12.1.2026 kl. 18:29
Lengi lifi Íslenska Kommúnistaríkið
Síðan haustið 2017 hefur Báknið stækkað um þriðjung, á sama tíma hefur efnahagslíf fólksins sjálfs minnkað um þriðjung. Stofnanir Ríkisins voru 140 árið 2015 en orðnar rúmlega 190 árið 2023. Geturðu nefnt fimm þeirra með nafni?
Nú er komið nýtt stjórnkerfi, Km666, sem sjálfkrafa rukkar þig fyrir að hreyfa þig; þetta mun lama afganginn af efnahagslífi fólksins í landinu og blóðmjólka allt þjóðlíf landsins. Enginn verst þessu, enginn bregst við þessu, engin orðræða, hvað þá umræður, fara fram neins staðar um það siðfall (Implosion) sem hér er mælanlegt.
Ríkið er orið Fyrirbæri út af fyrir sig, elíta þess ein þjóð og þeir sem borga og hlýða önnur þjóð, en sú fyrri skilur hvorki eigið hlutverk, né sú síðari hvað Líf er: Musteri þúveisthvers hefur yfirtekið allar blóðrásir tilverunnar.
Fullsprautuð og genabreytt þjóðin, sú stórastahamingjusamasta, er dáin. Útför að hefjast, svartnættið ríkir öllu Ástandi (State) meðan Siðlausir leiða Siðblinda.
Mælanleg staða.
Þetta sést soldið vel á Tónafótboltanum, sem nefnist Eurovision. Nú þegar RÚV hefur ákveðið að taka ekki þátt í erlendu lokakeppninni, er sú innlenda blásin af. Allir Íslendingar elska Eurovision, ekkert hérlendis nýtur meiri hylli né athygli - enda þjóðin tónskert - og ekkert er meira um rætt fyrsta þriðjung hvers árs, en lögin sem birt eru þá vikuna.
Ekki einn þessara múgsefjunarlendinga kvartar yfir að nú fer ekkert fram, bara vegna einskis. Því keppnin snýst ekki um lokakeppnina, allt húllumhæið er sjálft tímabilið innanlands. En þetta er ekki tónlist, þetta er ómerkilegur skjótgleymanlegur tónabolti sem engu skiptir; rétt eins og innprentaðar mótaðar skoðanir yðar sjálfs.
... þú ert lítið krúttlegt ríkisprentað peð ...
... hugurinn sneyddur frá, kynngi
sjálfsins læðingsfjötruð ...
--
Viðbót 20:02
Kórónuhiti Gloríu (Sólar): 1.365.750.000 gráður á Celsíus (5.000.000 Kelvin). Hefur samt engin áhrif á Loftslagshita, heldur er það bíllinn þinn. --Sauður
Ath. Yfirborðshitinn (Photoshpere) er mun lægri eða frá 4.400 K til 6.600 K. (Dragið 273,15 frá, til að finna út Celsius).