þessara þrasmenna veit hvað Hvítbláinn er, ekkert þeirra hefur áhuga á sögu Þjóðveldis, hvorki fyrra né endurreists, og ekkert þeirra hefur neitt til neinnar menningarlegrar samræðu að leggja, utan frasa og froðu.

Ég bið Almættið, Landvætti, og tvo til þrjá vandaðri lesendur mína afsökunar á að eyða tíma í að svara vitleysingum. Hinir hafa ekki lesleyfi.

Vil þó minna á að Íslenska Þjóðveldið (2013) gerir ævarandi og óafmáanlegt tilkall til Hrafneyjar, sem Danir og Norðmenn uppnefna Jan Mayen.

Þá vil ég undirstrika þá persónulegu skoðun mína sem ég hef ræktað alla mína ævi, að Norrænir menn á Grænlandi ýmist runnu saman við Skrælingja - sem ég lít síðan á sem samnorræna menn, og fagna því ævinlega þegar ég hitti slíka hérlendis - en aðrir norrænna hurfu yfir til níu borga Herúla á Hellulandi (Labrador) og byggðu þar menningu sem dafnaði um aldir og síðan var reynt að stroka út af Frönskum og Breskum; sem við höfum rætt ítarlega í Arkívinu.

Flókið?

Allir þeir vitleysingar og froðusnakkar sem þessa dagana ræða þann þvætting og rökleysu að Íslendingar eigi tilkall til Grænlands, þeir ættu að sinna eigin skömm, því þeir rækta engin menningartengsl við einn eða neinn, og þá sérstaklega ekki Færeyinga, Grænlendinga, Hjaltlendinga og Orkneyinga; sem þó eru allir fjórir sama þjóð og við!

Ábending; það er ástæða fyrir að genagutlarar neita að rannsaka að genamengi Grænlendinga er hálfnorrænt, því þeir eru sjálfir rasistar, lygarar og vitundarvélarar.

 

* Stjórnarskráin kom 1920 þó fullveldið hafi fengist í janúar 1919 og óformleg framkvæmd þess mánuði fyrr - fúsk - í óþökk 75 % kjósenda og í skjóli þingsályktunar sem ekki stenst lögmæti. Þess vegna heldurðu að fullveldisdagurinn sé 1. des, því fjölnismenn* og Ís-Quislíngar eru að ljúga að þér. 

* Hópurinn fjölnismenn er ekki hið sama og útgáfufélagið Fjölnismenn. Síðari hópurinn var drepinn af hinum fyrri sem leiddur var af Færeyingafræðinginum Jóni Sigurðssyni, sem vélaði af þér landið handa danahórum og höfðingjasonum, sem enn halda um góssið.

Ég fullyrði aukinheldur að tvö stórustu skáld þjóðarinnar voru drepin, einum drekkt á Breiðafirði og hinn rotaður í Köben. En hvað veit ég sosum.