30.11.2025 kl. 11:40

Lýðveldisfylkið eða Lýgveldisfylkið

Þú átt ekki val á því hvort Íslenska Lýðveldið verði ESB Fylki, eða ekki. Íslandsdeild elítunnar (Ís-Quislíngar) hefur þegar ákveðið þetta og þér kemur framhaldið ekkert við. Rétt eins og við höfum rakið í fáeinum nýlegum færslum, er nákvæmlega engin málefnaleg umræða á landinu varðandi þetta, og engir raunhæfir stikar (Parameters), ekki einu sinni hjá andstæðingum málsins. 

Hjörtur J. Guðmundsson ritaði fína grein nýverið á stjornmalin.is, þar sem segir m.a:

"Þá segir að fram að því hyggist sambandið „taka með virkum hætti þátt í því með íslenzku ríkisstjórninni að kynna kosti mögulegrar aðildar að ESB og vinna að auknum undirbúningi fyrir endurnýjað umsóknarferli ef Ísland virkjar með formlegum hætti umsókn sína.“ Á sama tíma býður sambandið fram aðstoð sína gegn erlendum afskiptum." 

Við höfum staðhæft undanfarið, að betra sé að ganga í Ameríska Ríkjasambandið (USA) og hefja einfaldan rökstuðning fyrir því, og sýnt fáein hugsanleg rök. Vissulega er þetta gert meira til gamans en í alvöru, en einnig til ásteytingar.

Því birtuskilin (Contrast) sýna betur tómarúmið.

Einnig draga þau fram það sem enginn sér, rétt eins og í Covid Helförinni. Eina umræðan sem hefði getað hægt á glæpnum, hefði verið sú að Antivistar og Samsæraútskýrendur hefðu sameinast um Exodus, eða útgöngu, úr kerfunum. Við erum eini aðilinn á heimsgrundvelli sem sýndi fram á þetta, bæði með skírskotun í Ritningar og Alþjóðalög. 

Tómarúm var svarið hjá Leirmennum og Bergmálsöpum. Það er enginn hugur, hvorki meðal hins almenna né meðal jaðarsins, því Medúsa hefur dávald á þeim öllum. 

Þú styrkir það sem þú streitist gegn (What you resist, persists), að búa til útgöngu, eða hliðarleið, með einföldum rökum, eru vopnin sem heimsveldismafían á aldrei von á og því engin vopn gegn, rétt eins og Gandhi sannaði svo eftirminnilega

En Gandhi lærði af að lesa Tolstoy, sem aftur lærði af meistara Jósúa Maríusyni.

Íslenska Lýðveldið bókstaflega lagði niður eigin stjórnarskrá sumarið 2013, og sannaði þá að það væri "Lýgveldi." Í febrúar 2021 lögleiddi það Helför. Um þetta var vitnað, þá um sumarið fór mafían í börnin, og vakti sjálfri sér og þeim fjölskyldum er samþykktu glæpinn (þegjandi sem vakand), bölvætt er ekki verður samið við né hann niður kveðinn.

Við röktum þetta efni vandlega í Arkívinu á sínum tíma, og drógum vandlega fram þá Vætti er skapaðir voru á undan Englum Guðs til að halda utan um lögmál Alheimsins; nokkuð sem enginn hefur gert í Sögunni.

Slíkur vitnisburður loðir við skálar.

Menning okkar er dáin, sannanlega, og siðmenning innfallin. Þetta nefndi Jósúa (Jesú), viðurstyggð á helgum reit. Hann sagði, þegar þú sérð viðurstyggð á helgum reit, flýðu þá sem hraðast, til fjallsins [helga].