26.11.2025 kl. 12:19

Að fleina í knérunn

Tengd grein, hljómar eins og hún sé samin af Kagan fjölskyldunni*, sem eru tvenn hjón, þar í er frægust Viktoria Nuland, og þeirra vélráðum. Flókið, sumum, en að hampa sumum sem lipurherra (Diplomat) er ágætt svo langt sem það nær, nema enginn sem vit hefur á Alþjóðasamskiptum (Diplomacy, Lipurleikum)*, tekur nokkurt einasta mark á téðum manni, utan að hann kann stafsetingu.

 

 

Svipað og með Íslenska Lýðveldið hefur skipað ýmsa í embætti Utanríkisráðherra, þó það hafi enga utanríkisstefnu haft síðan í apríl 1995, né nokkur í alþjóðamálum tekið mark á. Lýðveldið sem frá 1950 til 1995 var spilari á hinu mikla skákborði alþjóðamála, en telst ekki lengur peð.

Varðandi liðina 28, sem nú er rætt um hér og þar - eða tillögur Trump að Úkrófriði. ESB heimsveldið (Íslandsdeildin þ.m.t.) hafnar alfarið friði. Rússar segja þetta vera áhugavert framhald á Alaska fundinum frá í ágúst, Bandaríkin nánast ýttu ESB til hliðar á fundum í vikunni. Úkraínustjórn krafsar í bakkann - enda fékk Zelenský loforð Boris Johnson fyrir þrem árum, að Zelenský yrði æðsti séffi í Moskvu að stríðinu loknu. Svo hvað er málið?

Liðirnir 28 eru einföld uppskrift að sömu stöðu og ríkt hefur milli Norður og Suður Kóreu síðan 1953, og viðurkenning á að stríðið er á milli Bandaríkjanna og Rússland, með ESB og Úkraínu sem tvöfaldan stuðara (Buffer) þar á milli. Allir hinir sem tjá sig um þetta mikla stríð eru tröppufetarar, hliðverðir og skellibjöllur.

En þetta skiptir engu máli.

Hryllingurinn, er æðisgenginn, rétt eins og morðæði Zionistaríkisins í Vestur Jórdaníu (Palestínu), er hryllingur einn, því hvaða nöfn sem þú notar, þá eru hér Rússar að drepa Rússa, beggja vegna víglínunnar, og hvorugur í raun að berjast fyrir neinu, og rétt eins og með Gaza, er komið fram fyrir rauðastrik yfirbótar (Redemption): Á vitjunartíma er hættulegt að fara fram fyrir rauða strikið.

Segi þetta betur á ensku: Point of no Return, when you cannot back from atrocities becoming abominations, and beyond redemption 

Veit ekki hvort þú áttar þig á alvarleikanum, en í janúar 2019 var spáð að það ár myndi náð raunsæis verða fjarlægð. Ári síðar hófst mesti vitjunartími (Time of Reckoning/[Divine-]Visitation), eftir ítarlegan og nákvæman vitnisburð Spámanns*.

Tökum snúning á þessu. Ef "farsóttin" 2020 til 2022 hefði verið alvöru og ef sprautan hefði verið alvöru, væru það stærsta umræðuefni allra tíma, en þetta er hvergi rætt, eins og ekkert hafi í raun gerst, hvorki meðal almennings eða antivista, og elítur beggja komnar í næsta kafla.

Svo minn segir ennáný: "You cannot make this shite up." Sturlunin og firringin er algjör og allsherjar, og glundroðinn er ekki enn hámarkaður: og þú hvorki skilur þetta né veist að þú skilur það ekki!

Stórfenglegir tímar, þar sem Bæn, Iðrun, Vitnisburður, Fyrirgefning, er eina íþróttin sem vegar salt og sáluhjálp. Grínlaust! Gott á hnjánum, en betra á grúfu í möl.

 

Afsakið ritvillur og vanslipað málfar - ritrýni og slípa síðar. Loks minnum við á söguna sönnu, Letihaugur Jólasveinn og uppruni jólasveinanna.

 

* Kagan fjölskyldan rekur hugveituna Institute for the study of war.

* Hef lengi velt fyrir mér skorti Íslenskrar málvitundar fyrir ensku hugtökin Diplomat og Diplomacy. Skemmtilegi hluti lesendahópsins hefur vafalaust tekið eftir að á þræðinum hafa fæðst ýmis hugtök, sum slípast inn og önnur enn í þróun. Viðheld vinnuskjali um svona dútl: hér er glósa þess tengd fyrrgrreindu:

Diplomacy   - Erindrekstur, Sendimennska, Sendiför (diplomat: sendimaður, erindreki) {LIPURLEIKI (Diplomacy), LIPRARI (Diplomat eða LIPURgeri), á rætur í bæði orðfræði og málvitund, og hjúpar merkinguna til fulls, og er alíslenskt. Diplomat: LIPURGERI (manst Geri og Freki) Lipurfreki, Liðkanleikar,  ...}

Margir eru spámenn og margir eru spámiðlar, en Spámenn Eingyðisins eru ávallt með upphafsstaf (Capital).