7.11.2025 kl. 14:41
Íslenskan forseta til Washington
Vafalaust hafa allir tekið eftir, í síðustu færslu, að líklegra sé að Ísland verði Fylki 52 en Fylki 51. Enda æskilegra númer, að hafa þversummuna sjö en sex, auk þess sem óljóst er hvort Kanada eða Grænland verði á undan.
Hver veit, því um leið og við söknum öll Katrínar Jak úr embætti, má velta fyrir sér að kjósa hana sem næsta forseta Bandaríkjanna, en þá verðum "við" fyrst að verða Bandarískt (fullvalda) fylki.
Þá yrði embætti Höllu að Fylkisstjóra í stað Forseta.
Ha? Fáránlegt, hugsarðu?
Já, þú veist að minn sér þig í gegnum færslurnar.
... og þú veist að ekkert er jafn fáránlegt eins og stjarfi, múgsefjun og heilaþvottur.
Svo við minnum á niðurstöðu síðustu færslu: Við höfum þrjá valkosti, alla jafn góða, en ræðum aðeins einn þeirra og tæpast til hálfs. Ítrekum því Excelskjalið; hvort græðum við meira, sem dyramotta ESB eða fullvalda fylki í Bandaríska ríkjasambandinu.
Hver væri listinn? Hver væri samanburðurinn. Í hvoru ríkjasambandinu græðum við meira, í ESB eða USA? Fyrsta atriðið er nottla skráð í fyrirsögn færslunnar. Við, Íslendingar, gætum átt valdamesta embætti heimsins.
Ha, eru Fylkin (States) ekki fullvalda (Sovereign)? Ekkert um þetta hjá RÚV og hinum ESB kommúnistunum? Eitthvað samsæri í gangi hérlendis?
Jedúdamía!