24.11.2025 kl. 17:22

Ó þú heilaga alvitra elíta

Eitt sinn var allt svo takmarkað en svo komu lög um innkaupapoka. Enn var allt morkið og leitt, en þá komu lög um plasttappa. Rétt eins og löngu fyrr, þegar óreiðan réð, en þá komu lög um verðmerkingar.

Eins var og þegar heljarþröm var afstýrt, með refsingum vegna rangnotkunar nagladekkja og svínarís á gangbrautum. Í dimmar aldir, ríkti gluggapóstur sem enginn opnaði, án hjartsláttar, en nú er bjartari tíð, við svæpum okkur í heimabankann og rafræna stjórnsýslu.

Nú erum við næstum öll genabreytt, upplýst og næs, 83 % geta stafsett rétt, og þar af helmingurinn* skilið það sem hann les. Jafnvel Laxness og Þórberg, og lögin um hvað má ekki hata og hvað á því að elska.

Elsku besta elíta, þú ert alvitur, almáttug, ástrík, og umlykjandi. Hverjum er ekki sama um ónýtt heilsukerfi, ónothæfa vegi og vanhæft raforkukerfi, sem minnir mann á að maður verður ekki feitur á flotinu, hafi maður hefur góða og vandaða elítu.

Það ert ekki þú.

Það er ég.

Ég vil skilnað!

... en ekki nema þú viljir það líka. Þá vil ég þig, og enga elítu aðra, alla leið inn í merg.

 

 

 

* Áttaplúsþrír gera ellefu, og helmingurinn er 41,5 námundað 42, sem er tala dýpstu launhlega Faraós. Maður slaufar ekki svona dýpt, ekki sársaukalaust.