5.1.2026 kl. 13:56

Málamiðlun frekju og sinnuleysis

Eitt sinn var minn spurður, hvað er ríkissmiðja, er til einhver bók um það, en minn hikaði og svaraði, þetta er svo stórt og flókið efni að ekki er hægt að skrifa bók um það. Þó hefur það verið gert, oft.

 

 

Stórasta og þekktasta verkið á þessu sviði er siðfræðisaga Bibbunnar, sérstaklega Króníku og Konungabækurnar, þar sem þessu er lýst frekar nákvæmlega. En stórasta spurningin er þó, hvað er SIÐr; Júðasiður, Húmanistasiður, Kristinnsiður, Kommúnistasiður, Konungasiður, Lýðveldasiður, og svo mætti lengi telja.

Hér má skjóta inn til gamans, tilvitnun í Brian Davidson, þar sem hann vitnar einmitt í framangreint er hann segir, stundum þegar "eitt þjóðríki var notað til að refsa öðru, beið þess eigin refsing." Sjá hér; úr vikulegu samtali Brian Davidson og Carl Herman, eða úr samtali þeirra vikuna á undan, Orðskviðir 29:18, "þar sem engin er sýn, deyr siður."

Þegar Íslenska Þjóðveldið var stofnsett, 930, voru mörg sjálfstæð héraðsþing í landinu og hvert þeirra hafði sitt eigið þing í byrjun maí, ár hvert. Flest voru þessi þing 39, og voru viðmið um hvenær slík voru stofnsett og hvenær lögð niður. 

Þegar Þjóðveldið er nefnt Commonwealth á ensku, er átt við að Þjóðveldið var Ríkjasamband sjálfstæðra smáríkja, héraðanna 39, eða Federation, rétt eins og mörg fylkja Bandaríkjanna nefna sig enn t.d. Commonwealth of Virginia, og Breska Konungsríkið lítur á sig sem Commonwealth þeirra ríkja sem líta Konung Englendinga sem þjóðhöfðingja sinn.

Í gegnum margar aldir var einmitt þetta aðal málið hér á Íslandi; hvað er SIÐr, hvernig er hann mótaður, hvernig er honum við haldið, hvernig er hann varinn, hvernig fellur hann í siðrof (Anomie), og verst af öllu, siðfall (Innfall, Implosion), sem Jesú nefndi Viðurstyggð á helgum reit.

Eitt af því sem þér er ekki kennt í skóla, er að árin 930 AD til 1662 AD, jafnvel allt til 1809 AD, voru Íslenskir Siðfræðingar (og Lögspekingar) fremstir meðal þjóða í þessum vangaveltum. Að slíkt er horfið, er mjög áhugavert, og sérstaklega þar sem enginn vill ræða augljós samsæri.

Tökum á þessu snúning.

Þegar Ríkið samhentist að ljúga að fólki árin 2008 til 2012 um hið vélaða Hrun, og nota þá lýgi til að ryksuga þriðjung allra eigna landsins inn í Ríkið og deila til ýmissa vildarklúbba og fjölmiðlar tóku þátt í lýginni og yfirklórinu, þá var siðrof á landinu.

Þegar Ríkið samhentist um að ljúga að fólki árin 2020 til 2022 um ímyndunarveiki og eiturglundur og gera skipulagða (yfirveguð ráð[agerð], deliberate intent) aðför að ónæmiskerfi þjóðarinnar og samtímis ryksuga fjórðung allra fyrirtækja landsins og fimmtung eigna fólks, með sama hætti og í Hrunvéluninni, var siðfall, því samtímis aðgerðinni voru samþykkt lög sem réttlættu aðförina jafnóðum og klóruðu yfir að engin ábyrg vísindi voru að verki, önnur en mafíuvísindi.

Þegar Ríkið samhentist um að dæla peningum skattgreiðenda í stríðsrekstur erlendis, þrátt fyrir bann við þessu í Almennum hegningarlögum, var siðfall Ríkis og SIÐmenningar þess staðfest. Rétt eins og gistináttagjaldið sem átti að vera skammvinnt, rétt eins og nú þegar þú greiðir BÓKSTAFLEGA skatt fyrir það eitt að hreyfa þig (sem er uppfinnding Kínverska Kommúnistaflokksins), er gert grín að siðfallinu.

En hver er þá staðan?

Hér er rúsínan í lummunni.

Þeir sem litið hafa til baka og gert upp Hrunið og vélráð þess í huga sér, þeir sem litið hafa til baka og séð hversu ómerkileg lög eru samin - eða innflutt - og hversu mörg þeirra brjóta stjórnarskrána (Siðfræðisáttmálann), þeir sem líta til baka yfir Farsóttarglæpinn og alla þá glæpi sem þá voru framdir, og þeir sem líta til baka yfir allt það sem undanfarin fimmtán ár hefur sannað að allt það siðferði (Morality) sem okkur er innprentað í fjölmiðlum og skólakerfi er blóri og lýgi, þeir sem líta á hegðun elítu undanfarinna missera og setja á vogarskálar eigin raunsæis*, þeir sem hefja rannsókn á "vísindunum" s.s. varðandi loftlagsmál og heilsumál, eða jafnvel meira en það, komast að niðurstöðu. 

Já þetta var löng efnisgrein, viljandi, því siðferði (Morality) án siðfræði (Ethics) er aðeins hjóm og raungusegð (Dialectics, sem afeitrast í kyrrð og gaum[gæfni] (Discernment).

Niðurstaðan er sú að þú áttar þig á hinu augljósa, elíta, almenningur og stýrða andstaðan (Antivistar) eru þrjár ólíkar þjóðir og þú átt val um að tilheyra engri þeirra. Hugur þinn er þinn eigin og þegar þú hefur gert þetta upp, snýrðu ekki aftur.

Rúsínan er augljós, því smám saman verður elítan ein eftir í bergmáli eigin glyshallar. Því þegar þú hefur rænt eigin huga heim og endurreist vörður eigin sálar, hleypirðu engum þar aftur að.

Aftur að SIÐr.

Margir hafa reynt að afmarka hvað það er, stjórnarskrá Endurreists Þjóðveldis 2013 er ein slík tilraun, [1, 2]. Kínversku og Japönsku keisaraveldin eru líklega þær viðleitnir sem mesta raun stóðu, þó við þekkjum það ekki á Vesturlöndum, en arfþjóðir þeirra vita þetta vel. Þrjár viðleitnir eru best þekktar á Vesturlöndum, en það eru Hammúrabí*, Móse og Konstantín, sem þekktar eru í nokkrum útgáfum. Ljóslega væri hér efni í áhugavert rit, sem vafalaust verður ritað í rökkruðum klefa á Íslandi á næstu eða þarnæstu öld.

Dugar að minna á, að Konstantín - í anda móður sinnar - var snjallastur, því hann smalaði Kristnum eða Nasarenum aftur inn í ríkið, en í þrjár aldir, frá 30 AD til 325 AD, yfirgáfu menn - karlar og konur - frekju og ofríki falsvaldhafa Satans. Snéru hugum sínum frá og vörðuðu sál sína.

Það er margt verra, en vera í útlegð við árbakka Babýlonar, bíðandi hinnar Guðómlegu lausnar. Því á hverjum degi, árið inn og árið út, minnir frekjan á sig með samþykki hinna sinnulausu; svo maður þarf ekki að muna hvers viðurstyggð var yfirgefin né heldur hví.

Við reynum hér að segja minna og meina meira. 

Erfið íþrótt.

Sem minnir á annað: Hvar voru stéttarfélögin í Hrunvélráðunum, hvar voru þau í Farsóttaglæpnum og hvar eru þau núna? Getur verið að rétt sé, sem bannað er að hugsa sér, að þau hafi rænt af þér réttindum þínum? Getur verið að þau séu vélráð?

 

* Tvennt er áhugavert við Hammúrabí, þó hann sé af Nimrods ættinni (sem var höfuðandstæðingur Abraham sonar Terah sonar Nahor) og óhemju margar valdaættir Sögunnar rekjast til. Hið fyrra er að í Gethsemane garðinum þegar Jósúa Maríuson undirbjó sig undir sinn síðasta vitnisburð, var vitnað í lög á súlu Hammúrabís. Hið síðara að fram eftir miðöldum, víða um heim, voru ýmis ákvæði úr súlu Hammúrabís hluti Siða margra menningarsvæða. Þetta er óþekkt í dag, en blasir við í fjölærisgrúski SIÐr þ.a.l. lögspeki (Legal Philosophy), en sem fyrr segir, Lögspekingar Herúla voru um aldir með hælana þar sem aðra dreymdi um að bora tásunum, en það hefur verið strokað út.

* Rökrétt er ekki alltaf raunsætt - logic vs. reason - þegar þú sérð þann mun, hrópar hann hvarvetna, rétt eins og raunsætt er ekki alltaf rökrétt.