26.11.2025 kl. 12:12

Ríkið og galdrakuklið

Fyrir fáeinum misserum flutti kona hingað til lands ásamt Íslenskri dóttur sinni. Barnsfaðirinn hafði unnið í ferðaiðnaði áratugum saman og hafði eignast téða dóttur með konunni, og höfðu þau haldið heimili í upprunalandi mæðgna, árum saman. 

 

 

Á þessum árum starfaði hann þó þannig að hann var lítið heima við en var nú hættur störfum (Retired) og vildi flytja Heim, eins og Íslendingar oft gera. Ákváðu hjónaleysin að gifta sig, í heimalandi hennar, og flytja heim til Íslands, og þótti þeim það skynsamlegt að dóttirin, sem þá var unglingur, myndi læra föðurmálið og klára menntun hérlendis.

Ríkið tók ekki í mál, að trúa fullyrðingu konunnar, hver væri faðirinn. Feðgin skyldu í DNA próf, því ríkið trúir PCR mælingum sem eru allt að 60 % áreiðanlegar, umfram vottfestan (Affidavit) framburð foreldra.

Já, rétt eins og loflagsbreytingar af mannavöldum eru hreinræktað kukl, og Zionismi er hreinræktuð fjölgyðis- og skurðgoðadýrkun, og félagshyggja er tilbeiðsla á Ríkinu, og bólusprautur, vírusagreiningar og blóðgjafir eru djöfladýrkunar-blóðfórnir, er hér hreinræktað Nephilim Kukl á ferðinni.

Slík siðmenning, er það sem Jesú nefndi viðurstyggð á helgum reit og postullegi spámaðurinn Jóhannes nefndi synagógu Satans eða þá sem þykjast vera það sem þeir eru ekki.

Slík hörmung er byggð á kviksyndi; og þú ert að upplifa afleiðingar þess að vera kona Lots þegar þér væri hollast að flýja og skirrast við að líta um öxl.

Eitt sinn sagði Satan við engla sína, "þegar við höfum klárað að sannfæra fólk um að við séum ekki til, munum við telja þeim trú um að elítan og þjóðin sé sama hjörðin."

Þá sagði Spámaðurinn, "you cannot make this shite up."