6.11.2025 kl. 21:45
Fylkisstjórakosningar 2028
Síðan vinstra fólk í banka- og fjölmiðlakerfinu vélaði fram Bankahrunið 2008, hirti þriðjung eigna almennings á öllum vesturlöndum, og endurhönnuðu bakvinnslukerfi ríkjanna þannig að vinstra fólkið fékk öll undirliggjandi áhrif og völd, hafa Íslendingar verið heilaþvegnir með þrem setningum.
Allt væri svo miklu betra í ESB.
Við myndum græða meira í ESB.
Hvað með landvarnir.
Eitt kemur aldrei fram, neins staðar; hvað kostar okkur nú þegar að vera í EES, og hvað mun það kosta Þjóðlífið og Þjóðríkið að ganga alla leið í ESB, hvers konar löggjöf er þegar afgreidd á færibandi vegna EES og hvernig yrði það í ESB?
Engin samsæriskenning; þegar gjaldþrota áróður passar við "veruleikann."
Umfram allt er enginn hérlendis sem vogar sér að segja eftirfarandi: Hversu mikið myndum við græða á því að vera utan við og sjá um okkur sjálf? Hvað með önnur ríki heimsins sem versla með svipað og við, og græða feitt?
Tökum þriðja snúning áessu.
Hvað myndum "við" þ.e. Íslendingar, græða á að verða fylki 52 í Bandaríkjunum? Því ég get svarað þessu, er búinn að yfirfara listann í huganum og er til í að setja hann fram. En það eyðileggur góðar umræður ef rangt fólk ræðir þær, svo punktinn hér.
Samt.
Hversu feitt myndum við græða sem fylki 52, og forsetinn væri fylkisstjóri. Hversu mikið betra myndum við hafa það sem Íslenskt sjálfstætt fylki (State) í sterkasta og ríkasta klúbbi allra tíma?
Við höfum hér þrjá valkosti, alla góða, einungis einn ræddur og það tæpast til hálfs.