6.11.2025 kl. 14:05

Jótar, Danir, Sjálendingar og allir hinir

Eins og allir vita heitir Rúmfó ekki lengur Rúmfatalagerinn, heldur "Jysk" - borið fram Jusk - og má velta fyrir sér hvort nafnið hafi eitthað með Jótland að gera. Færri vita e.t.v. af, að ef þú fattar þegar þú ræðir við Jóta en ekki Sjálending eða Skánardana, og segir það, fellur það oft í góðan farveg. 

Því hvað eða hver er hinn eiginlegi Dani, og hversu margir t.d. vita að verslunar- og iðnveldi Svíja, á mest að þakka Skánardönum (sem Skandinavar heita eftir), en höldum aftur af okkur.

Erindið er annað.

Minn hefur átt við að stríða síðan á unglingsárum - vegna erfiðisvinnu í sveitinni hjá ömmu og síðar í Skógrækt Ríkisins - að vera kræsinn á rúm. Veturinn 2008 keypti minn sér, úrvals gott rúm í Rúmfó og svaf góðum svefni á því fram á sumarið 2022, að minn sá sig tilneyddan að úrelda gripinn. 

Hann svaf til bráðabirgða á stífri Boxdýnu þar til í sumar, að kominn var tími á að endurnýja almennilegt rúm, svo minn skrapp í Jysk og keypti sér rúm. Hann hafði gleymt þessi sautján ár, að bakið þarf að vera með í ráðum.

Höfum þetta einfalt: Ef þú ert að hugsa um rúmið þitt tíu mínútum eftir að þú ferð á fætur, er það rúmið en ekki þú. Ef þú manst einungis eftir rúminu þínu, rétt fyrir háttinn, er það hitt rúmið og alls ekki þú. Eða þannig.

Jú, minn fékk svipaða dýnu og fyrir sautján árum, en bakið var alls ekki sátt. Svo minn skrifaðist á við Jysk, áður Rúmfó - Jótlenskir eða ekki veit ég ekki - og minn fékk svar. Minn skrifaði aftur, og aftur fékk hann svar. Smávegis samræður áttu sér stað, en þar sem öll samskipti voru að vingjarnlegum dönskum hætti, lauk þeim á hinn besta mögulega veg.

Jysk gerði mínum tilboð sem var ekki hægt að hafna. Nú sefur hann á dýnu sem bakið hans er sátt við. Framúrskarandi ágætt; að eiga samskipti við fyrirtæki sem veit að viðskipti snúast um fólk en ekki töflureikna og útúrsnúninga.

Vildi að þetta kæmi fram.

Já ég veit að ég sleppti Fjónsbúum úr. Það veit enginn hvaða þjóð býr á Fjóni, en allir vita sem heimsótt hafa, að eru gott fólk.