23.11.2025 kl. 18:24
Kommún-, Marx-, Fas-, Sósíal- Femín-ISMI : kerfiskúgandi sálarstjarfi
Fyrirsögnin segir allt sem segja þarf, svipað og hliðverðir jaðarsins sem berjast fyrir vakningu og rýni í umræðum og samræðum, segjast einmitt vilja samræður, en sniðganga grimmt þá sem berjast fyrir því sama og þeir og velja vandlega úr hverjir eiga við þá samræður eða athugasemdir.
Allir vita að minn hefur gagnrýnt harðlega, þá fyrrum og núverandi prófessora og aðra tungumála sérfræðinga sem hafa undanfarið barist fyrir að Ríkið herði skrúfurnar í móðurmáls innprentun, og vilja innleiða refsingar fyrir rangt mál.
Slíkir prestar dímonsins Árnastofnunar vilja og auka við leiðinlega og þrúgandi lesningu og annan heilaþvott sem andi og sál barna og únglinga þolir illa. Annaðhvort eru þeir vanvitandi eða skeytingarlausir um að það eru einmitt þeir sjálfir sem [eru að] drepa móðurmálið og kæfa alla málvitund.
En hey, þeir fá titla, viðtölu, athygli fjölmila, jafnvel stöður og völd. Svo hver er að sparka?
Þá dylst engum lengur, sem [um lengri tíma] fylgst hér hefur með alls kyns orða og hugtakagrúski, hvað Fúsklenska er.Eins og eikkur sagði; you cannot make this shite up.
Nennti ekki að taka skjámynd af athugasemdinni sem hafði fylgt færslunni, að ritvillan var viljandi. En hverjum er ekki sama. Hef sannað mitt mál, fyrir mér og þeim fimm sem hér lesa reglulega, og skjalfest.
Hið fyndna er, að rétt eins og með Antivista og Samsæraútskýrendur, þegar þeir sniðganga þig eða ritksoða, eða finna aðrar leiðir til að hnussast og fnæsast yfir þér; að það var einmitt og akkúrat það, sem þú varst að fiska þá til.
... sem er skemmtileg íþrótt.
Fyrir þrem árum voru þeir bara tveir! Jei!