11.11.2025 kl. 10:34
Fasteigna- og auðlindagjöld í Stórastafylki 52
Undanfarinn áratug hefur nokkuð verið rætt hérlendis um auðlindagjöld eða eignaskatta Ríkisins. Hefur elítan ákveðið að henni sá sjálftekið það sem henni sýnist og er Hæstiréttur henni sammála og skiptir þar Stjórnarskráin engu, fremur en þegar Forseti brýtur hana og framselur vald sitt.
Já, Forseta ber að gera vissa hluti samkvæmt Stjórnlagasáttmála og ekki er tekið fram að hann megi fela þá öðrum og þannig hafa allir forsetar Lýðveldisins gerst sekir um landráð. Því þegar vald ríkissáttmálans er falið (eða framselt) óviðkomandi, innlendum sem erlendum, er framið landráð.
En hvað um það. Hverjum er ekki sama um Stjórnarskrá og [grunn]lögmæti (SIÐ).
Umræðan um auðlinda- og eignagjöld er ekki búin og hægt er að fletta ýmsu þar upp. Annað sem minna er rætt um, eru Fasteignagjöld sem lögð eru á í bæjar- og sveitarfélögum; sem þessa dagana sliga nær alla sem eitthvað hafa dirfst að eignast hér á Stórastakomúnistaríki.
En hvað með önnur ESB ríki, afsakið, EES ríki? Hvað með Bandaríska sambandsríkið. Hvað borgar þú t.d. af íbúðinni þinni á Spáni þegar þú ferð á eftirlaun og flytur í sólina. Hvað ef þú ættir sambærilega íbúð - eða e.t.v. hús - á Flórída, í Alabama, í Delaware, eða New Mexico?
Einnig mætti spyrja sig, ef flutt er frá Stórastamúgsefjunarlandi, hversu stífar "proof of life" reglurnar eru, t.d. þarftu að staðfesta POF árlega innan EES, en oftar utan, en hvað með USA reglurnar? Bandarískir eftirlaunaborgarar finnast útum allan heim.
Hvað með tekjuskatta í Evrópu samanber Bandaríkin? Hvar er [fokkings] samanburðurinn á lífskjörum þínum eftir því hvort Ísland bakkar til 1991 og verður aftur frjálst og fullvalda, eða gengur alla leið í ESB eða snarbeygir og sækir um aðild að Bandaríkjunum?
Sem fyrr segir, því meir sem þú grúskar hér, þó þú grafir ekkert, en krafsir smávegis, birtist verður hin ógurlega óupplýsta þögn að ærandi hrópi.
- Property tax rates by state (usa)
- Djók dagsins (pdf)
Það er jú sagt, við hefðum það svo miklu betra í ESB, en hvernig er "miklu betra" mælt? Hvar er samanburðurinn? Var hann sendur rafrænt? Lenti e.t.v í Spam möppunni?
Úr einu í annað, en tengt:
Hefurðu tekið eftir því, í okkar rafræna stórkostlega Gúlagi, að ef þú fylgist ekki með "Mínar síður" (sem er enskt hugtak), þá veistu ekki að þú varst rukkaður fyrr en innheimtulögmaður hringir í þig og skuldin hefur þrefaldast.
Þú flýrð ekki Sæluríkið, nú frekar en á dögum Móse og Faraós. Þú ert hlekkjaður, fyrirframrukkaður, og sú sem óvart gleymdi að borga tæpar þrjátíu millur í skatt, vegna fjárfestingasvindls, er nú valdamesta skriðdýr (Reptile) landsins, og ef þú rýnir ferilinn, var hún kynþvegin (Groomed) í hlutverkið, eins og svo margir aðrir.
Fyndnast er þó, þegar maður ræðir Fasteignagjöld við þá sem borga þau, réttlæta þeir ránið á sjálfum sér, eins og vel agaðir BDSM blætarar með háls- og ökklaband.
--You cannot make this shite up, eða þannig.
Svo vitnað sé í Biblíuna: Þetta er einmitt málið: ef þú vinnur ekki heimavinnuna, og stendur ekki fyrir neitt, verður þú ekki aðeins sprautaður til Heljar, heldur skyrtan strípuð af þér. --Jobsbók