28.12.2025 kl. 17:59
Þegar allt annað þrýtur
Eins og allir vita, er ESB fyrirheitna landið, séð frá útsýnispalli elítunnar á Arnarhóli og úr kaleidóskópinu við Austurvöll. Við höfum oft staðhæft, að bæði ESB og Nató muni enda með pólitískt hæli á Íslandi.
Nú þegar er ljóst að leifar hins siðmenntaða heims gæti brátt gefist upp á bæði ormagryfjunni og haughúsinu. Þó er aldrei að vita.
Rétt eins og við sáum þegar best menntaða þjóð í heimi fjölmennti í sprautuklefana; í hærra hlutfalli en nokkur önnur þjóð, og býr í eina landi heimsins þar sem enginn, utan e.t.v. þrír jaðarsettir aular, ræða skaðann. Hverjir eru þessir þrír?
Manðakki.
Allavega.
Bílaiðnaðurinn í Þýskalandi er hruninn, enn ein Volkswagen verksmiðjan lokaði á dögunum. En, Þýski efna-fræði-iðnaðurinn hrundi í fyrra, og hið athyglisverða við hann, er að síðan 1935 er var þetta stærsti og ríkasti iðnaður Þýskalands - mun stærri en bílaiðnaðurinn - og það á heimsvísu.
Á dögunum hóf Mercedes Benz framleiðslu á bifreið með kínverskum mótor, og við ræddum nýverið að ESB, sem er yfir 70 % fjármagnað af Þýskum iðnaði, gjaldþrota. Eins og Gerald Celente segir oft; "þegar allt annað þrýtur, fara þeir með okkur í stríð."
Faðir minn heitinn, grínaðist stundum ef hann var á leiðinni í sjoppu að kaupa sér Half & Half í pípuna, ef maður spurði, pabbi hvað ætlarðu að kaupa (vongóður um nammi): "Burtflogin hænsni og teiknaðar kartöflur."
Mér fannst það alltaf jafn fyndið, lítill snáði.
En mér finnst ekki fyndið, að elítan* lítur á það sem sjálfsagðan hlut að fara með almenning eins og sauði og kjúlla sem slátra megi að vild, jafnvel þó almenningur hagi sér eins og möndlaður leir og tilhöggnar styttur.
Einhver óþekk[t]ur á þó enn réttu lýsinguna; Þó þú getir það, merkir ekki að þú meigir það.
Við minntumst á Jacques Baud ofursta,
fyrir fáeinum dögum, en efumst um að
Stórustumörgæsir viti hver hann er.
Hann er þó ótvírætt einn snjallasti
alþjóðarýnandi okkar samtíma.
Áhugavert er í samtali hans við Daniel Davis undorofursta, í lengri útgáfu þess viðtals sem hér er skellt inn, er að Jacques Baud gerir skýran greinarmun á Nasistum og Nýnasistum. Veit ekki um neinn annan - utan að við greindum fyrirbærin ítarlega í Arkívinu á sínum tíma - sem skilur þennan mun.
Mér er til efs að þeir sem skilji muninn, átti sig á væginu.
En það er bara ég.
Hef misst alla virðingu fyrir mann-verum og treysti illa mann-eskjum.
En ég er veikur, svo ég tek ekki mark á.
Frekar en þú.
En fyrst við á annað borð rifjum upp efni úr eldri færslu, við minntumst nýlega á að bændur þyrptust að höfuðstöðvum ESB í Brussel á dögunum og kveiktu þar varðelda og köstuðu kartöflum í Stórastasæluríkið, og að ekkert var minnst á það hér á Stórastamöggins. Það sem við komumst að síðar, er að þegar mótmælin voru um garð gengin, þyrptust svangir borgarar í Belgíu út á torgið að tína saman kartöflurnar og fóru með heim í soðið! Einnig að heimilislausir í Evrópu, sérstaklega suðurhlutanum, t.d. Grikklandi, Ítalíu, Spáni, suður-Frakklandi, eru sofa nú orðið hóopum saman í kirkjugörðum. Ef þessir atburðir ættu sér staði Rússlandi, þar væri það í fréttum allsstaðar. Grínlaust!
Úr einu í annað: Ef öll stéttarfélögin og stjórnarandstaðan myndu sameinast um að fá fólk til að nota engar bifreiðar fyrstu þrjá daga hvers mánaðar; hversu lengi myndu 666 gjöldin (6,95) þá standast?
Nei; í staðinn eru allir á FB að deila einhverjum þvættingi um löggildingar á mælum!
Minn langar í einkaleyfi á setningunni "you cannot make this shite up."
Því stýrða andstaðan leyfir ekki undir nokkrum kringum stæðum, eins og með hugmyndina að löglegu greiðusluverkfalli fyrir tólf árum, að fólk átti sig á að hægt sé að sameinast um einfaldar lausnir við ofríki og kúgun.
Akkúrat; ef borgarar landsins hættu að nota einkabílinn FYRSTU ÞRJÁ DAGA hvers mánaðar, þá myndi elítan bakka, EN stjórnarandstöður myndu uppgötva tæki sem ekki hefur þekkst síðan Gvendur Jaki klifraði upp togarasíðung á sjötta áratugnum.
Eða þeim sjöunda.
Einföldun: Þegar við ræddum öryggisgettóið og fjölþjóðlegar flóttabúðir, 2021, kom Stýrða Andstaðan og eyddi því með "flýja hvert." Kjánar. Hefðu þau öll verið alvöru andstaða, alvöru siðgæðisverði, hefðu þau takið upp frasnn; flýjum, öryggisgettó, alþjóðlegar flóttabúðir, og elítan hefði bakkað strax frá ódæðinu, því elítan óttast einmitt einfalda frasann sem auðvelt er að skilja.
Þegar þú hættir að hlýða er þér ekki stjórnað, þegar þú eyðir innprentun hugans, lifnar greindin, og "once you are dignified you never go back." Þegar þú hættir að jarma, lærirðu kvæði sem djöfullinn óttast.
* Fyrir þá sem ekkert vita og skilja minna, við gerum engan greinarmun á erlendu Elítunni, innlendu elítunni, og heldur ekki hvort það er meginstraums eða jaðarstraums (antivista og særingaskýrenda).