15.1.2026 kl. 04:33

RIP Scott Adams og Erich von Däniken

Scott Adams er var þekktur fyrir tvennt, annars vegar hina frábæru myndaseríu Dilbert og hins vegar fyrir ágæta (eldri merk.) hlaðvarpsþætti sína Coffee with Scott Adams. Hann dó nú í janúar, blessuð minning.

Minn fylgdist með rásinni hans í tvö eða þrjú ár, en hætti því á Covid tímanum, ekki af neinni sérstakri ástæðu. Maður kynnist rásum, maður nýtir sér efni þeirra, lærir af þeim eða ekki, og annað hvort dvelur við eða heldur áfram. Hafði gaman af rásinni hans, kunni vel við þennan ljúflynda og viðkunnanlega mann sem hafði ánægju af að velta fyrir sér hlutum. 

Hann er hættur - blessuð minning - en rásin hans heldur þó áfram ...

Erich von Däniken dó einnig í janúar, níræður að aldri, og óhætt er að segja að þó fáir þekki nafn hans í dag, hefur hann sett meira mark á vitundarþróun síðustu fimm áratuga en margur annar.

Þegar fyrsta bók hans kom út, var tvennt annað að gerast í vitundarsögu samtímans, annars vegar var í gangi Star Trek Original Series* og hins vegar voru Roscosmos Sovétríkjanna og NASA Bandaríkjanna að taka fyrstu skrefin út fyrir gufuhvolfið; en fram að því hafði engum manni dottið í hug að slíkt yrði nokkru sinni geranlegt, utan Jules Verne hundrað árum fyrr.

Leirmennum hættir til að gleyma, að margt sem er okkur sjálfsagt í dag, var óhugsandi aðeins einni kynslóð fyrr, en gert mögulegt fyrir sýn og áræðni manna sem þorðu að taka sénsinn á að mistakast, eða afla sér óvinsælda. Bergmálsapar hins vegar eigna sér það allt saman eftirá og setja síðan öðrum reglur.

Nema Däniken gerði gott betur, hann fullyrti að menjar um verkfræði fornalda sem sýndi öflugri og dularfyllri kunnáttu en við ráðum yfir í dag, væri sönnun fyrir að verur utan úr geimnum hefðu heimsótt Jörðina áður, og haft hér djúp áhrif, og hann gerði gott betur; hann leitaðist við að sanna það. Ekki nóg með; heldur þegar honum varð á í messunni með sum atriði, viðurkenndi hann þau fúslega og notaði sem tækifæri til að gramsa dýpra. Nokkuð sem elítur okkar hefðu gott af að læra.

Fyrir fáeinum árum samdi Däniken myndskeiða-seríu í þrettán þáttum - Beyond the Legend - sem fer yfir það helsta í því sem hann hefur fjallað um síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Vandaðir og skemmtilegir þættir. Þá er til mikið magn af upptökum af fyrirlestrum hans, sem margir eru djúpir og ítarlegir.

Margir hafa gert sér mat úr fornum menjum - sérstaklega svonefndum Megaliths, og margir gert það vel. Erich von Däniken er var engu að síður frumkvöðull slíks efnis, og hefur haft áhrif á okkur öll, oft án þess að við vitum það. Ég las bækur hans þegar ég var unglingur, velti mikið fyrir mér því sem hann hélt fram, en hef aldrei fallist á að geimverur hafi haft áhrif á menningarþróun Mann-kyns, í það minnsta ekki á þann hátt sem hann trúði, eða sagðist trúa. 

Maður þarf ekki að vera sammála fólki til að gefa gaum að fræðum þess. Heldur má læra af slíkum og vinna úr, þannig finnur maður aðrar hliðar sem manni annars hefði ekki dottið í hug. Hef fjallað um margt af þessu í Arkívinu, og því utan efnistaka hér og nú.

Mér þykir vænt um minningu Däniken, og þau áhrif sem ævistarf hans hafði á mína eigin vitundarþróun. Blessuð minning.

 

 

* Margir afskrifa Star Trek með setningum á borð við ég horfi ekki á seríur sem gerast í geimnum og framtíðar vísindaskáldskap, sem er frábær setning á borð við engar samsæriskenningar takk en hvorutveggja er í rauninni gortlýsing yfir hugur sjálfslökkt. Gene Roddenberry hannaði þættina frá upphafi sem þjóðfélags- og menningarádeilu, í umbúðum sem þröngsýnn og sjálfumglaður heimur tuttugustu aldar gæti sætt sig við. Þetta er best útskýrt af Nichelle Nichols, sem lék Uhuru í þáttunum. Fólk okkar samtíma á tuttugustuogfyrstu öldinni, veit ekki hversu mikið vogarafl var í þessum þáttum, sem ásamt Next Generation, tveim áratugum síðar, áttu risastóran þátt í að breyta heims- og sjálfsmynd alls mann-kyns, ekki einvörðungu, en rétt eins og Däniken, hafði áhrif á aðra sem á sama tíma eða síðar framleiddu áhrifaríkt efni.