19.11.2025 kl. 11:32

Það er þetta með stærðarskömmina

Það er oft gert grín að jeppamönnum, á stórum dekkjum, að þeir séu aðeins að bæta sér upp það sem á vantar með aðra stærð, sem við ræðum aldrei. Stærðarskömmin sú, er eitt viðkvæmasta umræðuefni karla, svo mjög að þeir ræða ekki slík mál, en heyrst hefur að í saumaklúbbum sé stundum klæmst með soleis.

Þeir sem ferðast hafa milli margra rekkjuvoða, vita þó að konur kvarta aldrei yfir stærð af þeim toga sem hér er rætt, nema þá helst að þær nefna að sumar stærðir geta meitt þær. Punkturinn er augljós.

Það er með saumaklúbba eins og vist í fjósi á nýársnótt, karlasinni er þar eigi óhætt. Af augljósum ástæðum.

Þessa vikuna eru margar fréttir hérlendis af vaxtabreytingu Seðlabankans, eða lækkun stýrivaxta. Sumir ræða áhrifin á húsnæðismálin, aðrir ræða hvort nóg sé gert fyrir hagsmuni fólksins í landinu, tengd frétt ræðir áhrifin á verðbréfaviðskipti.

Þetta er allt saman froða. Hér er eitthvað sem ekki er rætt, tja, aldrei er rætt.

Hverjir eru vextir innan ESB og hverjir eru vextir innan USA? Hver er munurinn á því að kaupa sér fasteign í ESB annars vegar og USA hins vegar. Hvað með hina frægu ónýtu krónu, og hvað með markaði og þjóðfélög sem nota eingöngu Ameríska Dollara? Já, til eru svæði sem nota ekki sinn eigin gjaldmiðil, og það er hvergi rætt, hvað þá mælt. Hvað með Evruna? Enginn vill Evru utan ESB múranna, eða ISK[rónu].

Nú vita sjálfsagt einhverjir að hægt er að stela fasteignum af þér í sumum Bandarísku fylkjanna, séu þau ekki notary skráð hjá Sýslumanni og þeir sem hafa kynnt sér þau mál vita að hægt er að forðast með einföldum hætti. Hvernig er með þessa hluti innan ESB blokkarinnar?

Sem fyrr segir; punkturinn er augljós. Við vitum ekkert, og við skiljum það ekki, því við sjálfskömmumst fyrir eitthvað sem ekkert er, og við lítum ekki út fyrir rörið, né heldur fetum við bútasaum (Quilt).

Tökum á þessu snúning. 

Árin 2008 til 2012 var tíðrætt um að hið svonefnda Bankahrun - sem öll valdamafía landsins nýtti sér til að féfletta þriðjung þjóðarinnar og komst upp með - hefði gerst vegna EES laga. Enginn hefur breytt þessum lögum, eða fellt út, og í stað þess að ræða hvort "við" - fólkið í landinu - myndum græða meira á að rjúfa (Abrogate) EES samninginn, fór hópur fólks að kyrja þann söng að við hefðum það svo miklu betra í ESB.

Svo hvernig hefðum við það í ESB? Hvernig hefðum við það í USA? Nú eða aðgengi að alvöru fjárfestinga mörkuðum? Hvar er mælingin, hver er samanburðurinn, og hvor stærðin meiðir meira?

... og talandi um stærð, ef þú þjáist af stærðarskömm; þú getur hengt þig upp á að þín mátar í umslag af hentugri stærð, nema þú sért of feiminn til að mæla það. Eða sjáir ekki hvað sé falið í platræðum, sem mafían uppnefnir umræður.