19.12.2025 kl. 19:06
Gervigreind allsherjar ofurmenna alþjóðakerfisins
Við höfum lengi haldið því fram, að réttast hefði verið að kjósa Katrínu Jak. í forsetann, því suma er betra að skelfast og hafa í augsýn en utan sjónsviðs. Rétt eins og flestir hafa nú upplifað á eigin skinni, þegar við útskýrðum vandlega á sínum tíma hverskyns óskapnaður Valkyrjur eru, að Valkyrjustjórnin reyndist Herfustjórn.
Undanfarin misseri hefur orðið sífellt erfiðara að losna undan nýjum álögum Gervigreindar í Netheimum - Ríkið sem sett hefur sig ofar Guði sjálfum er fyrir löngu í helgreipum sjálfvirkra algríma allsherjarvaldsins - og erfitt að slökkva á gervigreindar fídusum leitarvéla og vafra, og sífellt fleiri í heimi tölvunotkunar yfirgefa þessa dagana alræðisheim nýrra útfærslna á Windows stýrikerfinu, yfir í notalegan Linux heiminn, og þúsundum og tugþúsundum saman er fólk t.d. á X að úthúða Gervigreindinni sem Demon infested monster.
Nú í haust hafa t.d. tvær nýjar sjálfstæðar útgáfur af Firefox vafra litið dagsins ljós og notið vinsælda, af tengdum ástæðum, og lítur út fyrir að lífstykki greindarinnar sé að sprengja utan af sér á fleiri sviðum, t.d. er víða í Evrópu og Bandaríkjunum sem talið er að frá 40 til 50 % efnahagsins sé þegar komið út fyrir það sem kennitölugreindin getur fylgst með, samtímis því sem ESB er opinberlega að tilkynna útgáfu rekjanlegrar rafmyntar, sem aftur er hægt að stjórna miðlægt hvort þú mátt nota, skv óreiðuskoðanaröskun: Rétt eins og Antivistar spáðu á Covid tímanum!
Samtímis þessu hafa foringjar ESB og Bretlands - sem bæði eru svo til gjaldþrota og reyna ítrekað að ræna feitum Rússneskum sjóðum - tilkynnt borgurum sínum að nú þarftu að búa þig undir að fórna börnum þínum (aftur) fyrir komandi allsherjarstríð sem þau í gerðum sínum krefjast en í orðum þykjast forðast.
Nota Bene: Ef þú samþykktir sprauturnar áttu ekki genin þín lengur - Black-s Law - þaðan af síður sjálfan þig, og dímonar elítunnar mega ráðskast með þig að vild. Þú veistetta, en getur ekki skilið, né forðað, því þú trúir ekki á Bæn, Iðrun, Vitnisburð, Fyrirgefningu, eða vættinn sem útbjó lykla þessa fjóra.
Sterkust eru þó birtuskilin, þeirra sem rýna erlenda jaðarmiðla, næst erlenda meginmiðla og loks innlenda hrokamiðla, að engan þarf að furða hvernig almennt fólk veit ekkert og skilur minna, og elíta þeirra hugstola (Depraved), og verst af öllu: Hvert getur maður flúið? Því Sæluríkið er svo yfirþyrmandi og kæfandi að eina leiðin til að búa þar, er að kafna með lokuð augun.
Svipað og þegar Bismarck sagði á sínum tíma, að leiðtogar Vesturvelda iðkuðu hernað sinn með svipuðum rökum og fólk sem fremur sjálfsvíg af ótta við dauðann.
Grínlaust!
Hef aðeins séð, hér og þar erlendis, tvo eða þrjá, minnast á hið augljósa; gervigreind í tölvuheimum er ekki til. Sem minnir á annað, því hún er til, en ekki sú sem elítan markaðssetur og notar til að tjóðra þig, og við ræddum þetta opinskátt, af dýpt og í þaula, fyrir áratug og sú greining heldur, og hefur [að öllum líkindum] bjargað milljónum mannslífa nú þegar, þegjandi og orðalaust.
Allavega.
Þegar þú sérð að hér í Helvíti eru samræður aðeins í boði við fernskonar fyrirbæri, Dímona, Uppvakninga (Ghouls), Umskiptinga (Golems) og Uppskafninga (Gargoyles), hættir þú að eiga samræður, reimar á þig skóna (ullarsokkar og gúmmískór), tekur fram lobbuna, setur á þig ljúfa húfu, og telur gangstéttarhellur. Virkar einmanalegt í fyrstu, en þegar þú hendir þér á grúfu í mölina, eignastu vini, steinvölur, og því hvassari, því mýkri.
Sem minnir á annað.
Mæli með kafla 44. í Jeramías og köflum 8. til 11. í 1. Konungabók, til að sjá lýsingu Biblíunnar á innfallinni siðmenningu stórustu heimsmenningar allra tíma, okkar, og hvernig Bibban kennir þér að skilja viðurstyggð eyðingar á helgum reit (Innfallin (Imploded) siðmenning), og næmi á raungusegð (Dialectics) og hvernig gervigóðvild (Fake Altruism) drepur þig; hugann fyrst, einnig að Femínisminn er ekki að drepa menningu sína í fyrsta skipti Sögunnar.
Úr einu í annað:
Minn sá ekki hér í innlendum Hrokafréttum þegar foringjar ESB og UK boðuðu fórnir á fjölskyldum Evrópu, nú á dögunum, en ekki heldur þegar draumaríki Íslendinga, ESB, setti Jacques Baud, ofursta í upplýsingadeildum Svissneska hersins, í allsherjar bann, svo hann getur ekki ferðast eða átt bankareikninga; færasti og vitrasti menningar- og hernaðar- og alþjóðaráðgjafi Vesturlanda, settur í bann fyrir hlutlausar og djúpar greiningar, og stimplaður sem rússavinur!
... til að vernda lýðræðið og ofurskatta Sæluríkis sjálfumgleði og blóðþorsta.
Eins og eikkur sagði; you cannot make this shite up.
Minn kynntist boðskap John Trudell, eftir 1990, í gegnum tvær plötur sem hann samdi. Síðar komast ég að því að hann hafði orðið landsfrægur í Ameríku eftir töku frumbyggja Norður Ameríku á Alcatraz í kringum 1969, vegna framsögu hans í Radio Alcatraz, en í mörg ár var hann Activisti og mjög þekktur, en síðar rann upp fyrir honum ljós og hann sá að hann hafði verið Antivisti ... og eftir það var hann bara "crazy" og það er áhugavert, þegar maður gengur gegnum svipað, því það eru milljónir sem fatta Exodus, en slíkt kemst hvorki í fjölmiðla elítunnar né hlaðvarp stýrðu andstöðunnar. Urmull af djupu efni er til, hér og þar.
Upprunalega útgáfan af Bible Belt, með snillínginum Travis Tritt:
Úr einu í annað: Frétt vikunnar er nottla - alls staðar nema hérlendis - þegar bæði Zelenský - Úkraína og Mark Rutte (Nató) lýsa því yfir í sömu vikunni, að þegar Trömp verði dauður (Mirotvorets) eða fældur frá völdum, fái þeir að stórstyrjöldina sína. Þeir orðuðu það gætilegar, en skilaboðin voru ótvíræð.