28.11.2025 kl. 11:21

Af opinberum samsæriskenningum

Þau mál sem varða áróður Vesturvelda um rán á börnum og horfin börn, eru hreinræktuð samsæriskenning, sem ríkisráðsfólk, embættisfólk og fjölmiðlafólk leyfir sér að meðhöndla sem staðreyndir. 

 

 

Auk þess - samanber nýlega færslu - er lítið að marka fjölmiðla sem á víxl vitna í lélegasta lipurgera (Diplomat) og hugarskertasta* utanríkisráðherra "Lýgveldistímans" - hvorutveggja "fólk" sem aldrei hefur áorkað neinu af eigin verðleikum og eiga allan sinn frama að þakka tengslum og eðalvélráðum.

Við gætum hins vegar rætt að fjölmiðlar vesturlanda ræða aldrei tugþúsundir barna sem hverfa bæði í Evrópu og Ameríku, árlega, og tengsl margra þessara hvarfa við elítuna sjálfa, og launhelgar meitlara.

En það má ekki ræða alvöru samsæri ... enda við dáin og vistuð í Helvíti:

Það eru þrennar hugsanir sem dímonar heljar neita þeir um að vinna úr og skilja* fyrrgreinda staðreynd, að svört tíðni/orka Píramídanna heldur þér hér, og að rækta persónuleg vensl (Relation) við Skapara Alheimsins. Allt annað geturðu unnið með, og þetta er auðvelt að sanna, en er tilgangslítið.

Þú útskýrir ekki Medúsu fyrir myndastyttum, leirmótunar og bergmáls.

Séffar vesturvelda hafa verið duglegir undanfarnar vikur að predíka tvennt, annars vegar réttindi þjóðríkja (Rights of States) og hins vegar reglubundna heimskerfið (Rules based order): en Marxistinn Kolbrún Stríðsfjörð erindast báða þessa kommúnisma, svosem vel kemur fram í tengdri áróðursfrétt.

Einföldun: Ef Ríki hafa réttindi, þá hefur eitthvað sem er þeim æðra, úthlutað þeim.

Þjóðríkjaréttindi* og Alþjóðalög eru rökfella eða rökleysa (Fallacy) og firring (Alienation), nema nottla ef einhver kommúnistanefnd sé yfir öll þjóðríkin sett, eða einhverskonar ríkisvættur. Eins er með reglubundna [eða regluhnýtta] heimskerfið; hvaða reglur, hver setur þær, hver túlkar þær? Heimskommúnisminn veit vel að þetta er rugl, en því er laumað inn (Subliminal) hér og þar, ótt og títt, þar til allir skilja Sannleikann, hversu óraunsær sem hann er.

Hugtakið Alþjóðalög væri nær sanni, en hvað eru þau, hvernig eru þau skilgreind, hvað merkir frumspekihugtakið lög? Hefur t.d. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna eitthvert valdsumboð (Mandate) til að setja aðildarríkjum, eða öðrum óbundnum ríkjum einhver lög?

Hvaðan koma þau sannindi, og hvernig voru þau innprentuð þér, mótþróalaust?

Fyrirbærið alþjóðalög, sem byrjað var að vinna með eftir Vínarfundina 1815, og byggt á gömlu Westphalia fundunum í kringum 1648, er kommúnistahugmynd, útfærð á ríkjamengið. Þessi hugmynd - Richelieu kardinála og Marteins Lúter* -  er í dag útjöskuð og hefur í raun aldrei haft neitt lögmæti. 

Undanfarin misseri hafa ýmsir hérlendis, sérstaklega forkólfar Sjálfstæðra Sósíalista xD, haldið fram ýmsum staðhæfingum þess eðlis hverjir séu brotlegir við Alþjóðalög og hverjir ekki, án nokkurrar skírskotunar til dóma eða lögbrotsákæra í þá átt, né nokkur utan þessa þráðar og Arkívisins bent á staðleysur þessara fullyrðinga. 

Einföldun: við erum hér að ræða hreinræktaða dulspeki og trú á eitthvað ósýnilegt og eitrað: Djöfladýrkun! En skilningsgeta þín á fyrirbærinu, hefur verið fjarlægð af sama fólki og kenndi börnum að lesa sér til vanmáttar

Sem dæmi krefjast Sameinuðu Þjóðirnar þess, að 60 % meirihluta kosning á Allsherjarþingi, geti sett lög hinum 40 % sem kusu neitandi. Þetta virkar ekki nema öll aðildarríki hafi samþykkt yfirvald eða valdsumboð téðs ríkjaþings, sem þau geta ekki gert nema afsala sér fullveldinu (Sovereignity). Það hefur aldrei gerst og mun aldrei gerast. 

Þjóðréttarsáttmálar (Treaties) eru allt annað mál og vissulega gæti Allsherjarþingið skilgreint lögmætissamning eða sniðmát að þverþjóðlegum þjóðréttar/þjóða-sáttmála - sem stök ríki geta síðan undirritað að eigin vali, og viðgangast slíkir gjörningar. Fundirnir í Brasilíu á dögunum, sem lauk með hressilegum eldsvoða, voru einmitt slík tilraun, svo eru allar loftlagsráðstefnurnar.

Fólk er of vel innprentunarmenntað til að skilja eigin vængstýfun, og veit því ekki hvað hér er á ferðinni né hversu mikilvægt það er hagsmunum þeirra sjálfra og barna þeirra.

Vissir þú t.d. að þeir sem standa að loftlags-ráðstefnum starfa undir nefnd sem skammstafast UNCCC? Kemur það fram í fréttunum, eða að stofnunin sem spýtir út úr sér loftlagsbreytinga lygunum, IPCC, er byggð á línum sem UNCCC leggur, og að allar ákvarðanir þeirra, viðmið og algrím eru og hafa frá upphafi byggst á fyrirfram gefnum forsendum sem aldrei hafa staðist neinar mælingar, eðlisfræði eða önnur vísindi, utan markmið León Trotský um heimsyfirráð fólskufólks af hans tagi?

En fjölmiðlar Trotskýismans segja þér ekkert, en fylla huga þinn af skáldaðri froðu, sem um leið og þú trúir, sérð sem veruleika. Ef þú skilur þetta, fattarðu [kannski] það sem áður var tengt við Gorgónuna miklu.

Íslendingar eru almennt óupplýstir um starfsemi klúbba á borð við Heims-Efnahags Ráðið (World Economic Forum) eða systurklúbbinn Festu, en hvorirtveggja vinna opinberlega að því að koma á heimsríki Sameinuðu Klúbbanna/Þjóðanna, og afnema sjálfsveldi þjóðríkja og almenna hreyfigetu og sjálfræði einstaklinga, fjölskyldna og þjóðarbrota, og tryggja heimsmarkið þekktasta raungusegðar marxista allra tíma, Platóns, að útvaldir darwinistar eigi að ráða öllu

Hið fyndna er, með bæði Fasista og Marxista*, er að þeir fela ekki markmið sín, ætlanir og aðferðir, en leirmenni halda samt að það séu samsæriskenningar, og bergmálsbrúður réttlæta eitrið.

Nú er ESB að klára raffræna gúlagið, sem er lengst komið í tveim ríkjum heimsins Íslandi og Ísrael, Bandaríkin eru að gefa í botn á þessu sviði. Rússland er komið mjög langt, svo og Kína. Smámsaman eru börn Faraós að klára allsherjar fangelsi allra sálna heimsins, í eitt risastórt helvíti rafrænnar miðstýrðar hugstýringar, og það er dauði. Við erum dáin, við erum í Hel, en við getum ekki skilið það; og afleiðingin, ef verkefni þessara djöfla heppnast, verður allsherjar aftaka okkar allra, grínlaust - kannski munu líkamarnir hreyfast áfram, þó.

... en fyndnast er; svo vitnað sé í Satan sjálfan; við eigum ekkert betra skilið, sinnulaus og sjálfumglöð, siðblind leidd af siðlausum.

Að öllu þessu sögðu.

Tökum fyrir tvennar tegundir af hliðvörslu sem elítan beitir - og já hér er enginn greinarmunur gerður á íslandsdeild hennar. Fyrri tegundin er þegar hún býr til skálkaskjól af ýmsum toga til að hvítþvo sjálfa sig, dæmi; þú átt að horfa á kaþólska presta káfa á börnum en ekki ríkisráðsfólk, bankafólk, heimsfjárfesta og embættisfólk í partý með Epstein, Maxwell, og Diddý. Hin tegundin er þegar vel ígrunduð orðræða fæðist sem vísar þér leiðina út, þá er spegilmynd hennar búin til af jaðarsettri elítu sem bendir þér á leiðina út en heldur þér innan múranna. Til eru fleiri tegundir.

Til eru alls kyns hópar fólks um alla veröld, og mjög stór hópur fólks hefur tekið eftir umfangsmiklum barnahvörfum allsstaðar í heiminum - og sumir telja að UNICEF sé hér skálkaskjól þ.e. þeir sem eru ekki það sem þeir þykjast vera - en áhugaverðast er að elítan lætur eins og grasrótarhópar þeir sem fylgjast með málaflokknum séu ekki til. 

Sem dæmi hverfa að meðaltali hundrað þúsund börn í Kína árlega og þegar fólk kemur saman á torgum og þrýstir á stjórnvöld að hefja kerfisbundnar aðgerðir í málinu, er þeim ýmist bannað að koma saman eða skermuð af. Eins er í Bandaríkjunum þar sem hverfa að jafnaði á milli 30 og 60 þúsund börn árlega, og var af þessum grasrótarhópum talið að mesta barnahvarf sögunnar hafi gerst á Bæden tímanum. Undanfarið er rædd sem rekjanleg staðreynd meðal fjölda rannsakenda að eiturlyfjabarónar Norður-Mexíkó græði þessi misserin meira á barnaviðskiptum við Bandarísku elítuna en á dópframleiðslu og dópsmygli. Allt þetta er þaggað kyrfilega, en þeir sem rannsaka mest af þessu, hafa rakið umfangsmikla þræði og fjármagnstengingar til valdamikilla hópa og fólks. 

Auðvelt er að finna þetta út, en útilokað að ræða opinskátt, og jújú; samsæriskenning. Því sum þessara barna eru seld, sum eru notuð í alvöru launhelgar ... þetta er risastórt efni og þrífst aðeins í Hel.

Minni loks á - í jólamánuði - að jólaveinarnir eru alvöru, og við höfum það frá Letihaugi sjálfum!

 

 

* Við notum ýmist Hugstola eða Hugsk[e/o]rt, fyrir Depraved

* Þú getur skilið hugmyndina að við lifum í einskonar hologram, sem er bæði rædd meðal elítuvísindafólks og samsæraútskýrenda, svo og ýmsar aðrar skyldar hugmyndir; en þú getur ekki skilið móðurhugmyndina sem er sú sama, en með breyttum orðum; að við erum dáin en vitum það ekki. Þegar minn testar fólk með þessu - til gamans - fer aðal atriðið framhjá öllum: ef við erum dáin og vistuð í Hel, þá a) erum við eitruð og vistuð alheiminum til verndar og b) dauðinn er blekking! En þú getur ekki unnið með þetta og skilur ekki að þú getur það ekki. Sem er drepfyndið.

* Til er - í vandaðri Ríkissmiðju (fyrirbæri sem ekki er þekkt hérlendis) - spurningin hver eru réttindi ríkis og skyldur, en merkingarknötturinn hefur ekkert að gera með umræðuefni færslunnar, heldur hvaða réttindi þú sem þegn og/eða borgari ríkis úthlutar eða afhendir Ríkinu og hvað þú skalt eða átt að fá í staðinn. Engin orðræða hins upplýsta meiriháttar samtíma Mann-kyns og Mann-fólks ræðir þetta né kann. Örlítið örlar á þessu hjá stöku hópum og eru "Libertarians" í anda Tom Woods og Ron Paul áberandi, þar sem þetta er rætt, en ekki af þeirri dýpt sem orðræða og frumspeki Endurreists Þjóðveldis krefst og hefur sýnt fram á. Þjóðríkjaréttindi, á alþjóðagrundvelli og í milliríkjavélun, er allt annað fyrirbæri, og hefur þegar verið afgreitt vandlega af snillingum á borð við Clausewitz, Moltke, Sun Tzu og Alexander Svechin, að ógleymdum Bismarck, Gaius J. Caesar og Xerxes IEins og allir vita, nottla.

* Richelieu er fyrstur sem vitað er til að hafi úthlutað frumspekihugmyndinni Þjóðríki einhverja afmörkun og reynt að skilgreina réttindi þess, Marteinn Lúter bætti um betur og gaf Ríkinu allsherjarréttindi til að skilgreina og úthluta Siðfræði ... allt þetta er Marxismi, eða raungusegð (Dialectics) og öfugsnúningur. En slíkt virkar í Hel, eða í heimi Dýrða Samael(Splendors [and Riches/States} of Satan), svo vitnað sé í samræður Jesú og Satans á fjallinu forðum daga. Platón reyndi að skilgreina þetta og segja má að Richelíeu og Lúter séu aðeins hælbítar úr þeim raungsegðaskóla sem uppnefnir sjálfan sig heimspekiskóla.

* Fasismi og Marxismi eru í raun sama fyrirbærið, hvorutveggja er raungusegð (Dialectics) og hvorutveggja afnemur einstaklinginn og felur hann umsjá ríkis og/eða nefndar, eftir atvikum, annað beitir Efnishyggju (Materialism) en hitt Frumspeki (Metaphysics) - Dialctical Materialism vs. Dialectical Metaphysics í vélráðum sínum og dávaldi. Rétt eins og félagshyggja og frjálshyggja samtímans er unnin eftir hugmyndum Trotský/Gramsci, er Fasisminn byggður á hugmyndum Mussolíni, en allir þrír voru sannfærðir Marxistar. Öll þessi orð, fela kjarnann; Diabolical Discourse i.e. Dialectics = Raungusegð, það sem þykist vera það sem það er ekki, og snýr huga/sál/skilningi þeirra er á hlýða, á raunguna. Þú getur klæðst skyrtum á raungunni, ... en ...